Fréttablaðið - 20.08.2022, Qupperneq 8
Ein helsta áskorunin
sem hið evrópska
mannréttindakerfi
stendur nú frammi
fyrir eru popúlískir
stjórnunarhættir sem
eru að aukast í mörg
um Evrópuríkjum.
Róbert Spanó, forseti
Mannréttindadómstóls Evrópu
Mannréttindareglur
gætu skipt máli þegar
ákveða þarf lagalegar
afleiðingar aðgerða
leysis við loftslags
vánni.
VÍKURGATA 15
TIL SÖLU
GARÐABÆ
www.fastlind.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR
Stórglæsilegt einbýlishús
á einstakri útsýnislóð við Urriðavatn í Garðabæ
Heimir
Lögg. fasteignasali
849 0672
heimir@fastlind.is
Einbýlishús // Stærð 346,6 fm
6 herbergja // 3 baðherbergi
Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar, fataherbergi inn af
þremur svefnherbergjum, arinn og stór tvöfaldur bílskúr.
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
Innrás Rússlands í Úkraínu,
popúlískir stjórnarhættir
í mörgum Evrópuríkjum,
loftslagsvá og fleiri áskoranir
blasa við mannréttindakerfi
Evrópu. Róbert Spanó, forseti
Mannréttindadómstóls Evr
ópu, fer yfir flókin verkefni
dómstólsins á næstu miss
erum. Hann lætur af embætti
eftir rúma tvo mánuði.
adalheidur@frettabladid.is
MANNRÉTTINDI Miklar áskoranir
blasa við Mannréttindadómstól
Evrópu og öllu mannréttindakerfi
álfunnar vegna innrásar Rússa í
Úkraínu, útgöngu þeirra úr Evrópu
ráðinu, popúlískra stjórnarhátta í
mörgum Evrópuríkjum, aðför að
sjálfstæði og trausti á dómstólum
auk þeirrar loftslagsógnar sem
blasir við heiminum öllum. Róbert
Spanó forseti Mannréttindadóm
stólsins fjallar um þessar áskoranir
í grein á vef Fréttablaðsins í dag.
Í greininni sem er byggð á erindi
Róberts á Norræna lögfræðinga
mótinu sem haldið var í Reykjavík
í vikunni, segir hann innrás Rúss
lands í Úkraínu hafa gerbreytt
pólitísku og efnahagslegu landslagi
Evrópu og raunar lagalegu einnig.
Rússlandi var vísað úr Evrópuráð
inu í mars síðastliðnum og mun eftir
16. september ekki teljast aðildar
ríki mannréttindasáttmálans.
Dómstóllinn stendur frammi
fyrir því verkefni að leysa úr 18 þús
und rússneskum málum en þrátt
fyrir að Rússland eigi ekki lengur
aðild, falla fyrirliggjandi mál ekki
utan lögsögu dómsins.
„Mitt hlutverk sem forseta dóms
ins áður en ég lýk störfum 1. nóv
ember næstkomandi, er að gera allt
sem í okkar valdi stendur til að leysa
þetta verkefni farsællega og undir
búa farveginn fram á við,“ segir
Róbert í greininni.
Hann spyr svo hvaða lærdóm
megi draga af því að eitt ríki ráðist
inn í nágrannaríki sitt, eftir alla
lýðræðisþróunina frá seinna stríði,
uppbyggingu þjóðaréttar og til
komu Sameinuðu þjóðanna og Evr
ópuráðsins, sem bæði ríkin hafi átt
aðild að.
„Innrás Rússa í Úkraínu er eitt
skýrasta dæmið um það hvað ger
ist þegar lýðræði nær ekki að festa
rótum, þegar lýðræðið er aðeins
orðin tóm, þegar þeir sem ekki
samþykkja ofurvald valdhafanna
eru þaggaðir niður, jafnvel fang
elsaðir á annarlegum forsendum,
þegar umburðarlyndið er lítið sem
ekkert fyrir óvinsælum skoðunum
eða fyrir lífsmáta sem ekki er talinn
sannur að mati valdhafa eða í sam
ræmi við svokallaðar hefðbundnar
kenningar um hvað telst til viður
kennds fjölskyldulífs. En dæmin
um þróun af þessu tagi eru ekki
aðeins bundin við þetta tiltekna
ríki, þau er fleiri,“ segir Róbert, en í
greininni rekur hann einnig hvernig
sótt hefur verið að sjálfstæði dóms
valdsins og þar með að þrígreiningu
ríkisvalds.
„Ein helsta áskorunin sem hið
evrópska mannréttindakerfi stend
ur nú frammi fyrir eru popúlískir
stjórnunarhættir sem eru að aukast
í mörgum Evrópuríkjum þar sem
dómarar eru sakaðir um að vinna
gegn hagsmunum „fólksins“ (innan
gæsalappa). Slíkir stjórnmálamenn
leitast við að veikja dómsvaldið,
gera það pólitískt þóknanlegt meiri
hlutanum, koma í veg fyrir að dóm
arar sinni skyldum sínum. Með því
er vegið alvarlega að réttarríkinu
því án sjálfstæðra og óvilhallra
dómara er réttarríkið úr sögunni,“
segir Róbert.
Hann lætur þess getið að þótt
Ísland megi með sanni kalla rétt
arríki, steðji tiltekin hætta að, bæði
innanlands og utan. Róbert víkur
að mikilvægum málum sem leyst
hefur verið úr um sjálfstæði dóms
valdsins á vettvangi MDE og nefnir
fjölda dóma sem kveðnir hafa verið
upp um breytingar á dómskerfi Pól
lands. Málin hafi falið í sér mikla
áskorun enda varði þau fullveldi
ríkisins og stjórnskipun og inn
grip alþjóðastofnana eins og MDE,
verði aðeins réttlætt með því að
umræddar breytingar gangi gegn
réttarríkinu og þrígreiningu ríkis
valdsins.
Róbert víkur einnig að loftslags
vánni í grein sinni en þrjú mál henni
tengd eru til meðferðar hjá yfirdeild
réttarins. Enn eigi eftir að koma í
ljós hvaða jákvæð áhrif mannrétt
indareglur geti haft á þeim sviðum
og svar Mannréttindadómstólsins
muni senn líta dagsins ljós. Hann
segir viðfangsefnið áskilja yfir
vegaða og ígrundaða umræðu um
mörk lögfræði og stjórnmála, hlut
verk stjórnmálamanna og dómara.
Ekki sé útilokað að mannréttinda
reglur geti skipt máli þegar leysa
þurfi ágreining um hvort skortur
á viðbrögðum einstakra ríkja við
vánni hafi lagalegar afleiðingar. n
Miklar áskoranir blasa við
Mannréttindadómstólnum
Róbert Spanó lætur af embætti forseta Mannréttindadómstóls Evrópu 1. nóvember næstkomandi. MYND/AÐSEND.
8 Fréttir 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ