Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 26
26 Neytendablaðið // Maí 2021
Amazon trónir á toppnum sem stærsta netverslun í heimi og
hefur gert um árabil. Viðskiptavinir fyrirtækisins hafa eflaust
tekið eftir því að söluvarningi fylgir gjarnan einkunnargjöf
notenda, í formi bæði stjörnugjafar og umsagna í rituðu máli.
Bresku neytendasamtökin Which? hafa afhjúpað umfangsmikið
svindl sem sýnir að jákvæðar umsagnir ganga kaupum og sölum.
Jákvæðar umsagnir til sölu
Þrátt fyrir aðgerðir af hálfu Amazon til að koma í veg fyrir
falsumsagnir sýna rannsóknir Which? að seljendur sem eru með
varning sinn til sölu á Amazon geta haft áhrif á umsagnakerfið
eftir ýmsum leiðum. Samkvæmt reglum Amazon mega seljendur
ekki borga þriðja aðila fyrir jákvæðar umsagnir og verði fyrirtæki
uppvís að slíku grípur Amazon til aðgerða. Samt sem áður fann
Which? fjölmörg fyrirtæki sem sérhæfa sig í sölu á jákvæðum
umsögnum. Þar á meðal er þýska fyrirtækið AMZTigers, sem
hefur á sínum snærum 62.000 kaupmælendur (e. reviewers)
víðsvegar um heiminn, þar af 20.000 í Bretlandi.
„Kaupmælandi: sá sem mælir með vöru
gegn einhvers konar þóknun, með það að
markmiði að fá aðra til að kaupa vöruna.“
Starfsfólk Which? hafði samband við AMZTigers og þóttist
vera seljendur með varning á Amazon. AMZTigers upplýsti að
hægt væri að kaupa stakar jákvæðar umsagnir á 13 pund, en bauð
jafnframt upp á stærri skammta eða 50 umsagnir á 620 pund og
allt upp í 1.000 umsagnir fyrir 8.000 pund; upphæð sem sýnir
að það er greinilega eftir miklu að slægjast. Hjá AMZTigers
fengust einnig þær upplýsingar að hægt væri að tryggja vöru
hið eftirsótta Amazon´s Choice merki á innan við 48 tímum
en merkið fá einungis þær vörur sem hljóta sérstaklega mikil og
góð meðmæli. Samkvæmt könnun sem Which? gerði telja 44%
viðskiptavina Amazon að Amazon´s Choice sé trygging fyrir
einhvers konar gæðatékki af hálfu Amazon. Því fer hins vegar
fjarri og fyrri kannanir Which? hafa þvert á móti sýnt fram á að
vörur af litlum gæðum hafa hlotið Amazon‘s Choice og því er í
raun ekkert að marka merkið.
Ein aðferð sem seljendur nota til að fjölga jákvæðum umsögnum
er að gefa kaupmælendum vörur eða góðan afslátt af varningi.
Dæmi eru um að kaupmælendur geti skráð sig inn á ákveðna
vefsíðu og skoðað þar ýmsar vörur svo sem leikföng, bækur,
æfingatæki og bætiefni. Kjósi þeir að kaupa eitthvað geta þeir
skrifað góða umsögn um vöruna nokkrum dögum síðar. Með
þessu móti lítur kaupmælandi út fyrir að vera raunverulegur
viðskiptavinur og ólíklegt að eftirlitskerfi Amazon, ef það er þá
til staðar, uppgötvi svikin. Kaupmælandi fær fyrir vikið punkta
sem gefa honum færi á að eignast eftirsóttar vörur án endur-
gjalds. Þá nýta seljendur einnig falsumsagnir til að ýta miður
góðum umsögnum neðar og tryggja að góðar umsagnir séu efst
og þannig sýnilegar.
Facebookhópar
Which? hefur í fyrri rannsóknum sínum einnig skoðað lokaða
Facebookhópa sem hafa þann eina tilgang að vera leiðbeinandi
vettvangur þeirra sem sýsla með umsagnir. Ekki þurfti að leita
lengi til að finna 16 hópa í Bretlandi sem telja 200.000 manns.
Til að forðast eftirlit er meðlimum ráðlagt að nota ekki orð eins
og 5 stjörnur, endurgreiðsla o.s.frv. heldur rita orð með táknum í
staðinn, svo sem r*fund og p*y-pal í stað refund (endurgreiðsla)
og PayPal.
Starfsfólk Which? sem stóð að rannsókninni setti upp reikninga
á Amazon, Facebook og PayPal. Því næst fann það falsumsagna-
-Facebookhópa og setti sig þar í samband við nokkra seljendur.
Fimm seljendur bitu á agnið og sendu ráðleggingar um næstu
skref sem voru þau að kaupa tiltekna vöru á Amazon, nota leit-
arstreng og jafnvel leita svolítið fram og til baka, hugsanlega til
að leitin virki trúverðugri. Fyrirmæli voru einnig gefin um góða
umsögn og í sumum tilvikum var farið fram á að umsögnin yrði
sett inn nokkrum dögum eftir kaupin. Ef fyrirmælum var hlýtt
var varan síðar endurgreidd í gegnum PayPal. Í tveimur tilfellum
gaf Which? lélega umsögn og fór seljandi þá fram á að henni
Umsagnir á sölusíðum eins og Amazon geta verið mjög
gagnlegar fyrir neytendur sem eiga eftir að taka ákvörðun
um kaup. Rannsóknir sýna þó að ekki er allt sem sýnist.
Umsögn til sölu!