Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 21
Boðið verður upp á hressingu á fundunum.
Mótum
framtíðina
saman
Skannaðu inn
QR kóðann til
að skrá þig.
Forsætisráðherra býður til opinna samráðsfunda um landið
vegna vinnu við Grænbók um mannréttindi. Á fundunum verður
fjallað um stöðu mannréttinda á Íslandi, helstu áskoranir,
tækifæri og valkosti til framfara.
Öll eru velkomin. Skráning fer fram á stjornarradid.is/mannrettindafundur.
Hægt er að fara inn á síðuna með því að skanna QR-kóðann í vinstra horni
auglýsingarinnar. Gott aðgengi er á öllum fundarstöðunum fyrir hjólastóla og
táknmálstúlkun stendur til boða sé þess óskað með 7 daga fyrirvara.
Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
29. ágúst kl. 16:00 Selfoss (Hótel Selfoss)
31. ágúst kl. 16:00 Reykjavík (Ríma í Hörpu)
5. september kl. 17:00 Akureyri (Hamar í Menningarhúsinu Hofi)
6. september kl. 17:00 Egilsstaðir (Icelandair Hótel Hérað)
8. september kl. 10:00 Ísafjörður (Edinborgarhúsið)
Opnir samráðsfundir um stöðu mannréttinda
á vegum forsætisráðuneytisins
Dagskrá
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Opnunarávarp
Dr. Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands
Hvað eru mannréttindi?
Örerindi um mannréttindi
Selfoss: Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Reykjavík: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
Akureyri: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Egilsstaðir: Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og
stjórnarmaður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Ísafjörður: Nichole Leigh Mosty, forstöðumaður Fjölmenningarseturs
Umræður
Fundargestum er skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni.
Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Tekur þetta á kassann
Hilmar Gunnarsson trónir í fyrsta
sæti þegar kemur að áheitum fyrir
Reykjavíkurmaraþonið. Hilmar hleypur
fyrir Reykjadal, sumarbúðir fyrir fötluð
börn og unglinga og hafði þegar þetta
er ritað safnað 1.475.000 krónum.
Hilmar hefur góða reynslu af
Reykjadal þar sem sonur hans, Kristó-
fer, hefur notið dvalar. Kristófer er
greindur með afar sjaldgæfan litninga-
galla sem kallast Ring 18. Kristófer sem
er 11 ára er sá eini með þetta heilkenni
hér á landi sem lýsir sér í mikilli þroska-
skerðingu og fötlun. „Ég held ég sé eins
klár og ég get verið en annars er ég
ekkert í þessu dags daglega. Að hlaupa
til góðs hvetur mig áfram og ég læt mig
hafa það með glöðu geði. Ég er bara
búinn að vera að hlaupa 3 til 5 kíló-
metra en hef svo verið að einbeita mér
að hvíldinni fyrir átökin,“ segir Erling í
léttum tón. „En það þarf ekkert að hafa
áhyggjur af mér – ég skila mér,“ segir
Hilmar, sem hljóp einmitt 10 kílómetra
fyrir 10 árum. „Svo það er bara passlegt
að hlaupa þetta á 10 ára fresti.“
„Síðast ætlaði ég bara að labba og
taka þessu rólega ef ég yrði þreyttur
en svo er bara fólk með potta og
pönnur og trompeta á hverju götu-
horni að hvetja mann áfram. Svo það er
ekkert hægt að vera að hlunkast þetta
– maður tekur þetta bara á kassann.”
segir hann og hlær.
Hafa safnað á
þriðju milljón til
góðra málefna
Hilmar Gunnarsson ásamt syni sínum,
Kristófer. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Erling Daði og Svanhvít Yrsa með
dóttur sinni. MYND/AÐSEND
Þeir Hilmar Gunnarsson og Erling Daði
Emilsson hafa safnað hæstu áheitunum fyrir
Reykjavíkurmaraþonið. Báðir hlaupa þeir
fyrir félög sem hafa reynst börnum þeirra vel,
Hilmar fyrir Reykjadal og Erling fyrir Styrktar-
félag krabbameinssjúkra barna.
Veðrið algjört aukaatriði
Erling Daði Emilsson er í öðru
sæti yfir þá sem safnað hafa
mestu fyrir Reykjavíkurmara-
þonið í dag. Erling safnar fyrir
Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna og hafði þegar
blaðið fór í prent náð að
safna 1.193.900 krónum.
Erling hefur sjálfur reynslu
af Styrktarfélaginu en í sept-
ember á síðasta ári greindist
átta ára dóttir hans og Svan-
hvítar Yrsu Arnardóttur með
krabbamein. Í kjölfarið fylgdi
ströng meðferð á Barna-
spítala Hringsins og á sjúkra-
húsum í Svíþjóð sem stendur
enn yfir.
Hjónin ætla bæði að hlaupa
til styrktar SKB, Erling heilt
maraþon og Svanhvít hálft.
Félagið hefur stutt vel við bak
fjölskyldunnar og langaði þau
að gefa til baka.
Erling var vel stemmdur
þegar Fréttablaðið heyrði
í honum. „Það er búið að
myndast hrikalega skemmti-
leg stemning í kringum þetta
svo mann bara hlakkar til,“
segir Erling, sem hefur einu
sinni áður tekið þátt í Reykja-
víkurmarþoninu.
„Hlaupin hafa gefið okkur
mikið í þessu ferli. Til dæmis
þegar við erum með hana í
meðferð úti í Svíþjóð á sólar-
hringsvöktum á spítalanum
er gott að komast út að
hlaupa.“
Samtals hafa þau hjónin
safnað um tveimur millj-
ónum og segir Erling það hafa
komið á óvart. „Maður átti
ekki von á svona miklu og er
nánast orðlaus.“
Erling segist mæta með
bros á vör og gleði í hjarta þó
spáð sé norðanátt en dregur
fljótt í land með áhyggjur af
veðri. „Það er algjört aukaat-
riði á svona degi. Það verður
svo mikil stemning. Svo er
rosalega erfitt að fara að
kvarta yfir einhverju sem
maður sjálfur skráði sig í því
þegar maður er búinn að
horfa upp á börn í krabba-
meinsmeðferð.“
Helgin 21LAUGARDAGUR 20. ágúst 2022 FRÉTTABLAÐIÐ