Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 10
10 Neytendablaðið // Maí 2021
Ýmis algeng efni sem notuð eru í snyrti- og húðvörur eru
óæskileg og sum geta beinlínis verið skaðleg. Nú gætu lesendur
spurt með réttu hvers vegna slík efni séu þá ekki bönnuð. Málið
er ekki alveg einfalt. Aragrúi kemískra efna er nú á markaði og
hafa mörg hver ekki verið rannsökuð með tilliti til áhrifa á heilsu
fólks og umhverfi. Ástæðan er sú að um áratugaskeið þurftu
framleiðendur ekki að sýna fram á að ný efni væru örugg og
hafa neytendur og umhverfið þurft að greiða dýru verði fyrir það
kæruleysi. Regluverkið hefur verið lagað til muna og í dag eru
kröfur til framleiðenda mun strangari auk þess sem stöðug vinna
er í gangi við að meta þau efni sem eru í umferð. Þó eru ennþá
alltof mörg kemísk efni í neysluvörum sem sérfræðingar telja að
fólk ætti að forðast.
Danir í forystu
Dönsku neytendasamtökin Forbrugerrådet Tænk hafa um árabil
staðið fyrir vitundarvakningu um skaðleg efni í neysluvörum.
Í dag fer baráttan fram undir merkjum Tænk Kemi sem sett
var á laggirnar árið 2015 með veglegum styrk frá stjórnvöldum.
Markmið Tænk Kemi er að fræða neytendur um skaðleg efni
í neysluvörum, gera rannsóknir á neysluvörum með tilliti til
efnainnihalds og berjast fyrir því að skaðleg efni verði bönnuð.
Claus Jørgensen er verkefnastjóri hjá Tænk Kemi og hefur unnið
að þessum málum frá árinu 1998. Í samtali við Neytendablaðið
segir hann að margt hafi breyst til batnaðar á þessum tíma, bæði
séu neytendur orðnir mun upplýstari og löggjöfin alltaf að batna
Óæskileg efni
í snyrti- og
húðvörum
Claus Jørgensen er verkefnastjóri hjá Tænk Kemi.
og meiri ábyrgð sett á framleiðendur að sýna fram á að efni séu
skaðlaus. Jørgensen segir að dönsk stjórnvöld hafi að mörgu leyti
verið leiðandi í þessum málum. Hann rifjar upp þegar Danir
tóku forystu í baráttunni við paraben, sem eru algeng rotvarn-
arefni í snyrtivörum: „Framleiðendur voru ekki par hrifnir af
gagnrýni okkar á þessum tíma og þau voru ófá símtölin þar sem
við fengum að heyra það. Nú 20 árum síðar hefur verið staðfest
að þessi efni eru hormónaraskandi og ekki ólíkegt að sumar
tegundir, svo sem Butylparaben, verði á einhverjum tímapunkti