Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Síða 16
16 – Sjómannablaðið Víkingur stríða, en lauk lyfjameðferð á miðju ár- inu 2012. Ráðning hans var alltaf tíma- bundin og lengst af munnleg. Í lok árs 2015 var loks gerður við hann skriflegur ráðningarsamningur en til tveggja mánaða, en stuttu seinna verður skip- stjórinn óvinnufær vegna þunglyndis. Taldi útgerðin um vísvitandi launung að ræða af hans hálfu, þegar síðasti ráðn- ingarsamningurinn var gerður við hann. Því hafnaði dómurinn með þeim rökum, að þótt eldri veikindi eða gömul meiðsl taki sig upp hjá skipverja með þeim af- leiðingum að hann verður óvinnufær, verði hann ekki af forfallalaunarétti sín- um þótt hann hafi ekki getið þessa við ráðninguna, hafi hann ekki haft ástæðu til að ætla að hin eldri meinsemd herjaði á hann aftur. Brjósklosaðgerð Stýrimaður var búinn að starfa nær ein- göngu á skipum í eigu sömu útgerðar frá 16 ára aldri eða í 30 ár og óslitið síðustu sjö árin á sama skipi útgerðarinnar. Um sumarið fór hann að finna fyrir verkjum í bakinu og leitaði læknis, en varð ekki óvinnufær. Um miðjan nóvember er gerður við stýrimanninn tímabundinn ráðningarsamningur til rúmlega tveggja mánaða, að hann starfaði þennan tíma nú sem skipstjóri á skipinu. Stuttu eftir að hann er aftur farinn að starfa í sínu gamla starfi sem stýrimaður, þá rennur hann til við vinnu sína með þeim af- leiðingum að hann fær bakhnykk og verður af þeim ástæðum óvinnufær næstu fimm mánuðina og gengst m.a undir brjósklosaðgerð. Neitaði útgerðin að greiða stýrimanninum veikindalaun á þeim forsendum, að hann hefði leynt út- gerðina því vísvitandi, þegar gerður var við hann þessi tímabundni ráðningar- samningur um stöðuhækkun á skipinu, að hann hefði nokkrum mánuðum fyrr verið farinn að finna fyrir verkjum í baki í starfi hjá þessari sömu útgerð og á þessu sama skipi. Um var að ræða stýrimann, sem finnur fyrir verkjum í baki og verður síðar óvinnufær í starfi stýrimanns og breytti að sjálfsögðu engu, þótt hann hafði starfað í millitíðinni tímabundið í stuttan tíma í skipstjóra- stöðu á skipinu. Þá er rétt að árétta sér- staklega, að stýrimaðurinn varð óvinnu- fær við það að fá hnykk í bakið, sem er sérstakt atvik og breytir þá engu, þótt hann kynni að hafa verið viðkvæmari vegna álagstengdra bakverkja, sem hann var áður farinn að finna fyrir eftir tæp- lega sjö ára starf á þessu sama skipi og þrjátíu ár í starfi á skipum þessarar út- gerðar. Slíkt getur aldrei svipt sjómann veikindalaunarétti, þótt afleiðingar sjálfstæðs atviks síðar geti hugsanlega leitt til þess að hann verði lengur óvinnufær og afleiðingarnar verri en ella hefði orðið. Þrátt fyrir þennan langa starfstíma stýrimannsins hjá útgerðinni, þá taldi hún að þegar gerður var við hann þessi tímabundni ráðningarsamningur um skipstjórastöðuna eftir að hafa starfað alla þessa áratugi hjá útgerðinni, þá ætti samt að líta á stýrimanninn eins og ný- liða, þ.e.a.s sjómann, sem hefði ráðið sig í fyrsta skipti á skipið og þá tímabundið í stöðu skipstjóra og við ráðningu sína leynt útgerðina vísvitandi um líkamlegt ástand sitt, sem hann hefði orðið fyrir í starfi hjá öðrum atvinnurekanda. Stýri- maðurinn var þó eins og áður sagði bú- inn að starfa á þessu sama skipi í tæp sjö ár, þegar hann varð óvinnufær og var því ekki að ráða sig á skipið í fyrsta skiptið, auk þess sem hann var aftur kominn í stöðu stýrimanns, þegar hann varð óvinnufær. Þá má nefna að útgerðin hafði greitt stýrimanninum lyfja- og lækniskostnað og kostnað vegna sjúkra- þjálfunar, en neitaði að hann ætti rétt á veikindalaunum yfirhöfuð. Þrátt fyrir allt framangreint var út- gerðin sýknuð, þar sem stýrimaðurinn taldist hafa leynt útgerðina því vísvitandi að hafa fundið fyrir í bakinu fyrr um sumarið, þegar tímabundni ráðningar- samningurinn var gerður við hann um stöðuhækkun, þ.e í stöðu skipstjóra. Það að þessi útgerð myndi bera yfirhöfuð fyr- ir sig vísvitandi launung, er erfitt að skilja, þegar haft er í huga að nær öll starfsævi stýrimannsins hafði verið á skipum þessarar útgerðar. Fær það því engan veginn staðist, að skipverji teljist hafa leynt vísvitandi ástandi sínu, sem hann verður fyrir í starfi hjá sömu út- gerð, á sama skipinu í sömu stýrimanns- stöðunni. Annað hefði verið upp á ten- ingnum, ef hann hefði leynt vísvitandi sjúkdómi eða meiðslum við fyrstu ráðn- ingu sína á þetta skip, sem hann hefði orðið fyrir í starfi hjá öðrum atvinnu- rekanda og verið haldinn þessu ástandi við ráðningu sína hjá þessum nýja at- vinnurekanda. Varla er hægt að misfara meir með þetta ákvæði sjómannalaganna um vísvitandi launung, en þarna átti sér stað. Höfundur er lögmaður félaga yfirmanna og ýmissa sjómannafélaga. „Stýrimaðurinn var þó eins og áður sagði búinn að starfa á þessu sama skipi í tæp sjö ár, þegar hann varð óvinnufær og var því ekki að ráða sig á skipið í fyrsta skiptið, auk þess sem hann var aftur kominn í stöðu stýrimanns, þegar hann varð óvinnufær.“ Mynd: Jörgen Språng

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.