Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 12

Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 12
12 Neytendablaðið // Maí 2021 Smáforritið Kemiluppen kom út árið 2015 en það hjálpar neytendum að forðast óæskileg efni í snyrti- og húðvörum. Strikamerki vörunnar er skannað með farsíma og þá birtast á skjánum upplýsingar um það hvort varan flokkast sem A, B eða C. Þar sem markaðurinn með snyrti- og húðvörur hérlendis er mjög líkur þeim danska eru væntanlega flestar vörur nú þegar í gagnagrunni Kemiluppen. Jørgensen segir að Kemiluppen sé hannað fyrir danska neytend- ur en öllum sé frjálst að nota appið. Hins vegar geta bara Danir sent inn nafn á vöru sem ekki er í gagnagrunninum. Tænk Kemi skoði þá innihaldslýsingu, gefi vörunni einkunn og setji hana inn í grunninn. Í dag eru alls 20.000 vörur í Kemiluppen. Hægt er að hlaða appinu niður á kemiluppen.dk Ilmefni hafa verið sérstaklega undir smásjánni enda hefur ilmefnaofnæmi færst í aukana. Ótal vörur innihalda ilmefni og er sérstakt áhyggjuefni að efnin séu notuð í vörur ætlaðar börnum. Börn eru viðkvæmari fyrir óæskilegum áhrifum sem ilmefni geta valdið og geta myndað með sér ilmefnaóþol. Ekki er ráðlagt að nota t.d. bleyjur, krem, blautþurrkur og þess háttar vörur sem innhalda ilmefni enda engin ástæða til. Úrvalið af vörum án þessara efna er orðið mjög gott í dag enda aukin krafa frá neytendum um að geta valið vörur án ilmefna. Samkvæmt reglum er skylt að merkja á umbúðir ef vara inniheldur eitt af þeim 26 ilmefnum sem Evrópusam- bandið hefur skilgreint sem ofnæmisvaldandi. Þetta eru efni með flóknum og löngum heitum, eins og Butylphenyl methylpropional, d-Limonene og Hydroxycitronellal, sem fæstir neytendur leggja á minnið. Neytendur sem vilja alfarið forðast ilmefni geta notað Kemiluppen smáforritið og ætti þá einungis velja vörur sem fá A í einkunn. Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Í Svansmerktum vörum ætluðum börnum eru engin ilmefni leyfileg en í öðrum Svansmerktum snyrti- og húðvörum er ekki leyfilegt að nota ilmefni sem skilgreind hafa verið sem ofnæmisvaldandi. Kemiluppen appið - þannig forðast þú óæskileg efni Ilmefni geta valdið ofnæmi

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.