Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 13

Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 13
Neytendablaðið // Maí 2021 13 Kraftur fjöldans fyrir dóm - þátttaka þín er bráðnauðsynleg Það sem í fljótu bragði kunna að virðast léttvægir hagsmunir margra lúta gjarnan í lægra haldi fyrir miklum hagsmunum fárra. Og hinn óskipulagði almenningur er oft og tíðum hlunnfarinn án þess að geta rönd við reist. Neytendasamtökin eru líklega ein- hver kraftmesti vettvangur sem völ er á til þess að sporna gegn yfirburðastöðu valdhafa, sérhagsmunahópa og stórfyrirtækja. Það er mikilvægur þáttur í starfsemi Neytendasamtakanna að geta farið með fordæmisgefandi mál fyrir dómstóla. Neytenda- samtökin hafa í gegnum tíðina af og til rekið mál fyrir dómstól- um sem varðað hafa hagsmuni stórra hópa. Einnig eru dæmi þess að samtökunum hafi verið stefnt. Á fyrsta starfsári samtakanna, árið 1953, vöruðu samtökin við þvottaefninu Hvile-Vask því rannsókn samtakanna leiddi í ljós að efnið innihélt óhæfilega mikið af bleikiefni. Innflytjandinn stefndi samtökunum fyrir atvinnuróg og hafði sigur fyrir sjó- og verslunardómi. Neytendasamtökin áfrýjuðu dómnum til Hæsta- réttar sem sneri dómnum við og sýknaði Neytendasamtökin. Árið 1959 kærðu samtökin Osta- og smjörsöluna fyrir slælegar merkingar og fyrir að selja smjör undir heitinu „gæðasmjör“. Var Osta- og smjörsalan sakfelld fyrir gæðasmjörsnafngiftina, en sýknuð af kærunni um að merkingar með upplýsingum um framleiðanda og framleiðslustað skorti, enda engin lög eða reglur til um slíkt á þeim tíma. Í kjölfarið setti þó ráðherra reglur af þessu tagi. Sama ár stefndu Neytendasamtökin heildverslun fyrir villandi upplýsingar um peysuskyrtu sem sögð var ítölsk en var í raun framleidd á Íslandi og úr íslenskri ull. Var heildsalanum gert að greiða sekt. Segja má að tilveran hafi snúist frá þeim tíma, því nú er fremur gagnrýnt að innfluttar vörur séu seldar sem íslenskar, til dæmis „íslensku“ lopapeysurnar sem framleiddar eru í Asíu. Ekki má gleyma ólöglegu samráði olíufélaganna sem hófst árið 1993 og stóð til ársins 2001. Neytendasamtökin stóðu að prófmáli sem vannst bæði fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Í framhaldinu sóttu Neytendasamtökin bætur fyrir þá neytendur sem sýnt gátu fram á tjón sitt. Enn á ný ganga Neytendasamtökin fram fyrir skjöldu og stefna nú bönkunum eins og greint er frá á bls. 4-5. Samtökin hafa í rúmt ár átt í viðræðum við þá um skilmála og framkvæmd lána með breytilegum vöxtum, sem samtökin telja að standist ekki lög. Ekki hefur umleitunin skilað árangri og því er nauðsynlegt að láta dómstóla skera úr um ágreininginn. Neytendasamtökin telja að í málinu birtist rótgróin misnotkun aðstöðumunar og yf- irburðastöðu fyrirtækja gagnvart neytendum, sem er einmitt það sem réttarbótum í neytendamálum hefur verið ætlað að bæta úr í gegnum árin. Fyrirtæki sem búa yfir yfirburða fjárhagsstöðu og þekkingu gera neytendum að samþykkja einhliða og ósanngjarna skilmála og neytendur sem einstaklingar eru ekki í aðstöðu til að bera hönd fyrir höfuð sér. Það er grundvallaratriði að samtök neytenda hafi styrk til að sækja mál fyrir dómstólum og geti tekið til varna þegar svo ber undir. Sundraðir hagsmunir eru léttvægir, en sameinaðir eru þeir kraftmikið hreyfiafl sem knýr fram jákvæðar breytingar, eins og dæmin sanna. Það er ákaflega mikilvægt að við sýnum samstöðu með því að taka þátt í að sækja rétt okkar og knýja þannig fram breytingar sem gagnast öllum neytendum. Því hvet ég þig, kæri neytandi, til að taka þátt í að breyta lánaumhverfinu og skrá þig til leiks á vaxtamalid.is. Breki Karlsson Frá formanni

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.