Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 25

Neytendablaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 25
Neytendablaðið // Maí 2021 25 Eins og komið hefur fram í fréttum hefur stefnumóta- forritinu Grindr verið gert að greiða sekt að upphæð 10 milljón evrur (u.þ.b. einn og hálfur milljarður króna) fyrir að brjóta gegn evrópskum persónuverndarlögum. Þetta er niðurstaða Persónuverndar í Noregi, „Datatilsynet“, sem tók málið til skoðunar eftir kvörtun norsku neytendasam- takanna, Forbrukerrådet. Grindr var fundið sekt um að hafa safnað og deilt persónuupplýsingum til þriðja aðila í markaðslegum tilgangi án þess að hafa til þess heimild frá notendum. Forbrukerrådet hefur beðið Datatilsynet að skoða hvort ekki sé þörf á enn strangari viðurlögum, svo sem: • að upplýst verði hvaða fyrirtæki hafi fengið aðgang að persónuupplýsingum og hvernig þeim hefur verið deilt áfram til annarra fyrirtækja. • að Grindr eyði út öllum gögnum sem hefur verið safnað án heimildar og að þau fyrirtæki sem hafa móttekið þessi gögn geri slíkt hið sama. • að tryggt verði að persónuupplýsingum notenda Grindr sé ekki deilt með öðrum fyrirtækjum. Grindr sektað Nú fer loks að síga á seinni hlutann því þegar hér er komið sögu er hægt að klikka á „End now“ (segja upp núna) eða segja upp frá og með næsta áskriftartímabili. Að lokinni uppsögn fær notandi jafnharðan sendan tölvupóst sem segir „Oh no! Your Prime benefits are ending!“ (Ó nei Prime fríðindi þín heyra brátt sögunni til!). Hér er notandi aftur varaður við því að segja upp áskrift enda tapi hann þá fríðindum. Og svona rétt ef notandandum skyldi í raun ekki hafa verið full alvara með að fara í gegnum allt ferlið þá er stór gulur hnappur í tölvupóstinum, „Continue Prime“ (halda áfram með Prime). Með því að smella á þennan hnapp færist viðkomandi sjálfkrafa aftur í áskrift án þess að gera nokkuð meira. Einn smellur og áskriftin er klár. Amazon Prime kært Forbrukerrådet hefur nú kært Amazon Prime til Forbrukertilsynet (sem er hin norska Neyt- endastofa) fyrir brot á lögum um óréttmæta viðskiptahætti með því að gera áskrifendum erfitt fyrir að segja upp áskrift. Benda samtökin á að ef Forbrukertilsynet fellst á að Amazon hafi brotið lög væri um fordæmisgefandi niðurstöðu að ræða. Sextán neytendasamtök í Evrópu og í Bandaríkjun- um hafa gripið til aðgerða í kjölfar skýrslu Forbrukerrådet og farið fram á það við eftirlitstofnanir í viðkomandi landi að rannsaka hvort og hvernig skuggahönnun er beitt til að blekkja neytendur. Heimild og myndir: Forbrukerrådet 11

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.