Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
Besta deild karla
KR – Víkingur R....................................... 0:3
Staðan:
Breiðablik 11 10 0 1 35:12 30
Víkingur R. 11 7 1 3 25:16 22
Stjarnan 10 5 4 1 20:13 19
Valur 10 6 1 3 19:14 19
KA 10 5 2 3 15:12 17
KR 12 4 4 4 16:19 16
Keflavík 10 3 2 5 16:19 11
Fram 10 2 4 4 19:26 10
FH 10 2 3 5 15:18 9
ÍA 10 1 5 4 11:21 8
Leiknir R. 10 0 4 6 7:17 4
ÍBV 10 0 4 6 9:20 4
Markahæstir:
Ísak Snær Þorvaldsson, Breiðabliki.........11
Guðmundur Magnússon, Fram ..................9
Emil Atlason, Stjörnunni ............................7
Jason Daði Svanþórsson, Breiðabliki.........7
Matthías Vilhjálmsson, FH.........................5
Nökkvi Þeyr Þórisson, KA..........................5
Lengjudeild karla
Kórdrengir – Grótta................................. 1:0
Grindavík – Selfoss .................................. 2:2
Fylkir – Afturelding................................. 2:2
Vestri – KV ............................................... 2:4
Staðan:
Selfoss 9 5 3 1 21:12 18
Grótta 9 5 1 3 19:11 16
Fylkir 9 4 3 2 23:12 15
HK 8 5 0 3 15:11 15
Fjölnir 9 4 2 3 19:15 14
Grindavík 9 3 5 1 14:10 14
Kórdrengir 9 3 4 2 13:12 13
Vestri 9 3 3 3 14:22 12
Afturelding 9 2 4 3 12:13 10
Þór 9 2 2 5 13:18 8
KV 9 2 1 6 12:22 7
Þróttur V. 8 0 2 6 2:19 2
3. deild karla
Augnablik – KFS...................................... 3:2
ÍH – Víðir .................................................. 0:2
Staðan:
Víðir 9 6 1 2 21:10 19
KFG 8 6 0 2 17:10 18
Dalvík/Reynir 8 5 0 3 18:12 15
Sindri 8 4 2 2 16:12 14
Augnablik 9 4 2 3 14:17 14
Elliði 8 4 1 3 13:10 13
Kári 9 4 1 4 14:14 13
Vængir Júpiters 9 3 1 5 14:17 10
ÍH 9 3 0 6 22:23 9
Kormákur/Hvöt 8 3 0 5 15:19 9
KFS 9 3 0 6 13:22 9
KH 8 2 0 6 8:19 6
2. deild kvenna
KÁ – ÍR ..................................................... 0:8
Staðan:
Fram 5 5 0 0 19:2 15
Grótta 6 4 2 0 27:4 14
ÍR 6 4 2 0 19:6 14
Sindri 6 3 0 3 11:18 9
Völsungur 4 2 2 0 9:3 8
KH 4 2 1 1 14:8 7
Álftanes 6 2 1 3 14:14 7
ÍA 3 2 0 1 10:4 6
ÍH 6 1 1 4 11:27 4
Einherji 4 1 0 3 4:10 3
Hamar 6 0 1 5 7:22 1
KÁ 6 0 0 6 4:31 0
Norðurlandamót U16 stúlkna
Leikið í Strömmen, Noregi:
Noregur – Ísland ..................................... 5:2
Emelía Óskarsdóttir og Krista Dís Krist-
insdóttir skoruðu mörk Íslands.
Danmörk – Færeyjar............................... 6:0
Finnland – Svíþjóð ................................... 1:3
Vináttulandsleikir kvenna
Ítalía – Spánn............................................ 1:1
Frakkland – Víetnam............................... 7:0
4.$--3795.$
Undankeppni HM karla
H-riðill:
Ísland – Holland ................................... 67:66
Staðan:
Ísland 4 3 1 340:343 6
Ítalía 3 2 1 275:267 4
Holland 3 0 3 216:221 0
Rússlandi var vísað úr keppni.
_ Holland og Ítalía leika lokaleik riðilsins á
mánudag.
G-riðill:
Úkraína – Georgía................................ 79:66
Spánn – N-Makedónía ......................... 80:44
Staðan:
Spánn 4 4 0 351:244 8
Georgía 5 3 2 385:386 6
Úkraína 4 2 2 314:303 4
N-Makedónía 5 0 5 305:422 0
_ Spánn, Georgía og Úkraína fara í riðil
með Ítalíu, Íslandi og Hollandi á lokastigi
undankeppninnar.
E-riðill:
Ungverjaland – Portúgal..................... 69:68
Svartfjallaland – Frakkland................ 70:69
_ Frakkland 5/0, Svartfjallaland 3/2, Ung-
verjaland 3/2, Portúgal 0/5.
F-riðill:
Búlgaría – Litháen ............................... 70:72
Tékkland – Bosnía................................ 93:81
_ Litháen 5/0, Tékkland 2/3, Bosnía 2/3,
Búlgaría 1/4.
4"5'*2)0-#
BESTA DEILDIN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslandsmeisturum Víkings úr
Reykjavík hefur gengið frábærlega
að undanförnu og hélt gott gengið
áfram þegar liðið heimsótti KR á
Meistaravelli í Bestu deild karla í
knattspyrnu í gærkvöldi. Liðið vann
þá sannfærandi 3:0-sigur, sem er átt-
undi sigur Víkings í röð í öllum
keppnum og sá fjórði í deildinni eftir
brösótta byrjun á tímabilinu.
Í gærkvöldi tóku Víkingar foryst-
una eftir hálftíma leik. Daninn
Kennie Chopart braut þá á Viktori
Örlygi Andrasyni innan vítateigs og
vítaspyrna dæmd. Annar Dani, Niko-
laj Hansen, steig á vítapunktinn og
setti boltann á mitt markið, í grennd
við Beiti Ólafsson í marki KR, sem
skutlaði sér til vinstri en tókst ekki að
ná til boltans. Staðan því 1:0 í leikhléi.
Í síðari hálfleik tvöfölduðu gest-
irnir forystuna. Þar var að verki
Pablo Punyed, fyrrverandi leikmaður
KR, á 64. mínútu. Skoraði hann beint
úr aukaspyrnu utan af hægri kanti.
Svo virtist sem skotið ætti að vera
formsatriði fyrir Beiti að verja en
honum tókst einungis að verja bolt-
ann klaufalega í netið.
Á 82. mínútu kom svo þriðja og síð-
asta mark Víkings. Pablo tók þá
hornspyrnu frá hægri á nærstöngina,
Karl Friðleifur Gunnarsson náði að
fleyta boltanum á fjærstöngina. Þar
beið átekta Halldór Smári Sigurðs-
son sem tók vel við boltanum og
þrumaði honum hnitmiðað upp í fjær-
hornið.
Glæsilegt mark og sögulegt fyrir
hinn 33 ára gamla Halldór Smára, en
um var að ræða hans fyrsta mark í
efstu deild á ferli sínum í 164. leikn-
um í deildinni.
Með sigrinum fór Víkingur upp í
annað sæti deildarinnar og er nú átta
stigum á eftir toppliði Breiðabliks.
Öruggt hjá Vík-
ingi gegn KR
- Átta sigrar Víkings í röð - Fyrsta
mark Halldórs kom í 164. leiknum
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Fyrsta markið Halldór Smári Sigurðsson í þann mund að skora sögulegt
mark sitt í gærkvöldi, sitt fyrsta í efstu deild á ferlinum.
Egyptinn Mohamed Salah, sókn-
armaður enska knattspyrnufélags-
ins Liverpool, hefur skrifað undir
nýjan samning sem gildir til sum-
arsins 2025. Þetta staðfesti félagið
á samfélagsmiðlum sínum í gær.
Fyrri samningur Salah, sem gekk
í raðir Liverpool sumarið 2017, átti
að renna út sumarið 2023 og höfðu
viðræður um nýjan samning staðið
lengi yfir og nokkrum sinnum siglt
í strand. Samkvæmt Sky Sports fær
Salah um 350.000 pund í vikulaun,
sem gerir hann að launahæsta leik-
manni í sögu félagsins.
Salah fram-
lengdi til 2025
AFP/Anne-Christine Poujoulat
Markahrókur Mohamed Salah verð-
ur áfram í rauðu næstu þrjú árin.
Enska knattspyrnufélagið New-
castle United staðfesti í gær kaup á
hollenska miðverðinum Sven Bot-
man. Botman kemur frá franska fé-
laginu Lille, þar sem hann hefur
leikið undanfarin tvö ár. Skrifaði
hann undir fimm ára samning.
BBC Sport greindi frá því í síð-
ustu viku að kaupverðið fyrir hinn
22 ára gamla Botman væri 30 millj-
ónir punda. Hann hóf að vekja at-
hygli þegar hann lék frábærlega
með Lille tímabilið 2020/2021, er
liðið stóð óvænt uppi sem Frakk-
landsmeistari.
Newcastle fær
sterkan miðvörð
AFP/Denis Charlet
Newcastle Hollendingurinn Sven
Botman er stór og stæðilegur.
Ekkert lið virðist ætla að stinga af í
toppbaráttu 1. deildar karla í knatt-
spyrnu, Lengjudeildarinnar. Í gær-
kvöldi lauk 9. umferð deildarinnar
og þar héldu liðin áfram að reyta
stig hvert af öðru.
Selfoss heldur toppsætinu þrátt
fyrir að hafa gert 2:2-jafntefli við
Grindavík þar í bæ. Valdimar Jó-
hannsson og Gonzalo Zamorano
komu Selfyssingum yfir í tvígang en
Símon Logi Thasapong og Dagur
Ingi Hammer Gunnarsson jöfnuðu
metin fyrir heimamenn í bæði skipt-
in.
Fylkir fór þá illa að ráði sínu í 2:2-
jafntefli gegn Aftureldingu í Ár-
bænum. Fylkir komst í 2:0 í fyrri
hálfleik með mörkum frá Mathias
Laursen og Orra Sveini Stefánssyni.
Snemma í síðari hálfleik minnkaði
Elmar Kári Enesson Cogic muninn
og í uppbótartíma jafnaði Aron Elí
Sævarsson metin með marki úr víta-
spyrnu. Fylkir fór með jafnteflinu
upp fyrir HK í þriðja sætið þar sem
liðin eru jöfn að stigum, en HK á leik
til góða.
Í Safamýrinni unnu Kórdrengir
þá góðan 1:0-sigur á Gróttu, sem er
áfram í öðru sæti þrátt fyrir ósig-
urinn. Óskar Atli Magnússon skor-
aði sigurmarkið snemma leiks.
Á Ísafirði var svo boðið upp á
markaveislu þegar nýliðar KV
gerðu sér lítið fyrir og unnu sterkan
4:2-sigur. Gestirnir úr Vestur-
bænum komust raunar í 4:0 eftir
rétt rúmlega klukkutíma leik. Björn
Axel Guðjónsson skoraði tvívegis í
fyrri hálfleik og Grímur Ingi Jak-
obsson gerði slíkt hið sama snemma
í þeim síðari. Deniz Yaldir minnkaði
muninn fyrir Vestra skömmu eftir
fjórða mark KV og Pétur Bjarnason
bætti svo við öðru marki stuttu
seinna. gunnaregill@mbl.is
Áfram allt í járnum
í Lengjudeildinni
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
8 Gonzalo Zamorano er markahæst-
ur í Lengjudeildinni með átta mörk.
Norðurlandamótið í áhaldafim-
leikum í flokkum fullorðinna og
unglinga fer fram í Versölum, húsi
Gerplu í Kópavogi, í dag og á morg-
un. Keppni hefst kl. 9.30 í dag og
lýkur um kl. 16 á morgun með verð-
launaafhendingu.
Á mótið mætir allt fremsta fim-
leikafólk Norðurlanda og keppir
um titla í liðakeppni, fjölþraut ein-
staklinga og á einstökum áhöldum.
Íslenska kvennaliðið skipa þær
Agnes Suto, Dagný Björt Axels-
dóttir, Hildur Maja Guðmunds-
dóttir, Nanna Guðmundsdóttir og
Thelma Aðalsteinsdóttir úr Gerplu
og þær Guðrún Edda Min Harðar-
dóttir og Margrét Lea Kristins-
dóttir úr Björk.
Íslenska karlaliðið skipa þeir
Arnór Daði Jónasson, Atli Snær
Valgeirsson, Jónas Ingi Þórisson,
Martin Bjarni Guðmundsson, Val-
garð Reynisson og Valdimar Matt-
híasson úr Gerplu og Jón Sigurður
Gunnarsson úr Ármanni.
Ljósmynd/Auður Sigbergsdóttir
Versalir Thelma Aðalsteinsdóttir, Íslandsmeistari kvenna í fjölþraut, er í
íslenska landsliðinu sem keppir á Norðurlandamótinu um helgina.
Norðurlandamótið í
Versölum um helgina
KR – VÍKINGUR R. 0:3
0:1 Nikolaj Hansen 31.
0:2 Pablo Punyed 64.
0:3 Halldór Smári Sigurðsson 82.
M
Aron Kristófer Lárusson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Pontus Lindgren (KR)
Davíð Örn Atlason (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Kristall Máni Ingason (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Pablo Punyed (Víkingi)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 6.
Áhorfendur: 570.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og grein um leikinn, – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.