Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 6
Ég hef nokkrum sinn-
um lent í stressandi
aðstæðum í ferðinni.
Mack Rutherford flugmaður
Ungur ofurhugi lenti á
Reykjavíkurflugvelli í gær
í tilraun sinni til að bæta
heimsmet systur sinnar.
Hann segir foreldrana hafa
verið hikandi í byrjun.
kristinnhaukur@frettabladid.is
FLUG Hinn sautján ára gamli Mack
Rutherford lenti á Reykjavíkurflug-
velli í gær. Hann er að reyna að slá
heimsmet systur sinnar, Zöru, sem
yngsti f lugmaðurinn sem f lýgur
kringum jörðina á fisvél.
„Mér líður mjög vel. Ég er að klára
Atlantshafið og það er stórt skref,“
sagði hinn bresk-belgíski ofurhugi
og var nokkuð kátur.
Blaðamenn máttu hins vegar bíða
nokkuð eftir stráksa því að hann
nýtti tækifærið og hringsólaði yfir
gosstöðvunum í Meradölum fyrir
lendingu. „Ég lenti í svolitlum
skýjum við eldgosið en mér tókst
loksins að sjá eldgosið. Það var mjög
indælt,“ sagði hann.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær lagði Rutherford af stað í heims-
reisuna frá Sófíu, höfuðborg Búlgar-
íu, í mars. En þaðan er styrktaraðili
hans. Rutherford tafðist á Arabíu-
skaga vegna leyfamála en áætlar að
ljúka ferðinni í næstu viku.
Vélin er afar smá af gerðinni
Shark Aero Shark UL frá Slóvakíu.
Hún er afar fullkomin, með vænghaf
upp á tæpa 8 metra, 100 lítra tank og
hámarkshraða upp á 300 kílómetra
á klukkustund. Systir hans, Zara,
flaug sams konar vél þegar hún setti
heimsmet sitt í fyrra.
„Ég get ekki bent á einn hápunkt
heldur hafa þeir verið margir,“ sagði
Rutherford, aðspurður um hvað
stæði upp úr. En hann hefur ekki
flogið beina leið heldur lagt lykkjur
á hana til Madagaskar, Mexíkó og
fleiri staða.
Sá leggur sem Rutherford kláraði
í gær var frá Narssarssuaq á suður-
hluta Grænlands.
„Það var ótrúlega gaman að fljúga
yfir Afríku, Suðaustur-Asíu, Japan
og stóru borgirnar í Bandaríkj-
unum. Grænland var líka rosalegt,“
sagði hann.
Rutherford hefur lent í ýmsum
hikstum á leið sinni. Hann var þó
ekki endilega á þeirri skoðun að
hafa nokkurn tímann verið í hættu.
„Það fer eftir því hvað þú skil-
greinir sem hættu,“ sagði Ruther-
ford. „Ég hef nokkrum sinnum lent
í stressandi aðstæðum í ferðinni. Til
dæmis var þessi leggur til Íslands
erfiður því það var lágskýjað og
úrhellisrigning yfir Atlantshafinu.
Margt til að vara sig á.“
En foreldrarnir, eru þeir ánægðir?
„Þau voru hikandi í byrjun. En síðan
sættust þau við þetta og styðja mig
fullkomlega.“
En hvað skyldi taka við þegar
þessu ævintýri lýkur? Rutherford
segist ekki útiloka að reyna við
önnur heimsmet í framtíðinni en
fyrst tekur alvara lífsins við.
„Þegar þessu lýkur ætla ég heim
að klára skólann. Ég þarf að vinna
upp tímann sem ég hef misst úr
námi,“ sagði Rutherford. „Ég stefni
á háskólanám í framtíðinni en ég
ætla ekki að hætta að f ljúga. Mér
finnst líklegt að ég verði atvinnu-
flugmaður.“ n
Indælt að sjá eldgosið milli skýjanna
Hinn ungi Rutherford var ánægður eftir erfiðan legg frá Grænlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
benediktboas@frettabladid.is
DALVÍK Byggðaráð Dalvíkur hefur
samþykkt að setja eina milljón
króna til að laga fráveitu við félags-
heimilið Ungó.
Í fundargerð ráðsins segir að
vandamálin séu tengd salernum
í anddyri Ungó og séu ítrekuð.
Fram kemur að kostnaður sé nokk-
uð ófyrirséður enda ekki nákvæm-
lega vitað um umfang eða nákvæma
staðsetningu á því sem þarf að laga
- þar sem ekki liggur nákvæmalega
fyrir hvert vandamálið er. n
Vilja laga salernið
í félagsheimilinu
Staðið með Salman Rushdie
Hópur fólks safnaðist saman við bókasafn í New York í gær til að lýsa yfir stuðningi við og samstöðu með rithöfundinum Salman Rushdie, sem fyrir átta
dögum var sýnt banatilræði er hann hélt fyrirlestur í Chautauqua stofnuninni þar í borginni. Í hópnum var fólk úr bókmenntaheimi New York. Tilræðis-
maðurinn hefur lýst yfir sakleysi sínu en hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og grófa líkamsárás. Rushdie hlaut tíu hnífsstungur en er á batavegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Ítrekað hefur komið upp vandamál
frá salernum í anddyri Ungó.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
SAMFÉLAG Konur af erlendum upp-
runa sinna láglaunastörfum í ferða-
þjónustu. Konur eru um þriðjungur
menntaðra lögreglumanna en hlut-
fall kvenna lækkar mikið eftir því
sem ofar dregur í starfsstigi. Aðeins
25 prósent stjórnarformanna félaga
í eigu ríkisins eru konur og tæplega
40 prósent lykilstjórnenda í ríkis-
fyrirtækjum.
Þetta er meðal þess sem segir í
Kortlagningu kynjasjónarmiða sem
birtist í gær á vef stjórnarráðsins.
Þar segir ennfremur að konur hafi
að meðaltali tæplega 13 prósenta
lægri atvinnutekjur en karlar.
Rannsók nir sý na að konur
beri almennt meiri ábyrgð á
umönnun barna en karlar. Það
birtist meðal annars í því að við
sambúðarslit semja langf lestir
foreldrar um sameiginlega forsjá
barna en lögheimilið er í f lestum
tilfellum hjá móður. Hlutfall feðra
sem fullnýta ekki sjálfstæðan rétt
sinn til fæðingarorlofs hefur farið
minnkandi.
Ákvað ríkisstjórnin í gær, að til-
lögu forsætisráðherra, að hefja und-
irbúning að rannsókn á ólaunuðum
heimilis- og umönnunarstörfum,
sem stundum nefnast önnur og
þriðja vaktin.
Er bent á í tilkynningu frá ríkis-
stjórninni að í skýrslunni komi
fram að slík rannsókn gæti fangað
kynjaðan raunveruleika og nýst við
stefnumótunarvinnu, líkt og raunin
hefur verið í nágrannalöndunum. n
Ríkið rannsakar
heimilisstörfin
Það eru ekki margir karlar sem
pakka fyrir ferðalög. Það lendir oftar
á konum sem kallast þriðja vaktin.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 Fréttir 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ