Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 4
Íslensk ferðaþjónusta er lík-
lega ein sú dýrasta í heimi
– og sker sig rækilega úr
verðlagningu greinarinnar í
Evrópu. Dæmi eru um að verð
á bílaleigu og hótelgistingu sé
tvöfalt hærra hér á landi en á
öðrum dýrustu ferðamanna-
stöðum álfunnar.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Kostnaður ferða-
manna af hótelgistingu og bíla-
leigum á Íslandi er áberandi miklu
meiri en víðast hvar á meginlandi
Evrópu, en sérstaka athygli vekur
við eftirgrennslan Fréttablaðsins að
verðlagningin í ferðaþjónustunni
hér á landi slær líka við þeim öðrum
löndum álfunnar sem teljast vera
með þeim dýrustu, svo sem Noregi.
Fréttablaðið hefur á síðustu
dögum viðað að sér upplýsingum
um verðlagningu í þessum geira
ferðaþjónustunnar og niðurstaðan
er skýr. Ísland sker sig algerlega úr
hvað dýrtíðina varðar – og tala þar
tölur sínu máli, hvort heldur er varð-
andi bílaleigu eða hótelgistingu.
Þrettán daga leiga á sjálfskiptum
Audi A3 fólksbíl í Noregi, sem leigður
er á Gardemoen-flugvellinum við
Osló, kostar ferðalanginn rétt tæp-
lega 96 þúsund krónur. Ódýrasti bíll-
inn á Íslandi í sambærilegum flokki
fyrir jafn marga daga er verðlagður
á 137 þúsund krónur, en ef nákvæm-
lega sama tegund af sjálfskiptum
Audi A3 er leigð á Íslandi í þennan
tíma þarf að greiða fyrir hana 192
þúsund krónur.
Það merkir að ferðamenn á Íslandi
þurfa að greiða meira en tvöfalt
meira fyrir þýskan fólksbíl á Íslandi
en sambærilega bifreið í Noregi,
sem á þó að heita eitt dýrasta ferða-
mannaland í heimi. Samt er lægri
virðisaukaskattur á íslenskum
Gisting og bílaleigubílar kosta tvöfalt
meira hér en í öðrum Evrópulöndum
Ísland er tvöfalt
dýrara land
hvaða bílaleigu
og hótelgistingu
varðar en önnur
dýrustu ferða-
mannalönd
álfunnar sam-
kvæmt athugun
Fréttablaðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Næturgisting í Osló og
Reykjavík í sumar
Verð á bílaleigu í Osló og
Reykjavík í 13 daga í sumar
Osló
Radisson
Blu Plaza
25
þúsund kr.
96
þúsund kr.
192
þúsund kr.
54
þúsund kr.
Reykjavík
Reykjavík
Natura
Osló
Audi A3
fólksbíll
Reykjavík
Audi A3
fólksbíll
bílum en norskum og þar að auki
bera íslenskir bílar ekki tolla, ólíkt
því sem viðgengst í Noregi.
Allt ber að sama brunni hvað
aðra þjónustu varðar á Íslandi, svo
sem hótelgistingu. Og enn tala þar
tölurnar skýrustum hætti.
Athugun Fréttablaðsins leiðir í ljós
að næturgisting á Radisson Blu Plaza
í miðborg Oslóar kostar að jafnaði
25 þúsund krónur í komandi mán-
uði nú um stundir, en um fjögurra
stjörnu hótel er að ræða á besta stað
í borginni, um einn kílómetra frá
aðaltorgi hennar.
Á sama tíma er næturgistingin
á Grand Hotel Reykjavík verðlögð
á 50 þúsund krónur, en það er
staðsett helmingi lengra frá miðborg
Reykjavíkur en sambærilegt hótel í
Osló. Verðið er sumsé tvöfalt hærra
á Íslandi en í Noregi.
Ef farið er ívið nær miðborginni,
og gist í eina nótt á Icelandair Hotel
Reykjavík Natura, sem eitt sinn hét
Hótel Loftleiðir, á sambærilegum
sumartíma, þarf að gjalda 54 þúsund
krónur fyrir viðvikið.
Svipaða sögu er að segja af öðrum
löndum í álfunni samkæmt athugun
Fréttablaðsins. Þannig kostar nætur-
gisting á Hilton Garden Inn í Frank-
furt í Þýskalandi rúmar 20 þúsund
krónur í júlí, sem telst vera innan
háannar ferðamannatímans þar í
landi, en þar er einnig um fjögurra
stjörnu hótel að ræða.
Allt að öllu bendir þessi samantekt
til þess að Ísland skeri sig rækilega úr
í verðlagningu í ferðaþjónustu, ekki
bara almennt séð innan álfunnar,
heldur og á meðal dýrustu ferða-
mannastaða hennar. n
Tvöfalt dýrara er að
leigja þýskan fólksbíl á
Íslandi en í Noregi.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA JEEP.IS • ISBAND.IS
PLUG-IN HYBRID
RAFMAGNAÐUR
OG VATNSHELDUR
EIGUM BÍLA TIL AFHENDINGAR STRAX!
Farðu yfir ár og vötn af festu og öryggi með
Jeep® Wrangler Rubicon Plug-In Hybrid.
Rafmagnaður kraftur hvert sem leið þín liggur.
ragnarjon@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Vilhjálmur Árnason,
formaður umhverfis- og sam-
göngunefndar Alþingis, segir að
viðurlög og sektir vegna utanvega-
aksturs séu ekki til skoðunar nú,
eftir að fréttir bárust af slæmum
utanvegaakstri norðaustur af
Vatnajökli.
„Viðurlögin erum við nýbúin að
endurskoða að einhverju marki
þegar náttúruverndarlögin voru
sett. Þá fórum við ítarlega í gegnum
þetta,“ segir Vilhjálmur, en lögin
sem um ræðir tóku gildi árið 2013.
Hann telji að viðurlög við utanvega-
akstri séu nú þegar töluverð. „Það
má til dæmis gera ökutæki upptæk
og beita háum sektum.“.
Vilhjálmur telur að lausnin liggi
ekki endilega í sektum og viður-
Sektir vegna utanvegaaksturs ekki í endurskoðun
Vilhjálmur Árna-
son, formaður
umhverfis- og
samgöngu-
nefndar
lögum. „Það stoppar ekki utanvega-
akstur. Þetta er að miklu meira leyti
tengt fræðslu og eftirliti og annarri
upplýsingagjöf sem raunverulega
kemur í veg fyrir þetta,“ segir hann.
Eitthvað hefur verið um að vefir
auglýsi utanvegaakstur eða „off-
road“ á Íslandi á síðum sínum, en það
sé þó mögulega á misskilningi byggt.
Christopher Pier, eigandi síðunn-
ar Icelandtour.info sagðist skilja
hvernig misskilningur um hugtakið
gæti orðið.
„Ég er aðallega að selja til Þjóðverja
og annarra þýskumælandi landa og
þeir skilja hugtakið „off-road“ aðeins
öðruvísi. Það þýðir í raun að keyra á
fjallavegum en ekki að keyra beint út
í landslagið,“ segir Christopher, sem
segir að hann fræði alla sína við-
skiptavini um það að bannað sé að
keyra utan vega á Íslandi. n
bth@frettabladid.is
ELDGOS „Það er erfitt að segja til um
hvort eldgosið er í andaslitrunum,
það er eins og enn hafi dregið úr því,
en á móti kemur að gígbrúnir hafa
hækkað verulega og við sjáum ekki
eins vel og áður. Það getur brugðið
til beggja vona með framhaldið,“
segir Þorvaldur Þórðarson eldfjalla-
fræðingur.
Órói við eldgosasvæðið í Mera-
dölum datt niður í gær um tíma.
Vísbendingar eru um að gosið sé að
lognast út af.
„Það gæti hver orðið síðastur að
sjá þetta gos. Ef fólk hefur áhuga á
að sjá það er eins gott að drífa sig,“
segir Þorvaldur.
Í dag verður unnið úr sýnum sem
tekin voru í gær til að hægt sé að sjá
hvort hraunflæði er að minnka.
Ekki er þó spurning hvort aftur
gýs á Reykjanesi, heldur aðeins hvar
og hvenær að sögn Þorvaldar. n
Hver að verða
síðastur að gosinu
Vísbending um goslok í Meradölum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Þorvaldur
Þórðarson
prófessor í eld-
fjallafræði og
bergfræði
4 Fréttir 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ