Morgunblaðið - 02.07.2022, Qupperneq 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
Jóna Gréta Hilmarsdóttir
jonagreta@mbl.is
„Hugmyndin fór af stað sem tilfærsla á
Húnaflóanum í rauntímanum yfir í hugleið-
ingar um raunveruleika flóttafólks,“ segir
Finnbogi Pétursson myndlistarmaður um
sýningu sína sem opnuð verður á morgun í
Hillebrandshúsinu í gamla bænum á Blöndu-
ósi. Þar sýnir Finnbogi eitt verk sem hefur
fengið nafni Flói. Finnbogi er þessa dagana
staddur hjá gömlu fjárhúsunum á Kleifum
við Blönduós sem Áslaug Thorlacius og
Finnur Arnar Arnarson reka.
„Sýningin er eitt verk sem samanstendur
af mannlausum fleka og gömlu fiskhúsi. Um
borð í flekanum er nemi sem nemur undir-
ölduna í flóanum og sendir þær upplýsingar
upp á land. Inn í húsinu er svo búnaður sem
hermir eftir undiröldunni.
Um er að ræða 360 gráðu grænan laser
sem hreyfist í takt við flekann. Flekinn er
fyrir utan Blönduós, skammt frá landi, í
sjónfæri. Ef þú stendur á þessum fleka úti á
sjó þá ertu á fleygiferð eins og tappi ofan á
öldunum en inni í húsinu snýst þetta við,
sjóndeildarhringurinn er á fleygiferð á með-
an þú ert kyrr.
Verkið er tilfærsla á þessu fljótandi lands-
lagi og sjóndeildarhringnum úti á flóanum.
Það sem er raunverulega að vagga þér er
hjartsláttur jarðarinnar sem er slær og býr
til öldurnar,“ segir Finnbogi um verkið.
Finnbogi segir Flóa líka tengjast því sem
hann hefur verið að gera undanfarin ár,
þ.e.a.s. vatnsverk þar sem hann reynir að
stjórna því hvernig vatnið hagar sér og búa
til hljóðmynstur í vatninu.
Hann segir verkið vera einfalt en að út-
færslan á því sé flókin. „Við vorum áðan að
koma í land, eftir að hafa fleytt út tveimur
400 kg steinklumpum sem eiga að halda
flekanum á sínum stað. Við erum auðvitað
berjast við náttúruöflin, aldan getur verið há
þarna. Ég er með Halldór Eldjárn, mjög
færan tæknimann með mér og við erum að
ganga frá tækjabúnaðinum inni í vatnshelda
tunnu sem verður á flekanum en svo þarf
auðvitað rafmagn til þess að keyra þetta.
Búnaðurinn þarf að vera í tvo mánuði úti á
flekanum.“
Listaverk í rauntíma
Spurður um hugmyndin á bak við við
verkið svarar Finnbogi: „Hugmyndirnar að
verkum mínum í gegnum tíðina koma úr
mismunandi áttum. Ég sæki oft innblástur í
fyrri verk, bæti svo einhverju nýju við en
svo þróast það alltaf. Í þessu tilfelli gerði ég
áður verk sem að heitir „Horizon“ og er
rauður laser. Ég sýndi það verk á Eskifirði
hérna um árið. Á þeirri sýningu bjó ég til
teikningar af veiðibönkum og sjávarlands-
laginu. Þar setti ég svo upp hjól sem lyftu
geislanum upp og niður.
Í verkinu Flói er ég með mótor sem er
tengdur við tölvu sem les allar upplýsingar
sem koma frá flekanum og hreyfa lasergeisl-
ann á sama hátt og flekinn. Þú sérð þennan
360 gráðu græna laser fara í allar áttir alveg
eins og er að gerast úti á flekanum. Þannig
þróaðist hugmyndin úr því að vera skáldað-
ur tilbúningur yfir í að fylgja rauntíma.
Þetta er að gerast á þeirri stund sem þú
horfir á þetta gerast inni í húsinu. Ákvörð-
unin um að útbúa fleka undir búnaðinn staf-
aði af því að mig langaði að vísa í það sem er
að gerast í heiminum, þegar fólk leitar allra
leiða til að flýja heimkynni sín. Á sýningunni
getur fólk reynt að setja sig í spor flótta-
fólks, sem er statt á fleka.“
Engin túlkun rétt eða röng
Finnbogi segist sjaldan gefa upp hvað það
er sem að hann leitast við að ná til að halda
öllu möguleikum opnum fyrir þann sem að
kemur og upplifir verkið: „Það er alltaf
hættulegt, að segja alla söguna af því þá
getur maður komið í veg fyrir áhorfandinn
leyfi sér að fara í hugarferðalög. Tengingin
við flóttafólkið er í raun bara ein hugleiðing
en hún er framarlega í mínum huga út af
allri umfjölluninni núna og auðvitað graf-
alvarlegt mál.“
Að sögn Finnboga opnar hann aðra sýn-
ingu 15. júlí. Sýningin verður í Alþýðuhúsinu
á Siglufirði í Kompunni hjá henni Aðalheiði
S. Eysteinsdóttur. Þar verður hann með tvö
verk þar á meðal fyrrnefnda verkið Horizon.
Finnbogi er fæddur árið 1959. Hann nam
við Myndlista- og handíðaskóla Íslands í
Reykjavík og Jan van Eyck Akademie í
Maastricht í Hollandi. Verk eftir hann má
finna í opinberum söfnum og einkasöfnum
víða um heim og hefur haldið fjölda sýninga
heima og erlendis. Hann var fulltrúi Íslands
á Feneyjatvíæringnum árið 2001.
Sýningin verður opin daglega frá kl. 13 til
18 alla daga vikunnar og stendur til 14.
ágúst.Náttúruöflin Finnbogi segist hafa þurft að berjast við náttúruöflin við gerð verksins Flóa.
Hjartsláttur jarðar áþreifanlegur
- Finnbogi Pétursson myndlistarmaður opnar sýningu í Hillebrandshúsinu í gamla bænum á
Blönduósi á morgun. - Finnbogi sýnir nýtt verk sem heitir FLÓI og er mannlaus fleki og fiskhús
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir opnar
í dag, laugardag, kl. 17 sýninguna
Andrá línunnar/Breathing lines í
Gallery Porti við Laugaveg. Á henni
má sjá málverk sem Anna vann á
þessu ári og samanstanda af þrívídd-
arseríu sem hún hefur verið að vinna
með síðastliðin tvö ár og nýjum af-
brigðum seríunnar. Málverkin eru
unnin í þrívíð form, með akríl á striga
annars vegar og skornum striga hins
vegar þar sem lögð er áhersla á að
einstök smáatriði fái að njóta sín í
gegnum upplifun áhorfandans, segir í
tilkynningu.
„Í síendurteknu ferðalagi línanna á
taflborði strigans myndast streymi,
síbreytilegt flæði. Að vera hér og nú,
horfa, njóta og upplifa þrívíddar
augnablik hins breytilega og óskil-
greinda heims endurtekningarinnar.
Eins og strangflata foss lita forma og
vídda, horfa á andrá ferilsins breytast
eins og gárur í hálffrosnu vatni. Á
milli línanna er svo birtingarmynd
hins geometríska landslags kunn-
ugleikans í hvaða formi sem hún svo
birtist og hvert hún á endanum leiðir
þig. Njóttu ferðarinnar,“ skrifar
Anna í tilkynningu. Hún útskrifaðist
með BA-gráðu í myndlist frá Listahá-
skóla Íslands árið 2009 og MA-gráðu
í listkennslu frá sama skóla árið 2020.
Hin síðustu ár hefur Anna verið að
vinna með óhlutbundin þrívíð form
málverksins í anda strangflatarlistar
sem hún nálgast á ljóðrænan hátt, að
því er fram kemur í tilkynningu.
Þrívíð form Eitt af verkum Önnu Álfheiðar á sýningunni.
Smáatriði fái að njóta sín
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Djúsí
andasamloka
Þín upplifun skiptir okkur máli