Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Síða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Síða 22
Þ eir sem þekkja sjóveikina eru manna ólíklegastir til fjalla um þann sjúkdóm. Engum getum skal að því leitt hvers vegna svo er umfram það að sjómönnum er ekki tamt að væla um kvilla sína. Slíkt fellur ekki í góðan jarðveg hjá skipsfélögunum og hætta getur verið á að skipsrúm sé í húfi. Einelti? Sá er þetta ritar getur engan veginn talist til sjómanna þó að í saltan sjó hafi mígið. Fyrsta sjóferðin lofaði ekki góðu en hún var farin á mótorknúnum þilfarsbáti frá bryggju á Grenivík og út á legu sem kallað var. Þar var bátum lagt við stjóra að hverj- um róðri loknum og til lands róið á árabátum. Þrátt fyrir að vegalengdin væri innan við sjómílu að lengd þá ruddist upp úr maga mínum allt það sem í hann hafði verið látið þann daginn. Það versta var að báturinn hreyfðist ekki neitt en mikið lifandis ósköp var lyktin upp úr mótorhúsi og kjalsogi vond. Þessi uppákoma dró þann dilk á eftir sér að mér var ótæpi- lega strítt fyrir aumingjaskapinn lengi á eftir. Sennilega myndi slík framkoma leikfélaganna í dag nefnast einelti en þar sem eineltisorðið var ekki kviknað á mínum sokkabandsárum þá beit þetta ekki á mig. Að rigga árabátum með fjörum fram og stinga rauðmaga kallaði ekki sjóveikina til starfa enda hélt veiðieðlið öllu kvill- um víðs fjarri. Eitt vorið gekk þorskur undir Melabjargið í miklu magni og fylltu bátar frá Grenivík sig þarna dag eftir dag svo og bátar af Vesturlandinu. Faðir minn stóðst ekki mátið og fékk lánaðan árabát og sótti á þessi mið eina kvöldstund ásamt vinnumanni sínum. Eftir töluvert suð fékk ég að fara með þá 6 til 8 ára gamall. Ekki vantaði þorskinn sem tók strax og færinu var rennt út fyrir borðstokkinn og var báturinn hlaðinn á skömmum tíma. Þó að fiskiríið gengi vel var mér hálf órótt þar sem báturinn var mígandi lekur. Þurfti því að ausa hann reglulega svo að á floti héldist. Eiginlega var ég skíthræddur um að veiðimennirn- ir gleymdu sér við færin og að báturinn færi lóðbeint á botninn. Allt slampaðist þetta þó og var að afla gert þegar í land kom, hann saltaður og etinn sumarlangt og fram á haust. Látið sverfa til stáls Alvöru sjómennska tók við er ég réði mig til síldveiða á Vörð TH-4 þá sextán ára gamall. Vörður TH-4 var einn af Landsmiðjubátunum svokölluðu og um 70 tonna stór. Ekki var í kot vísað með skipsrúmið því að skipstjóri á Verði var Jóhann Adolf Oddgeirsson landsþekktur aflamaður og í raun þjóðsagnapersóna í lifandi lífi. Við vorum tveir nýgræðingar um borð þessa síldarvertíð. Siglt var frá Grenivík til Hríseyjar þar sem skráning áhafnar fór fram. Það hlakkaði í mér þegar hinn nýgræðingurinn lagðist tvö- faldur yfir borðstokkinn, í sundinu á milli Grenivíkur og Hrís- eyjar, og út úr honum stóð spýjan. Adam var þó ekki lengi í Paradís því út fyrir Hrólfsskerið komst ég ekki áður en fyrsta gusan kom út um þverrifu andlitsins. Í hönd fór ein versta líkamlega þjáningarvika ævi minnar. Því litla sem ég gat kyngt kom jafnharðan upp aftur. Svo sljór var ég orðinn eftir vikuna að mér var orðið fjandans sama hvort skipið héldist ofansjávar eða færi á botninn. Kaus jafnvel það síðarnefnda. Eftir viku í veltingi og djöfulgangi var siglt inn til Grenivíkur og brælan legin þar af sér. Lítið betra tók við þó að fast land væri undir iljum því sjóriðan var slík að ég mátti hafa mig allan við að ramba ekki út af bryggjukantinum öðru hvoru megin. Þegar haldið var til hafs á ný upphófust sömu vandræðin og sjóveikin lét mig ekki í friði. Sá tímapunktur rann nú upp í lífi mínu að vera eða vera ekki. Hrísgrjónagrautur hafði lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér og nú var hann á boðstólum. Bað ég kokkinn því að rétta mér eina grautarskál upp á þilfar og þar skyldi sorfið til stáls. Settist ég á hádekkið út við lunningu og hóf átið. Fyrstu skeiðarnar sem niður fóru komu jafnhraðan upp aftur. Skilaði ég þeim út fyrir borðstokkinn og í hafið. Á endanum tókst mér þó að halda einhverju niðri og úr því tók aðeins að birta til. Eftir þessa eldraun var uppáhaldsgrauturinn minn ekki lengur mitt uppáhald og klígjaði mig við þessum mat árum saman. Hreinlæti: losað á réttu róli Það voru þó engar yndisstundir í lúkarnum við uppvaskið fyrir morgunvaktina þegar dallurinn steypti stömpum sem aldrei fyrr. Ekki hefði þetta uppvask hlotið náð fyrir augum hús- mæðra eða mötuneyta. Allir sem einn komu skipsmenn þó heim að lokinni vertíð og enginn þeirra dó af óþrifnaði enda þvældist þrifnaður ekki fyrir mönnum á þessum bátum. Ljóst er þó að óþrifnaður er vildarvinur sjóveikinnar og viðheldur henni til lengri eða skemmri tíma. Mönnum var þó vissulega vorkunn og til marks um það má nefna að vaski kokksins var eina handlaugin um borð. Vaskinn var staðsettur í lúkar til hliðar við olíukynta eldavél og var þetta rými svefnstaður 10 manna. Hitinn frá eldavélinni var oft óbærilegur og bogaði svitinn af mönnum þótt láréttir lægju í kojum sínum. Eina loftræstingin var „skylight“ í þilfari sem hægt var að opna. Sá galli fylgdi þó gjöf Njarðar að nánast aldrei var hægt að opna það úti á rúmsjó án þess að fá sjó niður um opið og ofan í lúkar. Um sængurver var að öllu jöfnu ekki skipt þær 6 til 8 vikur sem síldarvertíðin stóð. Í vertíðarlok líktust þau því einhverju allt öðru en al- mennt mátti sjá á rúmum landsmanna. Það hjálpaði ekki upp á Árni Björn ÁrnasonSjóveikin mín Llínubáturinn Dröfn EA frá Hrísey. 22 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.