Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 2
Efnis-ÍKINGURV 2. tbl. 2017 · 79. árgangur · Verð í lausasölu kr. 1490 S J Ó M A N N A B L A Ð I Ð Sjómenn! Megið þið eiga gleðiríkan Sjómannadag Stýrið af Ingólfi Arnarsyni er ekki týnt. Rabbað við Sigrúnu Sigurjónsdóttur um líf skipstjóradóttur. Hvað varðandi heilsufar sitt á sjómaður að upplýsa þegar hann munstrar sig á skip? Um það fjallar lögmaðurinn Jónas Haraldsson í grein sem hann nefnir, Vísvitandi launung og veik- indaréttur sjómanna. Fyrir ári síðan spurði Víkingur: Hver var Ólafur Sig- urðsson? Hér kemur svarið – loksins myndu sumir segja sem beðið hafa í ofvæni en svardrátturinn á sér skýringu. Getur sjóveiki verið skemmtilegt umfjöllunarefni? Nei, hljómaði svar Víkings, þar til hann las þessa grein Árna B. Árnasonar um „sjóveikina mína“. Ægir Steinn Sveinþórsson lést að morgni annars páskadags eftir snarpa viðureign við krabbamein. Árni Bjarnason minnist góðs drengs. Zipwake, stillanlegt jafnvægiskerfi fyrir báta. Hvort sem það er fyrir áhrif frá Eiríki Sigurðssyni eða annað þá vill svo til að hér er fjallað um svika- mál sem á sínum tíma var alþekkt og mikið umtalað hér á landi. Þrír einstaklingar höfðu þá einsett sér að sökkva báti og hirða tryggingaféð. Þetta var haustið 1920. Bandaríska Strandgæslan fullyrðir að ekkert skip hafi siglt á borgarísjaka á Norður-Atlantshafinu síð- an hún tók að sér hafísvaktina á þessu svæði. Er það svo, spyr Hilmar Snorrason, í fróðlegum þætti sínum, Utan úr heimi. Ljósmyndakeppni sjómanna: takið myndir og sendið núna. Alls báru sex síðutogarar nafnið Jón. Enginn þeirra kvaddi með hressilegu kveðjuflauti, þvert á móti varð snöggt um þá flesta. Hafliði Óskarsson rifjar upp sögu Jónanna. Gamla myndin er að þessu sinni af Steinbryggjunni í Reykjavíkurhöfn sem nýlega varð afar umdeild þrátt fyrir að vera löngu horfin sjónum manna Vissuð þið að af 42 nýsköpunartogurum er komu nýir til landsins á árunum 1947 til 1952 höfðu sex þeirra verið afskráðir fimmtán árum síðar. Hafliði Óskarsson varpar ljósi á þessa óhappasögu. Krossgátan. Lausn krossgátunnar. Sonur okkar pabba Frívaktin er að þessu sinni helguð bókinni Híf opp! sem geymir gamansögur af – jú hvað haldið þið – sjómönnum. Sjómenn og aðrir lesendur Víkings. Sendið okkur línu um efni blaðsins, gagnrýni eða hrós, tillögur um efnisþætti og hugmyndir um viðtöl við áhugaverða sjómenn, jafnt far- menn sem hina er draga fisk úr sjó. Hjálpið okkur að halda úti þættinum „Raddir af sjónum“. Netjið á jonhjalta@simnet.is Forsíðumyndina tók Ragnar Pálsson. 4 12 18 30 32 34 40 44 Útgefandi: Völuspá útgáfa, í samvinnu við Farmanna- og fiskimannasamband Íslands. Afgreiðsla og áskrift: 862 6515 / netfang: jonhjalta@simnet.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Hjaltason, sími 862 6515, netfang: jonhjalta@simnet.is Byggðavegi 101b, 600 Akureyri. Auglýsingastjóri: Katrín Laufey Rúnarsdóttir, sími 856 4250, netfang: sjomannabladid@gmail.com Ritnefnd: Árni Bjarnason, Hilmar Snorrason og Jón Hjaltason. Forseti FFSÍ: Árni Bjarnason. Prentvinnsla: Ásprent. Aðildarfélög FFSÍ: Félag skipstjórnarmanna, Félag íslenskra loftskeytamanna, Félag bryta, Skipstjóra- og stýrimannafélögin Verðandi, Vestmannaeyjum og Vísir, Suðurnesjum. Sjómannablaðið Víkingur kemur út fjórum sinnum á ári og er dreift til allra félagsmanna FFSÍ. ISSN 1021-7231 22 46 52 55 54 56 58 60 Löngu tímabær breyting á lögum um eftirlit með vigtun sjávarafla Um þessar mundir liggur fyrir Alþingi frumvarp sem mun, ef það kemst óskaddað gegn um þingið og verður að lögum, stuðla með afgerandi hætti að lausn á viðvarandi afbrotum sem átt hafa sér stað gegn um tíðina og varða misferli við vigtun sjávarafla. Ýmsar frásagnir eru til af hugmynda- ríkum útgerðarmönnum sem beitt hafa fjölbreyttum aðferðum við að svíkja undan vigt og vafalaust munu einhverjir eftir sem áður verða samir við sig. Ljóst er þó, að sú aðferð manna sem felst í að fara verulega frjáls- lega með hlutfall íss í afla er stór hluti af þeim þjófnaði sem viðgengist hefur hér allt of lengi. Áhersluatriði úr frumvarpinu Við þessu eru nú stjórnvöld að bregðast með framlögðu frumvarpi þar sem segir í 1. grein: „Komi í ljós við eftirlit Fiskistofu hjá vigtunarleyfishafa verulegt frávik á íshlutfalli í afla skips í tiltekinni fisktegund miðað við meðaltal íshlut- falls skipsins í fyrri löndunum skal Fiskistofa fylgjast með allri vigtun hlutaðeigandi vigtunarleyfishafa í allt að sex vikur. Skal vigtunarleyfis- hafa tilkynnt um ákvörðun Fiskistofu. Vigtunarleyfishafi greiðir allan kostnað vegna eftirlits samkvæmt þessari málsgrein.“ Tímagjald eftirlitsmanns samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu er 17.998 krónur og kostnaður af tveimur slíkum í sex vikur hlýtur að draga úr brotavilja þeirra er málið varðar. 2. gr. Við 17. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: „Ef ítrekað eru veruleg frávik á íshlutfalli í afla hjá skipum sem landa hjá vigtunarleyfishafa, sbr. 3. mgr. 13. gr., skal Fiskistofa afturkalla vigtunarleyfi hjá viðkomandi vigtunarleyfishafa í allt að eitt ár.“ Ef fyrirtæki verður fyrir sviptingu er hætt við alvarlegum afleiðingum fyrir viðkomandi aðila. Jákvætt skref Frá sjónarmiði fiskimannsins hlýtur markmið frumvarpsins að vera brag- arbót sem ætti í það minnsta að draga úr líkum á því að sjómaður á dag- róðrarbáti sem innbyrt hefur 10 tonn og gengið hefur frá þeim samvisku- samlega fái ekki greidd laun fyrir 8 eða 9 tonn, heldur þau 10 sem hann hafði lagt vinnu í. Lokaorð Við eigum fjölmörg fyrirtæki sem standa vel að öllu sem að útgerð snýr en því miður er það frumvarp sem ég hef lítillega reyfað hér að ofan stað- festing á því að of margir verða að gera betur en þeir hafa gert til þessa. Vonandi leiðir frumvarpið til þess. Óska öllum sjómönnum, útgerðar- mönnum og öðrum þeim sem kynnu að lesa þessar línur farsældar á ný höfnu sumri. Árni Bjarnason
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.