Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 62
62 – Sjómannablaðið Víkingur Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is Við látum dæluna ganga • Dælur • Dæluviðgerðir • Ásþétti • Rafmótorar • Vélavarahlutir Viðgerðir • Tæringarvarnir Keramikhúðun Fyrir Eftir er þetta? Haldið þér að ég sjái ekki að þetta eru akkúrat sömu flugurnar og voru hér í gær?“ Eitt sinn stóð Sigurður Árnason, skipherra hjá Landhelgisgæslunni, Binna í Gröf að veiðum í landhelgi austur á Vík. Binni var ferjaður í borð um varðskipið og þar deildu þeir lengi því að Binni þrætti og sagðist ekki hafa verið fyrir innan. Endaði það með því að Sigurður skipaði honum að sigla í land þar sem dæmt yrði í málinu. Þegar Binni var á leið frá borði, kominn út að lunningu, sneri hann sér við, horfði í augu Sigurði og segir: „Siggi, ég var ekki fyrir innan, ég sver það við svip augna minna.“ Eitt andartak var þögn og Sigurði þótti svo mikið sakleysi skína úr því auganu sem hann horfði í að honum rann allur móður og sagði: „Binni, ég trúi þér, farðu, við gerum ekki meira úr þessu.“ Binni lét ekki segja sér það tvisvar og fór frá borði. Allnokkru síðar frétti Sigurður hvernig í pottinn var búið og sagði þannig frá því: „Binni hafði lent í slysi nokkru áður en fundum okkar bar saman þarna á Víkinni og augað, sem ég féll fyrir vegna fullfermis af sakleysi, var glerauga.“ Jón Einarsson frá Ísafirði, kallaður Jón lappari sökum þess að hann var skósmiðssonur, var lengi kokkur á togurum fyrir sunnan, en var nú kominn aftur vestur í leit að vinnu. Auglýst hafði verið eftir matsveini á Ís- borgina, sem þá var undir skipsstjórn Einars Jóhannssonar, og sóttist Jón eftir starfinu. Skipstjórinn vildi fá nánari upplýsingar um sjómennskuferil hans og það stóð ekki á svarinu: „Ég get sagt þér það, Einar minn, að ég er búinn að vera kokkur til sjós í 30 ár og hef aldrei misst mann.“ Jón lappari var að sjálfsögðu ráðinn á stundinni. Það var togaranum á Surprise - „Præsanum“ - frá Hafnarfirði. Við vorum á karfaveiðum við Nýfundnaland og Doddi hestur fékk torkenni- leg eymsli í lillann. Fyrsti stýrimaður, sem var nýr og ferskur í starfinu, úrskurðaði samstund- is, að um væri að ræða sýfilis. Doddi var settur í einangrun og haldið nánast eins og fanga. Honum var færður matur og enginn notaði sömu mataráhöld og hann. Þannig leið túrinn, sem tók 15 daga. Hesturinn bara las allt sem til var í skipinu og klóraði sér á pungnum á með- an aðrir fiskuðu og hlóðu skipið. Og þegar að landi var komið var hann umsvifalaust sendur til læknis. Skömmu seinna lágu leiðir Dodda hests og skipsfélaga hans, Jóns í Mýrinni, saman í Hafnarstræti í Reykjavík. Þeir voru hvor á sínu fortóinu og Doddi kallaði yfir götuna, svo vegfarendur gátu heyrt: „Nonni, þetta var ekki sýfilis, þetta var for- húðarbólga.“ Friðmundur Herónýmusson, oftast kallaður Freddi, formaður og útgerðarmaður í Keflavík var bæði fljóthuga og óðamála. Eitt sinn kom Freddi um borð í bát sinn í tals- verðri ylgju í Keflavíkurhöfn og varð ekki manna var ofan þilja. Snaraðist hann þá fram í lúkarsopið og öskraði niður: „Eruð þið vitlausir, strákar, að skilja bátinn svona einan eftir uppi á dekki?Líkast til hefur Sigurður Þ. Árnason verið með Maríu Júlíu þegar hann féll fyrir sakleysinu í gler- auga Binna í Gröf. Mynd: Landhelgisgæslan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.