Fréttablaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 2
Við höfum mikið meira en nóg að gera. Þorvaldur Þórðarson, eld- fjallafræðingur Siglt um sæinn Það viðraði vel fyrir siglingakappana sem birtust á spegilsléttum haffletinum skammt frá Hörpu í gær. Þótt seglskútur vilji eflaust örlítið meiri vind en höfuðborgin bauð upp á í gær mun það þó breytast með gulri viðvörun í dag. Þá er spurning hvort skipstjórarnir slökkvi á vélaraflinu eða sitji heima. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK birnadrofn@frettabladid.is ÖRYGGISMÁL Borið hefur á aukn­ ingu á þjófnaði úr innrituðum farangri á f lugvöllum heimsins. Þetta staðfestir Guðni Sigurðsson, sérfræðingur á samskiptasviði Ice­ landair. Fréttablaðið hefur fengið ábend­ ingar um vaxandi þjófnað úr far­ angri á aðalflugvellinum á Tenerife. Ábendingin hljómaði svo að allir ættu að plasta sína tösku eða setja einhvers konar ólar utan um tösk­ urnar til að þjófarnir gætu ekki tekið varninginn svo auðveldlega. Guðni segir vandamálið ekki beintengt þeim flugvelli. „Útskýringin gæti einfaldlega verið sú að mikið af Íslendingum er að ferðast til Tenerife,“ segir Guðni en áfangastaðurinn hefur verið vin­ sæll meðal Íslendinga mörg undan­ farin ár, jafnt að sumri sem vetri. Hann segir mikilvægt að fólk hafi sínar dýrmætustu og nauðsynleg­ ustu eignir, svo sem lyf, meðferðis í handfarangri. „Svo er auðvitað nauðsynlegt að hafa ferðatrygg­ ingar í lagi.“ Þá segir Guðni allar varúðarráð­ stafanir hafa jákvæð áhrif, svo sem það að plasta töskurnar, læsa þeim með lás eða hafa um þær ólar. „Því betra aðgengi sem er að farangr­ inum, því auðveldara og fljótlegra er að stela úr honum.“ ■ Þjófar ganga í ferðatöskur á flugvöllum Töskur í flugvélum eru auðveld bráð fyrir þjófa séu þær ekki læstar. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR Minnkandi rennsli í eldgos­ inu í Meradölum gæti bent til þess að gosið sé búið að missa dampinn. Eldfjallafræðingur segir í miklu að snúast þegar kemur að mælingum. arnartomas@frettabladid.is ELDGOS Mjög hefur dregið úr eld­ gosinu í Meradölum og rennsli þess samkvæmt niðurstöðum mælinga á gosinu frá laugardegi til mánudags sem Jarðvísindastofnun birti í gær. „Miðað við nýjustu tölur þá virð­ ist rennslið vera komið í kringum þrjá til fjóra rúmmetra á sekúndu,“ segir Þorvaldur Þórðarson eldfjalla­ fræðingur. „Ef þær tölur eru réttar og þetta dettur mikið niður fyrir þrjá rúmmetra þá eiginlega stöðvast gosið.“ Þorvaldur segir að þótt gosið hafi hegðað sér ágætlega þá sé alltaf eitt­ hvað sem komi á óvart. „Þyngdin á nýja hrauninu er það mikil að hún hefur ýtt út kjarnan­ um í 2021 hrauninu,“ segir hann og bendir á hve mikið rúmmál hrauns­ ins hafi verið. „Það er verið að meta þetta upp á einhverja 650 þúsund rúmmetra sem eru að koma út úr þessu endurgosi, ef svo má kalla.“ Þegar kemur að mælingum er með nægu að fylgjast í gosinu. „Á meðan við getum erum við með næstum daglegar mælingar á útbreiðslu hraunsins og svo höfum við verið að gera ýmsar athuganir á gígvirkninni, hvernig kvikustrók­ arnir hegða sér, skoðum gasbólu­ myndanir og fleira,“ segir hann. „Við höfum mikið meira en nóg að gera.“ Í augnablikinu segir Þorvaldur ekki líklegt að kvikan komi upp ann­ ars staðar en í Meradölum. „Við getum þó ekki útilokað neitt,“ segir hann og dregur fram tvær mögulegar sviðsmyndir. „Annars vegar er sú sviðsmynd að gosið sé Ekki hægt að segja hvort gosið hafi misst dampinn Þorvaldur segir að í augnablikinu sé ólíklegt að kvikan komi upp á öðrum stöðum þótt ekki sé hægt að útiloka neitt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK komið á einhverja framlínu sem gæti haldið því í gangi og það geti verið að malla í einhverjar vikur eða jafn­ vel mánuði. Hins vegar er sú sviðs­ mynd að þessi stöðuga minnkun í framlínunni sýni að gosið sé búið að missa dampinn og sé að því komið að hætta.“ Björgunarsveitarfólk hefur verið undir talsverðu álagi vegna hins mikla fjölda fólks sem leggur leið sína að Meradölum til að skoða gosið. Umhverfisstofnun auglýsti nýlega eftir landvörðum til að létta undir álaginu sem vonast er til að geti tekið til starfa um mánaða­ mótin. „Þetta er auðvitað alltaf smá pressa en álagið hefur verið svona innan marka,“ segir Steinar Þór Kristinsson hjá Björgunarsveitinni Þorbirni. Þótt lokað sé á gosstöðvunum í dag sé þó full ástæða til að vera á tánum. „Það var nú um daginn sem við vorum að grennslast fyrir um fólk sem var villt og týnt, en það fór vel.“ ■ arnartomas@frettabladid.is VEÐUR Gul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi, Faxaflóa og á mið­ hálendinu klukkan sjö í dag. Lokað verður að gos stöðvum í dag vegna veðurs. „Á Suðurlandi erum við aðallega að horfa á svæðið undir Eyjafjöllum þar sem gæti orðið mjög hviðótt og svo líka á gossvæðinu,“ segir Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Það verður ansi afleitt veður svo fólk ætti alls ekki að fara á gossvæðið á meðan þessi skil fara yfir.“ Birta Líf segir einhverjar líkur á því að gasefni frá eldgosinu berist til byggða á Reykjanesinu. „Við hvetjum fólk til að vera vakandi fyrir því og fylgjast með á loftgaedi.is,“ segir hún. „Ef það finn­ ur fyrir einkennum eða er viðkvæmt fyrir er gott að loka gluggum.“ ■ Gasefni gætu borist til byggða með rokinu í dag Það verður ansi afleitt veður svo fólk ætti alls ekki að fara á gos- svæðið. Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur 2 Fréttir 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.