Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 48
B.v. Jón Baldvinsson RE 208 kemur nýr til landsins 25. júní 1951. Síðasti gufutogarinn
sem smíðaður var fyrir Reykvíkinga bar nafn Jóns Baldvinssonar, fyrrum forseta
Alþýðusambands Íslands. Togarinn átti stystu útgerðarsögu allra nýsköpunartogaranna
fjörutíu og tveggja hér við land, eða aðeins tæp fjögur ár, frá júní 1951 til mars 1955.
Tvær ungar systur, þær Dísa Pétursdóttir og Jóhanna G. Pétursdóttir, réðust til starfa í
eldhúsið á b.v. Jóni Baldvinssyni RE sumarið 1954 og voru þær fyrstu kvenmennirnir
sem lögskráðust í áhöfn á nýsköpunartogara. Báðar gengu þær systur á land með
verðandi eiginmann upp á arminn við afskráningu af togaranum.
– 3 –
B.v. Jón Baldvinsson RE 208,
gufuknúinn nýsköpunartogari, smíðaður í Skotlandi árið
1951 og síðastur gufutogara sem smíðaður var fyrir
reykvíska útgerðaraðila. Togarinn strandaði við Reykja-
nes þann 31. mars 1955. Mannbjörg, en skipið eyði-
lagðist á strandstað.
– 4 –
B.v. Jón forseti RE 108,
gufuknúinn nýsköpunartogari, smíðaður í Englandi
árið 1948, og síðastur gufutogara sem smíðaður var fyrir
Íslendinga þar í landi. Staddur í söluferð í Englandi
þann 3. maí 1966. Að morgni uppboðsdags á afla togar-
ans er áhöfninni tjáð að taka saman pjönkur sínar, því
búið sé að selja skipið þarlendum aðilum, öllum að
óvörum.
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
Frelsi til að veiða!
00000
Vatnaveiðin er
komin í gang!
Ertu klár?www.veidikortid.is
48 – Sjómannablaðið Víkingur