Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 14

Neytendablaðið - 01.05.2021, Side 14
14 Neytendablaðið // Maí 2021 Það kannast líklega flestir við að hafa verið að tala í símann um eitthvert ákveðið málefni – tökum sem dæmi íþróttaskó – og stuttu seinna dúkkar upp auglýsing á Facebook um íþróttaskó. Það er engu líkara en síminn hleri hvað þú segir og noti síðan upplýsingarnar til að selja þér einmitt það sem þig langar í. En er eitthvað til í þessum staðhæfingum? Er raunverulega hægt að hlera símtöl án þess að fólk viti af því? Bandarísku neytenda- samtökin Consumer Reports skoðuðu málið. Mögulegt en ekki praktískt Það er tæknilega mögulegt að símar og smáforrit taki upp samtöl fólks að því forspurðu og furðu margir telja reyndar að sú sé raunin. Consumer Reports kannaði viðhorf um eitt þúsund Bandaríkjamanna og í ljós kom að 43% aðspurðra töldu að farsíminn þeirra tæki upp samtöl án þeirra samþykkis. Engar rannsóknir hafa þó sýnt fram á að þetta geti verið tilfellið. David Choffnes, prófessor í tölvunarfræðum við Northeastern University, stýrði rannsókn þar sem 17.000 smáforrit fyrir Android-stýrikerfi voru grandskoðuð með aðstoð annarra rann- sóknarforrita. Ekki fannst eitt einasta tilfelli sem sýndi fram á að smáforrit virkjaði hljóðnema í símum eða deildi hljóðgögnum. Það sama má segja um rannsókn öryggisfyrirtækisins Wandera sem einblíndi á vinsæl smáforrit sem þekkt eru fyrir að safna gögnum í miklum mæli, svo sem Amazon, Chrome, Facebook, Instagram og YouTube. Engar vísbendingar fundust um leyniupptökur. Choffnes segir í samtali við Consumer Reports að þegar öllu sé á botninn hvolft – og miðað við tæknina í dag – sé hljóðupptaka ekki mjög hentug leið til að safna gögnum sem nýta á í mark- aðslegum tilgangi. Það myndi krefjast mikillar vinnu að breyta hljóðgögnum yfir á textaform svo hægt sé að greina þau, sér í lagi ef um væri að ræða mikið magn slíkra gagna. Ef slíkar njósnir ættu sér stað, og það án þess að skilja eftir sig nokkra slóð, væri viðkomandi líklega að eltast við stærri fiska en hinn almenna neytanda. Til séu langtum betri aðferðir til að safna upplýsingum um neytendur en að hlera símtöl þeirra. En hvernig stendur þá á því að svo margir telja sig sjá auglýs- ingar sem rekja megi til einkasamtala? Upplýsingum safnað með ýmsum ráðum Michael Covington, framkvæmdastjóri hjá fyrrnefndu fyrirtæki, Wandera, segir að þótt sýnt hafi verið fram á að hleranir eigi sér ekki stað sé enginn skortur á árangursríkum aðferðum til að afla gagna um neytendur. Staðreyndin er sú að stórfyrirtæki eins og Google, og allt niður í lítil smáfyrirtæki, safna á skipulagðan hátt persónugögnum, svo sem nafni, fæðingardegi og kreditkortaupplýsingum, með því einfaldlega að biðja notendur um þessi gögn. Mörg fyrirtæki rekja einnig staðsetningar fólks með því að nota GPS í símanum eða með nálægð hans við farsímamöstur. Þá fylgist Facebook með hegðun notenda, jafnvel út fyrir Facebook-síðuna sjálfa, með aðstoð vefkóða sem gengur undir nafninu „Facebook Pixel“. Kóðinn hefur verið settur á ýmsar vefsíður á netinu til að fylgjast með því hvaða vefsíður notendur skoða og hvað þeir kaupa í vefverslunum. Í rannsókn Choffnes kom í ljós að 9.000 Android-smáforrit voru í laumi að taka skjáskot og myndbönd af snjallsímanotkun og áframsenda þessar upplýsingar til þriðja aðila. Í einu tilvikinu tók smáforrit upp myndband af snjallsímanotkuninni og deildi því Í heyranda hljóði Er farsíminn að hlusta á þig? - það er harla ólíklegt að mati sérfræðinga

x

Neytendablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.