Fréttablaðið - 17.08.2022, Síða 10
Formaður Samtaka ferða-
þjónustunnar segir að
eftirspurnin í greininni hafi
nánast verið of mikil og læra
þurfi af þessari stöðu svo hún
komi ekki upp aftur. Fram-
kvæmdastjóri Travia segir að
vöxtur ferðaþjónustunnar á
undanförnum mánuðum hafi
verið ævintýralegur.
magdalena@frettabladid.is
Haukur Birgisson, framkvæmda-
stjóri Travia, sem er markaðstorg
fyrir ferðaskrifstofur, segir að
vöxtur ferðaþjónustunnar á undan-
förnum mánuðum hafi verið ævin-
týralegur. Í júní hafi mátt sjá um
140 prósenta aukningu í sölu milli
sumarsins 2021 og 2022 og her-
bergjanýting var sambærileg og
fyrir heimsfaraldur.
„Júlí 2021 var í raun mjög góður
mánuður, en það voru um 55 pró-
sent f leiri nætur seldar árið 2022
miðað við sama mánuð í fyrra.
Svipaða sögu má segja um ágúst,
en það eru um 50 prósent f leiri
nætur seldar í ágúst 2022 miðað við
í ágúst 2021, og nýtingin er að sama
skapi um 50 prósentum betri,“ segir
Haukur og bætir við að áhugavert
sé að bókunarglugginn, það er að
segja sá tími sem ferðamaðurinn
bókar gistingu, hafi verið að stytt-
ast verulega.
Tæplega 30 prósent af öllum bók-
unum séu bókuð með innan við 20
daga fyrirvara. Um 32 prósent eru
bókuð með 20 til 90 daga fyrirvara
og um 32 prósent með 90 til 365
daga fyrirvara. Restin er bókuð með
meira en árs fyrirvara.
„Sjálfur hafði ég spáð því að á
árinu 2022 myndi bókunarglugg-
inn lengjast. Ég hélt að fólk myndi
frekar bóka með lengri fyrirvara til
þess að tryggja sig gagnvart heims-
faraldrinum og hafa í raun tíma til
þess að afbóka og fá endurgreitt ef
bakslag yrði og ferðafrelsi skerðast
á nýjan leik.“
Bjarnheiður Hallsdóttir, for-
maður Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að sumarið hafi gengið afar vel
í ferðaþjónustunni.
„Greinin hefur verið á gríðarlegri
siglingu og í rauninni miklu hrað-
ari siglingu heldur en reiknað var
með,“ segir Bjarnheiður og bætir
við að eftirspurnin hafi verið ótrú-
lega mikil.
„Það sá enginn greinandi fyrir
að þetta færi svona rosalega hratt
af stað. Þannig að það má kannski
segja að það sé nánast of mikið að
Ævintýralegur vöxtur í ferðaþjónustu hér á landi
Ferðamenn í
Meradölum að
virða gosið fyrir
sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Spennandi vetur fram undan
Haukur kveðst
vera spenntur
fyrir árinu 2023
hvað ferðaþjón-
ustuna varðar.
„Persónulega
er ég spenntur
fyrir árinu 2023
og tel að það eigi
eftir að verða
íslenskri ferða-
þjónustu gott
ár. Það verður
sömuleiðis áhugavert að sjá
hvernig verðbólguspá Seðla-
bankans ásamt viðræðum um
nýja kjarasamninga mun hafa
áhrif á ferðaþjónustuna á næsta
ári, en það mun skila sér beint
út í verðlag á afurðum ferða-
þjónustunnar.“
Hann segir þó að í ljósi þess
að bókunarglugginn sé alltaf
að styttast sé erfitt að spá
nákvæmlega fyrir um hvernig
veturinn muni líta út. „Síðustu
árin hefur veturinn verið að
koma sterkur inn, bæði vegna
þess að við erum að ná til ferða-
manna sem fá frídaga um vetur,
auk þess að vel hefur tekist að
auglýsa og markaðssetja Ísland
sem áfangastað á veturna. Ég
myndi telja að eldgosið muni
trekkja ferðamenn til landsins ef
gosið heldur áfram.“
Haukur
Birgisson,
framkvæmda-
stjóri Travia
gera og við höfum ekki getað annað
allri eftirspurn í rauninni.“
Aðspurð hvort eftirspurnin hafi
nánast verið of mikil segir Bjarn-
heiður að það liggi við að hún svari
því játandi.
„Við höfum ákveðna afkastagetu
og erum með takmarkandi þætti
sem eru sú þjónusta sem ferðamað-
urinn þarf á að halda. Þar höfum við
rekið okkur á veggi vegna þess að
það er ekki nóg til. Hvorki gisting né
bílaleigubílar né rúturnar og heldur
ekki nóg til af leiðsögumönnum.“
Haukur segir að ljóst sé að ferða-
þjónustan sé að koma til baka eftir
erfið ár.
„Það var orðið nokkuð augljóst að
ferðaþjónustan þurfti að fá ferða-
menn til landsins. Það er ótrúlegt að
mörg fyrirtæki hafi haldið dampi í
gegnum faraldurinn. Það hefur
verið mín tilfinning að þeir sem
starfa í ferðaþjónustu hafi verið
mjög jákvæðir gagnvart árinu 2022
og það hefur svo sannarlega ræst
úr því, ef miðað er við fjölda ferða-
manna.“
Haukur bætir við að á veturna
sé ekki jafn mikil dreifing á ferða-
mönnum og á sumrin. Það er því
búist við að ákveðnir landshlutar
fái hlutfallslega færri ferðamenn
yfir þann tíma.
„Suðurlandið og suðvesturhornið
trekkja til sín flesta ferðamenn yfir
vetrartímann. Það er gömul saga
og ný í íslenskri ferðaþjónustu. En
eins og staðan er í dag er að minnsta
kosti tvöföldun á sölu fyrir komandi
mánuði ef miðað er við árið í fyrra,
sé miðað við allt landið.“
Bjarnheiður bætir við að sums
staðar hafi ferðaþjónustufyrirtæki
þurft að hafna bókunum og að þetta
sé staða sem læra þurfi af.
„Markmið ferðaþjónustunnar er
að vaxa meira og verða sterkari stoð
í útflutningi heldur en hún er núna
og þá verðum við að fara í ákveðna
naflaskoðun, bæði greinin sjálf og
stjórnvöld. Það er ýmislegt sem við
þurfum að huga að sérstaklega því
nú virðist sem f leiri gáttir séu að
opnast og það verður flogið á fleiri
staði úti á landi á næstu misserum.“
Bjarnheiður segir að í því ljósi
þurfi að skoða þessi mál í stóru sam-
hengi og huga að því hvernig hægt
sé að anna þessari eftirspurn.
„Mín skoðun er sú að þörf sé
á talsverðri uppbyggingu bæði í
almennum innviðum og fjárfest-
ingu í gistirými ef við viljum ekki
koma að punkti þar sem við getum
ekki vaxið meira.“
Hún bætir við að einnig sé þörf á
því að mennta fólk í greininni.
„Við þurfum að leggja meiri
áherslu á að mennta fólk í greininni.
Bæði í veitingageiranum og leið-
sögumenn. Það þarf að skoða.“ n
Þannig að það má
kannski segja að það sé
nánast of mikið að
gera og við höfum ekki
getað annað allri
eftirspurn í rauninni.
Bjarnheiður
Hallsdóttir, for-
maður Samtaka
ferðaþjónust-
unnar
30%
afsláttur af öllum
skrifborðsstólum
Gildir í ágúst
10 Fréttir 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR