Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 30

Neytendablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 30
30 Neytendablaðið // Maí 2021 6,4 5,5 5,2 4,3 3,8 3,4 3,4 3,3 2,5 1,9 7,8 7,7 9,3 1,7 1,9 1,3 3,7 8,9 8,3 1,0 8,7 5,3 0,3 8,7 5,4 4,2 3,6 0,3 0,3 2,8 2,5 2,0 2,5 9,0 8,5 6,0 5,0 3,0 2,5 3,5 0,7 4,3 9,9 0,6 2,6 8,6 2,5 5,2 1,2 2,0 nei nei já nei nei nei nei já já nei Heildareinkunn Þrif - 40% Afkölkun - 30% Umbúðir - 20% Rennsli - 10% Inniheldur klór Svansmerkt Framleiðandi Tegund Einkunn er gefin frá 0-10 Myndir birtar með leyfi Råd och Rön og Forbrugerrådet Tænk. Könnunin er hluti af samnorrænu gæðakannanaverkefni sem styrkt er af Evrópusambandinu. Harpic Power Plus Max 10 original Closan Antikalk WC rens Domestos Ultra White Änglamark wc-rens og kalkerner Grøn Balance Toiletrens Ecover Toiletrens Duck Aktiv-Gel Marine Klorin WC gel ocean fresh Duck Foaming Bleach Harpic Eco Toilet Liquid Það er líklega ekki vinsælasta verkefnið á heimilinu að þrífa klósettið. Það er engu að síður óhjákvæmilegt og eflaust ráðast flestir í verkið með klósetthreinsilöginn að vopni. Niðurstöður norrænnar gæðakönnunar á klósetthreinsi sýna að sumar tegundirnar gera lítið sem ekkert gagn á meðan aðrar standa fyrir sínu. Dönsku, finnsku og sænsku neytendasamtökin gerðu gæða- könnun á klósetthreinsi og alls voru 33 tegundir prófaðar. Af þeim fann Neytendablaðið tíu tegundir hér á landi. Heilt á litið má segja að margar tegundir klósetthreinsa geri lítið gagn eða, eins og sænsku Neytendasamtökin Råd och Rön orða það, það mætti allt eins mætti sturta peningnum beint í klósettið. Sú tegund sem kemur best út í þessari gæðakönnun er Harpic Power Plus Max en efnið leysir vel upp óhreinindi og kalk. Closan Antikalk og Domestos Ultra White deila með sér öðru og þriðja sæti. Domestos fær hæstu einkunn allra tegunda fyrir þrif en fær lága einkunn fyrir afkölkun. Athygli vekur að tvær tegundir sem fengu góða einkunn virðast ekki fást hér á landi þótt vörumerkin séu vel þekkt. Er hér um að ræða annars vegar Änglamark – WC rent, sem Råd och Rön valdi sem „bestu kaupin“ þar sem það bæði þrífur vel og er Svansvottað. Verslanir Samkaupa selja reyndar aðra tegund af Änglamark klósetthreinsi, en hann kom mun verr út. Hins vegar fékk klósetthreinsir frá HG góða einkunn. Hér eru seld HG hreinsiefni en Neytendablaðið fann ekki HG klósetthreinsi þar á meðal. Gæðakönnun á klósetthreinsi

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.