Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 2

Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 2
Næstu þrír dagar eru alltaf stóru dagarnir í söfnuninni en það verður hægt að styrkja fram á mánudag. Silja Úlfarsdóttir 2 hlauparar eru komnir yfir milljón. 04.00 hófst vaktin hjá Silju. 600 starfsmenn munu vinna að hlaupinu. 8.200 hlauparar eru skráðir 700 erlendir þátttak- endur eru skráðir. Allt að verða klárt Menningarnótt fer fram í dag í fyrsta skipti í þrjú ár. Hátíðin féll niður bæði 2020 og 2021 vegna kórónaveirunnar. Í dag er því blásið til stórhátíðar. Við Arnarhól var í gær sett upp svið fyrir Tónaflóð Rásar 2 í kvöld. Í Hljómskálagarðinum verða stórtónleikar Bylgjunnar og X-ið slær upp veislu í Kolaportinu. Þá hlaupa í dag hátt í tíu þúsund manns í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þar sem margir safna áheitum fyrir góð málefni. SJÁ SÍÐU 12 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það hefur mikið mætt á Silju Úlfarsdóttur, upplýsinga- og kynningarfulltrúa ÍBR. Hún var mætt til vinnu klukkan fjögur í nótt. Því fylgir jú mikil ábyrgð að halda eitt stærsta hlaup landsins. Um átta þúsund hlaupa í Reykja- víkurmaraþoninu. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Silja Úlfarsdóttir hefur unnið hjá ÍBR í hartnær þrjú ár en aldrei haldið Reykjavíkurmaraþon. Silja mætti til vinnu klukkan fjögur í nótt og viðurkennir að það sé gífurleg tilhlökkun að takast á við daginn. Um sex hundruð starfsmenn koma að hlaupinu en um átta þúsund manns  munu reima á sig hlaupa skóna til að takast á við heilt eða hálft maraþon, 10 kílómetrana og skemmtiskokk. Um sjö hundruð erlendir hlauparar eru þátttak- endur. Er Fréttablaðið sló á þráðinn til Silju var púlsinn hár en gleðin mikil, enda stór vika að baki. „Við í rauninni vissum ekkert hvað við værum að fara út í því við höfum séð það að það er minni skráning í íþróttaviðburði eftir Covid. Það eru 8.200 manns skráðir núna og við erum skrambi ánægð með þann fjölda,“ segir Silja. Þó það sé spáð smá norðangarra eru hlauparar sem Fréttablaðið ræddi við ánægðir með veðurspána. Það er allavega ekki rigning í kort- unum sem er alltaf aðeins betra. Þegar fréttablaðið fór í prentun var búið að safna rétt um 100 milljónum. Hilmar Gunnarsson hefur safnað mest eða 1,4 milljónum og hjónin Erling Daði Emilsson og Svanhvít Yrsa Árnadóttir eru í öðru og þriðja sæti en þau hlaupa til styrktar Félags krabbameinssjúkra barna. „Árið 2019 var metár þegar söfn- uðust 167 milljónir og þá voru 190 góðgerðarfélög. Þau eru 280 í ár og söfnunin er rétt við 100 milljón- Vaktin byrjaði fjögur í nótt Silja Úlfars hefur haft í mörg horn að líta að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Sjálfvirkur opnunarbúnaður og snertilausir rofar frá Þýsk gæðavara. Snertilausir rofar Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is irnar. Daginn fyrir hlaupið 2019 var hún í 82 milljónum. Við erum búin að safna meira en daginn fyrir metárið. Næstu þrír dagar eru alltaf stóru dagarnir í söfnuninni en það verður hægt að styrkja fram á mánudag,“ segir hún. Silja hefur unnið hjá ÍBR í hart- nær þrjú ár en á meðan hefur aldrei verið haldið Reykjavíkurmaraþon vegna faraldursins. „Mér finnst við vera að hoppa af stað að nýju. Það eru margir nýir sem koma að þessu og eftir þessa Covid dvöl er ég sannfærð um að næsta ár verður ennþá stærra,“ segir Silja, sem ætlaði að reyna að ná góðum nætursvefni fyrir vaktina. „Það er alltaf eitthvað sem þarf að leysa en við erum svo alsæl að halda maraþonið og það er enginn að fara að stoppa okkur. Við erum búin að bíða eftir þessum gleðidegi alltof lengi.“ n bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Húsfyllir var í Iðnó er Kristrún Frostadóttir kynnti fram- boð til formanns í Samfylkingunni í gær. Var henni fagnað eins og rokk- stjörnu. Kristrún segir markmið Samfylk- ingarinnar að komast í ríkisstjórn. Hún sagði í framboðsræðu sinni að þingmenn gætu gert betur og að það væri ein helsta ástæða framboðs hennar. Kristrún er 34 ára gömul og yngri en flestir ráðandi leiðtogar í íslenska stjórnmálaheiminum. Nýr formað- ur flokksins verður kjörinn á lands- fundi í október. SJÁ SÍÐU 28. Formannsefni fagnað sem rokkstjörnu Kristrún Frostadóttir í Iðnó í gær. MYND: AÐSEND gar@frettabladid.is VEÐUR „Það verður stíf norðanátt en svo á hægt og rólega að draga úr vindi og létta til,“ segir Helga Ívars- dóttir, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, um Menning- arnæturveðrið í Reykjavík í dag. „Það er ekki útlit fyrir úrkomu,“ segir Helga. Hitinn verði átta til tólf stig. Í byrjun dags verði skýjað og svolítið hvasst, norðan átta til þret- tán metrar á sekúndu. Vindinum verði misskipt í borginni. „Þar sem er skjól af Esjunni austan megin í borginni er bara hæglætis- veður en vestast, eins og niðri í bæ, getur Esjustrengurinn komið niður. Það getur verið jafnvel tíu metrar á sekúndu,“ segir Helga. Vindur gangi síðan niður og það lægi í nótt. „Þetta verður þokkalegt veður í austanverðri borginni en næð- ingur vestar. Þannig að það er svo- lítill vindur úti á Nesi fyrir þá sem eru að hlaupa maraþonið,“ bendir Helga á. n Veðrinu misskipt í Reykjavík í dag Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur. 2 Fréttir 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.