Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Side 41
Sovereign of the Skies sem missti tvo
mótora á leið sinni frá Hawaii til Kali-
forníu. Eftir að flugvélin hafði verið í
sambandi við björgunarskipið var
ákveðið að lenda henni á sjónum nærri
skipinu sem þá sendi út björgunarbáta
sína og björguðust allir sem um borð í
flugvélinni voru eða 31 manneskju.
Einn þeirra sem björguðust sagði
þegar hann kom á þilfar björgunarskips-
ins með miklu þakklæti í röddinni:
„Guðs þakklæti sé bandaríska sjóhern-
um“. Þetta þótti mönnum sárt að heyra
og þótti þeim ljóst að margir gerðu ekki,
eða gátu ekki, gert greinarmun á skipum
Strandgæslunnar og sjóhersins. John F.
Kennedy hafði gert sér grein fyrir mikil-
vægi uppbyggingar ímyndar stofnana
þegar hann var kominn til valda eftir
kosningarnar 1960. Þegar þau hjónin
höfðu flutt í Hvíta húsið 1961 hófu þau
að endurgera ímynd Hvíta hússins og í
kjölfarið einnig forsetaflugvélarinnar Air
Force One. Forsetanum þótti upphaflegt
útlit flugvélar embættisins vera alfarið í
stíl við flugherinn og að útlit hennar
höfðaði frekar til konungsveldis en for-
setaembættis. Að ráði eiginkonu sinnar
réð hann Raymond Loewy, fransk fædd-
an iðnhönnuð, til að gera tillögu að nýju
útliti á forsetaflugvélina. Tillaga Loewys
heillaði forsetann en hugmyndin var að
gera hana að mikilvægu einkenni fyrir
forsetaembættið og Bandaríkin.
Heillaður af útliti flugvélarinnar, þegar
hún var komin í nýja búninginn, óskaði
forsetinn eftir fundi með Loewy sem
fram fór 13. maí 1963. Á þeim fundi, og
framhaldsfundi daginn eftir, var rætt um
að breyta sýnilegri ímynd ríkisstjórn-
arembætta ásamt því að forsetinn lagði
til að viðeigandi væri að byrja á Strand-
gæslunni.
Skömmu eftir fundinn var gerður
samningur við hönnunarfyrirtækið
Raymond Loewy-William Snaith, Inc.
um að gera tillögu að nýju útliti Strand-
gæslunnar innan þriggja mánaða. Það
var þó ekki fyrr en í janúar 1964 sem
stjórn Strandgæslunnar var kynnt hug-
mynd fyrirtækisins um nýtt útlit. Skyldi
merkingin vera einkenni þeirra eða
nokkurskonar vörumerki sem auðveld-
lega væri hægt að greina úr fjarlægð og
ólíkt öðrum merkjum opinberra aðila
eða fyrirtækja. Þá væri þessi merking
þess eðlis að auðvelt væri að koma henni
fyrir á skipum jafnt og flugvélum. Hug-
mynd Loewy var að hafa þykka breiða
rauða rönd og þunna bláa rönd við
hliðina og skyldu þær vera í 64° halla. Í
rauðu röndinni skyldi vera endurhannað
skjaldarmerki Strandgæslunnar. Varð
þessi hönnun þekkt undir nafninu the
„Racing Stripe“ (Kappröndin) eða
„Slash“ (skástriks) merkið. Var það í
fyrstu prófað á strandgæsluskipum og
búnaði í Florída.
Valnefnd Strandgæslunnar ákvað þó
að víkja frá hugmynd Loewy um endur-
hannað skjaldarmerki og lét setja sitt
gamla merki í staðinn. Það var þó ekki
fyrr en 6. apríl 1967 að endanlega var
gefin út tilskipun um að hönnunar og
tilraunatímabili merkingarinnar væri lok-
ið og fyrirskipað að merkingarnar skyldu
innleiddar að fullu. Það tók þó nokkur
ár að innleiða Skástrikið en síðasta skip
Strandgæslunnar, barkskipið Eagle, fékk
strípuna ekki fyrr en 1976 en rekja má
þennan langa tíma í innleiðingunni á
skipið til andspyrnu íhaldssamra innan
Strandgæslunnar þar sem þeir töldu að
Skálínan myndi skaða línur seglskipsins.
Yfirstjórn flotans sá þó þann leik á borði
að skipið átti að leiða hópsiglingu flota
fjölþjóða seglskipa í tilefni af 200 ára af-
mæli landsins en með því væru þeir að
kynna heiminum nýtt einkenni Strand-
gæslunnar sem og að Eagle yrði auð-
þekkjanlegt frá öðrum skipum í hópsigl-
ingunni.
Strípan hlaut allsherjar hylli þjóðar-
innar þegar CBS fréttamaðurinn þekkti
Walter Cronkite þekkti Eagle úr hópi
allra skipanna með viðeigandi
athugasemdum í beinni útsendingu frá
atburðinum. Strípan hefur æ síðan verið
þekkt á löggæslu- og þjónustuskipum í
eigu stjórnvalda og ekki aðeins í Banda-
ríkjunum heldur víða um heim. Ekki eru
mörg ár síðan slíkar merkingar voru sett-
ar á varðskip Landhelgisgæslunnar sem
sannarlega setti nýjan svip á okkar skip.
Dýrt spaug
Í apríl síðastliðnum dæmdi sýsludómari í
Miami útgerðina Princess Cruise Lines
Ltd til greiðslu 40 milljón dollara sektar
eftir að skip útgerðarinnar hafði ólöglega
dælt fyrir borð olíumenguðum úrgangi
og í kjölfarið falsað véladagbækur til að
hylma yfir losunina. Þá úrskurðaði dóm-
arinn að ein milljón dollara skyldi greidd
til bresks vélstjóra skipsins sem tilkynnti
fyrst um atvikið til breskra siglingayfir-
valda (MCA) sem síðan létu bandarísku
Strandgæsluna vita af atvikinu.
Princess Cruise Lines, sem er hluti af
Carnival keðjunni, samþykkti í desember
sök á sjö glæpsamlegum ákærum sem
fjölluðu um ólöglega losun olíusora í sjó
og ásetningi í að hylma yfir atvikið.
Breski vélstjórinn, sem hafði nýlega verið
ráðinn um borð í Caribbean Princess,
hafði orðið var við svokallaða Töfralögn
(Magic Pipe) sem hann tilkynnti um í
ágúst 2013 og hafði henni verið komið
fyrir árið 2005 eða ári eftir að skipið var
tekið í notkun. Hafði skipið losað olíu-
sora fyrir borð bæði við strendur Eng-
lands og Bandaríkjanna. Við skoðanir yf-
irvalda á tilkynningu vélstjórans leyndu
ákveðnir skipverjar því sem gert var um
borð í samráði við fyrirskipanir sem þeir
höfðu fengið frá vélstjórum skipsins. Öll
skip útgerðarinnar munu næstu fimm
árin verða undir ströngu eftirliti sér-
stakra aðila sem dómurinn tilnefndi.
Þá kom í ljós að ólöglegar aðgerðir
höfðu verið framkvæmdar um borð í
fimm skipum af þessari gerð en þau eru
Caribbean Princess, Star Princess, Grand
Princess, Coral Princess og Golden Pr-
incess. Þetta er hæsta sektargreiðsla sem
nokkur útgerð hefur verið dæmd til að
greiða í svona máli.
Sundlaugarverðir um borð
Stöðugt eru settar nýjar og nýjar alþjóða-
reglur í framhaldi af sjóslysum og atvik-
um sem verða. Allt er þetta gert til að
auka öryggis sæfarenda sem og þeirra
sem með skipum ferðast. En nú er
spurningin sú hvort ekki þurfi að ein-
Sjómannablaðið Víkingur – 41
Að ráði eiginkonu sinnar, Jacqueline, fékk John F. Kennedy hönnuðinn Raymond Loewy til að hanna einkenni
fyrir bandarísku Strandgæsluna sem síðan margar þjóðir hafa tekið upp.