Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 02.07.2022, Qupperneq 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 H jálmar Freysteinsson (1943-2020) læknir á Akureyri, ættaður úr Mývatnssveit, var með allra snjöllustu hagyrðingum á sinni tíð og með köflum skáld því vissu- lega orti hann kvæði sem staðfesta það. En þekktastur er hann fyrir vís- ur sínar, ferskeytlur og limrur, þar sem hann fangar viðfangsefni líðandi stundar með gamansemi, oft græskulausri en býsna oft með broddi til að stinga á kýlum, jafnvel breiðsíðu af háði en hvergi illsku. Ótal vísur birti hann á Fésbókinni að gefnu tilefni. Vís- unum er raðað í allmarga bálka eftir efni og undir fyrirsögn, síðast kvæðum hans allt frá skólaárum í MA og má þá þegar sjá trausta- tök hans á máli og brag. En í hverju er snilld hans fólg- in? Ragnar Ingi gerir grein fyrir því í inngangsorðum. Hann gat „fært í óvæntan búning hversdagslega hluti“ (12) og hafði slík tök á máli að nánast hvergi er knúsuð lína og orð- færi eins og tíðkast í daglegu máli og þó með góðum brag. Hann var myndvís í betra lagi og kunni betur en flestir að yrkja vísu sem er ein heild, engin gjá milli fyrri og seinni parts. Oft bregður hann á orðaleik. Hér má taka dæmi: „Hallfríður litla á Læk / er liðug, kröftug og spræk. / Hoppaði í gær/yfir heysátur tvær / og fékk meira en 500 læk“ (25). Víða er vísað í annan kveðskap svo sem í Drögum að jólasálmi: „Í dæld upp við Dvergastein / rakst Dísa óvænt á Svein. / Þeim var ekki rótt/vöktu þá nótt. / Sú nótt var svo ágæt ein“ (27). Þetta er algengt stílbragð í kveð- skap Hjálmars. Oft setur hann orð í óvænt samhengi sbr. síðustu línuna í Samlegðaráhrifum: „Þegar Vilborg eignaðist vin / var sem hið sterkara kyn / gerð́ana svera. / Hún sagði það vera/ samlegðaráhrifin“ (36). Fugl- inn í fjörunni er sama sinnis: „Harla sæt verður hefndin þá, / harðlega barist, flogist á / þegar ég loks í fjöru finn / fuglinn sem skeit á bílinn minn“ (54). Þorrinn er úrvalsdæmi fyrir frábæra hagmælsku Hjálmars, einfaldleikinn grípandi og stemn- ingin notaleg: „Sunnanþeyr og þurrt á grasi / í þorraveðri undurhlýju. / Í útvarpinu Ashkenazy / er að leika prelúdíu“ (59). Önnur vísa jafn- einföld að formi til er um Hákon Aðalsteinsson látinn, skógarbónda og kunnan hagyrðing: „Megi ljóð þau lifa og vaka / er las hann sinni þjóð. / Um hann verður engin staka / alveg nógu góð“ (236). Þetta er ein- staklega vel kveðið og sýnir að Hjálmar átti fleiri strengi í sálu sinni en gáska og kerskni. Í Glímulýsingu er ort um átök í Framsóknar- flokknum með tilvísun í Sigtrygg Sigurðsson glímukappa: „Fast er glímt á Framsóknarþingi, / falla á sitjandann / Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi. / Sigtryggur vann!“ (80). Náttúruvernd II er um sýnd- armennsku: „Þannig lögin þarf að hafa / að þetta standi skýrt: / Nátt- úran skal njóta vafa / nema það sé dýrt“ (92). Nokkrar vísur eru tileink- aðar aðsópsmiklum stjórnmála- manni sem sagður var búa á eyði- jörð. Þjóðmenning: „Aðventan færir annir mörgum, /ekki er þjóðmenn- ingin dauð. / Einn er heima á Hrafnabjörgum, / hann er að gera laufabrauð“ (98). Bók bókanna er um þingmann sem komst í fréttir fyrir mikinn akstur: „Frá því greint í fréttum var, / fagnandi því við tók- um / að akstursdagbók Ásmundar / er með stærstu bókum“ (99). Hrafn Gunnlaugsson var dagskrárstjóri um skeið hjá RÚV þegar Heimir Steinsson var útvarpsstjóri. Þeir deildu stundum: „Ýmsum verður ekki um sel, / er það helst að meini / að á sér Krummi ýfir stél, / einnig brýnir gogginn vel / og heggur hold frá beini / á Heimi undan Steini“ (104). Það skellur í tönnum í Kjara- málum I: „Þraut er að ala þurfta- freka, / þess vegna er og var / ævin- lega rétt að reka / ræstingakonurn- ar“ (11). Síðasta vísan í Hálfkveðnum (jóla) vísum er á þessa leið: „Í janúar svo Jón og Gerður / jóla-VISA-reikning fá. / Ekki víst hvort alltaf verður / af- skaplega gaman þá“ (131). Margar vísna Hjálmars nærast eins og þessi á vísun í annað samhengi eða útúr- snúningi eins og í Rakaralimru: „Af- bragðs rakari Ragnar var / og raup- sögur hans voru magnaðar, / margoft hann sagði, / mæddur í bragði: / „Flasa er aldrei til fagn- aðar““ (155). Þannig mætti lengi telja. Loks skal nefna Kostnað við dýrt kveðnar vísur: „Í vísum dýrum vandi býr, / vitið flýr er rímið dafn- ar / svo efnisrýr og ekki skýr / út́ í mýri stakan hafnar“ (199). Þetta er laukrétt. Þetta er allstór bók enda mað- urinn mikilvirkur og hnyttinn.Víst hefði mátt grisja úrvalið meira en breytir samt ekki því að bókin er í heild sinni skemmtilestur. Margar vísurnar eru aldursmerktar miðað við birtingardag á Facebook en til- efni eru ekki tilgreind og ekki vefst fyrir fréttaþyrstum að finna kveikj- una. Þó er það svo, eins og útgef- endur vekja máls á, að þegar „fram líða stundir má jafnvel hafa það sem samkvæmisleik að reyna að komast að því, með hjálp dagsetninganna og netsins, hvert tilefnið var“ (8). Þetta er ljómandi góð bók fyrir unnendur vísnakveðskapar. Hagyrðingur Hjálmar Freysteinsson (1943-2020), læknir á Akureyri, var með allra snjöllustu hagyrðingum á sinni tíð, skrifar gagnrýnandi. Að hitta naglann á höfuðið Ljóð og lausavísur Ekki var það illa meint bbbbn Eftir Hjálmar Freysteinsson. Úrval. Ritstjórar: Höskuldur Þráinsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson. Innbundin, 241 bls. og að auki nótur við tvö lög og Tabula memoralis. Bókaútgáfan Hólar, 2021 SÖLVI SVEINSSON BÆKUR Fimmtu tónleikar sumarsins í sum- ardjasstónleikaröð Jómfrúarinnar við Lækjargötu í Reykjavík fara fram í dag, laugardaginn 2. júlí. Á þeim kemur fram djasssöngkonan Rebekka Blöndal með ásamt tríói. Bjarni Már Ingólfsson spilar á gít- ar, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Á efnisskránni verða lög sem Ella Fitzgerald og gítarleik- arinn Joe Pass fluttu á sínum tíma. Tónleikarnir fara að venju fram utandyra á Jómfrúartorginu, hefj- ast kl. 15 og standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Djasssöngkona Rebekka Blöndal. Rebekka og tríó á Jómfrúnni Næstu tónleikar tónlistarhátíð- arinnar Engla og manna í Strandarkirkju fara fram á morgun, sunnu- dag, kl. 14. Kemur fram ung vonar- stjarna, eins og því er lýst í til- kynningu, Bryndís Guðjónsdóttir sópran, og með henni leikur Ing- unn Hildur Hauksdóttir á píanó og orgel. Titill tónleikanna er Með vængjaþyt og söng og á efn- isskránni íslensk þjóðlög og söng- lög eftir Þórarin Jónsson, Sig- valda Kaldalóns, Pál Ísólfsson, Þórarin Guðmundsson og Gunnar Þórðarson, ásamt verkum eftir Pergolesi, Orff, Salerno og Alya- byev. Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitar- félaga og Tónlistarsjóði. Með vængjaþyt og söng í kirkjunni Bryndís Guðjónsdóttir Tónlistarkonan Sjana Rut hefur nú gefið út seinni hluta tvískiptrar hljómplötu sinnar, Broken/ Unbreakable, en sú fyrri kom út í janúar og sagði Sjana frá henni í viðtali hér í Morgunblaðinu. Platan fjallar um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir sem barn. Seinni platan kom út í gær, 1. júlí, og hefur hún að geyma 17 lög, líkt og sú fyrri. Segir Sjana Rut plötuna einkennast af styrk og sjálfstrausti og einnig töffaraskap og húmor en þó sé hún berskjölduð á köflum. Plötunni lýsir hún sem konseptplötu þar sem ákveðin saga sé í gangi frá byrjun til enda og hlustandinn ferðist með henni frá fortíð á Broken yfir til samtímans á Unbreakable. Sjana hefur auk þess málað málverk fyrir hvert lag plötunnar og einnig umslag hennar. Seinni hluti tvískiptrar plötu gefinn út Konseptplata Sjana Rut hefur gefið út konseptplötu í tveimur hlutum og hefur hvor að geyma 17 lög. Tónlistarhátíðin Allt í blóma verður haldin í Hveragerði nú um helgina og boðið upp á tónlist af ýmsu tagi. Er hátíðin sögð fyrir alla fjölskyld- una og fer hún fram í Lystigarðinum í bænum. Í dag verður boðið upp á barnahá- tíð kl. 13 og kl. 15 leikur hljómsveit saxafónleikarans Kristins Svav- arssonar og sérstakur gestur verður kontrabassaleikarinn og söngkonan Dagný Halla Bassadóttir. Kl. 20 hefjast tónleikar þar sem fram koma Jón Jónsson, Stefán Jak- obsson, Jógvan Hansen, Unnur Birna Björnsdóttir og Guðrún Árný ásamt hljómsveit. Í tjaldi á svæð- inu verður dans- leikur frá kl. 23 til tvö um nóttina og koma þar fram Stefán Hilm- arsson og Gunni Óla, ásamt fleir- um. Á morgun treð- ur hljómsveitin Góss upp í Reykjadalsskálanum en hana skipa Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar og Sigurður Guð- mundsson. Tónlistarhátíð fyrir alla fjölskylduna Unnur Birna Björnsdóttir Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380 Sofðu betur í hreinum rúmfötum STOFNAÐ 1953

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.