Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 23

Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 23
Neytendablaðið // Maí 2021 23 Nú opnast síða þar sem kostirnir við að vera í áskrift eru tíundaðir. Notandi þarf að velja hnapp sem ekki fer mikið fyrir; „Manage membership“. Opnast þá önnur síða með nokkrum valkostum, m.a. hnappur sem á stendur „End membership“ (segja upp áskrift) ásamt aðvörun um að viðkomandi missi öll fríðindi sé áskrift sagt upp. Hér þarf að velja „End membership“. Opnast þá enn einn gluggi og að þessu sinni mætir notanda gulur þríhyrningur og texti; „Items tied to your Prime membership will be affected if you cancel your membership“ (uppsögn mun hafa áhrif á vörur sem tengjast Prime áskrift þinni). Ekki er útskýrt með hvaða hætti uppsögn getur haft áhrif á aðrar vörur eða þjónustu sem tengist Prime-aðild eða um hvaða aðrar vörur/þjónustu er að ræða. Þessari aðvörun fylgir önnur álíka; „By cancelling, you will no longer be eligible for your unclaimed Prime exclusive offers“ (Með því að segja upp áskrift munt þú ekki lengur eiga rétt á sérstökum tilboðum Prime sem þú hefur ekki sótt). Ferlið á þessum tímapunkti er fullt af slíkum viðvörunum sem notandi þarf að skruna í gegnum til að komast áfram í úrsagnaferlinu. Verði honum á að smella á einhverja þeirra viðvarana sem blasa við opnast ný síða og uppsagnarferlið stöðvast og þarf að hefja það upp á nýtt. 3 5 4

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.