Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 24
töf lur í tvær vikur fyrir upp-
setninguna og fá svo sprautur fyrstu
þrjá mánuði meðgöngunnar, en
síðan ekkert meir. Ég var svo ekki
viss hvort ég gæti verið með hann á
brjósti en það hefur gengið eins og
í sögu.“
Aldursviðmið klíníka misjöfn
Áslaug hafði samband við nokkrar
stofur áður en hún hóf meðferð.
„Ég er orðin of gömul fyrir slíka
meðferð hér heima en mig minnir
að það miðist við 45 ára aldurinn,“
segir Áslaug. Blaðamaður hafði sam-
band við Livio til að staðfesta þær
tölur og fékk þær upplýsingar að
hámarksaldur konu í meðferð með
eigin eggjum er 43 ára og í meðferð
með gjafaeggjum er það 48 ára.
„Í Bandaríkjunum eru reglurnar
mismunandi á milli klíníka. Sumar
miða við 45 ára, sumar 50 og aðrar
samþykkja eldri konur í meðferð. Ég
veit að sumar klíníkur eru einfald-
lega með lægra aldursviðmið til að
geta sýnt fram á hærri árangurs-
tölur, því auðvitað er hann minni
eftir því sem konan er eldri. Það tók
smá tíma að finna klíník sem var
tilbúin til að gera þetta fyrir konu
sem er komin yfir fimmtugt,“ segir
Áslaug og segir aðspurð kostnað við
meðferðina hlaupa á einhverjum
milljónum króna.
„Mér finnst svolítið leiðinlegt að
það séu svona stíf aldurstakmörk
hér heima því konur eru sífellt að
eignast börn seinna. Fólk lifir leng-
ur en það gerði áður og tækninni
hefur f leygt fram. Ef móðirin er
hraust þá finnst mér bara frábært
ef hægt er að hjálpa henni. Sumar
klíníkur úti voru með stífar reglur
á meðan aðrar byggðu á heilsufari
móður og auðvitað þurfti ég að fara
í ýmiss konar heilsufarsskoðanir.
Við tengdumst UCSF, spítala í San
Fransisco í meðferðinni, en þar var
gerð undantekning á 50 ára regl-
unni fyrir mig vegna góðrar heilsu.
Við þurftum aftur á móti að gera hlé
á meðferðinni þegar Covid skall á og
á meðan biðum við hér heima. Við
byrjuðum ferlið svo aftur í fyrra-
sumar og tengdumst þá annarri
klíník, San Diego Fertility Center
sem ég mæli eindregið með. Þeir
taka margar konur yfir fimmtugt
í meðferð. Uppsetningin var svo í
september.“
Gekk betur en hún átti von á
Áslaug var heppin og fyrsta upp-
setningin gekk vel. „Það var mikil
heppni að þetta gengi í fyrsta skipti
og við reyndum að fylgja öllum
reglum og fara varlega. Það var gerð
erfðagreining (genetic testing) á
frjóvguðu eggjunum fyrir ísetningu
til að ákvarða hvaða egg væru lík-
legust til árángursríkrar ísetningar.
Meðgangan gekk vel þó smá örðug-
leikar hafi valdið því að ég var beðin
að vera ekki í líkamsrækt og fljúga
ekki og því ílengdumst við hér á
Íslandi. Á þeim tíma annaðist fag-
fólk kvennadeildar Landspítalans
mig og fékk ég frábæra þjónustu þar.
Ég get í raun ekkert kvartað og þetta
gekk betur en ég átti von á þó svo
auðvitað sé þetta erfiðara en þegar
maður er 25 ára eins og ég var þegar
ég átti eldri soninn.
Maður er á allt öðrum stað en
áður. Þegar ég átti frumburðinn,
Gunnar, var ég stressuð yfir öðrum
hlutum. Ég var nýútskrifuð úr lög-
fræðinni og hafði áhyggjur af starfs-
ferlinum og fannst einangrunin
fyrstu mánuðina erfið. Maður tók
því sem sjálfsögðum hlut að geta
eignast barn en í dag upplifi ég
mikið þakklæti og reyni að njóta
hverrar mínútu.“
Meðganga og fæðing eru mjög
samtengd ferli í bandaríska heil-
brigðiskerfinu og til að mynda er
vaninn sá að kona gangi til fæðing-
arlæknis alla meðgönguna, sem svo
tekur á móti barninu.
„Minn fæðingarlæknir ákvað
snemma að barnið skyldi tekið
með keisara. Það er mun algengara
í Bandaríkjunum en hér á Íslandi en
hún vildi það vegna aldurs míns auk
Ãslaug segist
hugsa hlutina
á annan hátt
en þegar hún
fyrst varð móðir
25 ára. Nú sé
tíminn með
syninum númer
eitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
þess sem Gunnar var tekinn með
bráðakeisara á sínum tíma.“
Algjört kraftaverk
Ocean Thor fæddist þann 31. maí
síðastliðinn í Kaliforníu og gekk
fæðingin vel. „Það var stórkostleg
upplifun að fá þennan litla gaur í
fangið. Mörgum árum áður var ég
búin að afskrifa þann möguleika að
ég myndi eignast fleiri börn, þannig
að fyrir mér var þetta algjört krafta-
verk.“
Áslaug segir fyrstu mánuðina
með syninum hafa gengið vel og það
er augljóst að drengurinn á hug og
hjarta foreldra sinna. „Nú erum við
líka komin með aðstoð hér heima
með hann. Sem frumkvöðull getur
maður ekki hætt að vinna eftir
barneignina. Það er því gott að fá
smá aðstoð.“
„Líkamlega er þetta auðvitað
erfiðara og ég held að það hafi haft
áhrif að hafa ekki mátt hreyfa mig
lengi á meðgöngu og ekki í sex vikur
eftir keisarann. En hann sefur alveg
í fimm til sex tíma í einu yfir nótt-
ina svo við erum heppin með það en
auðvitað er erfiðara að vakna á nótt-
unni en áður,“ segir Áslaug og hlær.
„Nú er enn mikilvægara en
nokkru sinni fyrr að við höldum
okkur eins heilbrigðum og við
getum fyrir hann,“ segir Áslaug,
aðspurð um óttann við að vera eldra
foreldri. „Draumurinn er auðvitað
að við getum hitt hans börn ef hann
ákveður að eignast börn. En ef hann
bíður til fimmtugs eins og pabbi
sinn þá er það kannski erfiðara,“
segir hún og skellir upp úr.
Meðvituð um að nýta tímann
„Við erum mjög meðvituð um að
nýta tímann og vonum að hann fái
að njóta með okkur eins og hægt
er, auðvitað spáir maður í þessu.
En hann á eldri bróður og stóra
fjölskyldu á Íslandi sem er frá-
bært. Þetta er auðvitað partur af
því sem við hugsuðum um áður en
við tókum þessa ákvörðun, hvort
það væri slæmt fyrir hann að við
værum orðin þetta gömul. En á móti
kemur að vonandi getum við varið
meiri tíma með honum heldur en
ég gat gert þegar ég var 25 ára. Við
erum bæði frumkvöðlar en vinnum
mikið heiman frá og höfum þann-
ig sveigjanleika í starfi. Vonandi
fær hann þannig aðra hluti á móti
sem hann hefði ekki fengið ef við
hefðum verið mikið yngri.“
Breytt gildi og eftirsjá
Áslaug og fyrrum eiginmaður
hennar og hinn barnsfaðir, Gunn-
ar Thoroddsen, skildu þegar sonur
þeirra var ungur og fluttu þeir feðg-
ar saman til Íslands á meðan Áslaug
stökk á tækifærin sem henni buðust
eftir framhaldsnám í Harvard og
sonurinn kom til hennar í fríum.
Í viðtali við helgarblaðið fyrir
tveimur árum lét Áslaug hafa eftir-
farandi eftir sér varðandi þann
viðskilnað: „Ég veit ekki hvort ég
myndi taka sömu ákvörðun í dag
enda breytast gildi manns með
árunum. Á þessum tíma var ég svo
staðráðin í að fara í þetta nám og
reyna fyrir mér á erlendri grundu
og erfiðasti hluti þess var að geta
ekki verið nægilega mikið með
syni mínum. Við vildum auðvitað
bæði hafa hann en niðurstaðan var
svona.“
Eftirsjáin situr í henni.
„Ég sé alltaf eftir því að hafa ekki
getað eytt meiri tíma með honum
en ég gerði og að hafa tekið ákvörð-
un um að vera á þessu flakki. Hann
sem betur fer heppnaðist mjög
vel og við erum mjög náin,“ segir
Áslaug.
„Núna munum við gera þetta
öðruvísi og tíminn með syninum er
númer eitt. Auðvitað eru fyrirtækin
okkar að vissu leyti líka börnin
okkar en fjölskyldan er númer eitt
og það er engin spurning.“
Ólétta amman
Stuttu áður en Ocean Thor kom
í heiminn varð Áslaug jafnframt
amma þegar Gunnar sonur hennar
eignaðist frumburð sinn, soninn
Óliver Gunnar, með sambýliskonu
sinni Marlenu Piekarska. „Ég var því
ólétta amman,“ segir Áslaug og hlær.
„Óliver kom snemma og það voru
framkvæmdir í íbúðinni þeirra svo
þau voru hérna uppi hjá okkur
fyrstu vikurnar. Við fengum þannig
smá tíma með honum og Sacha smá
æfingu áður en föðurhlutverkið tók
við.“
Það eru rúmir þrír mánuðir á
milli drengjanna og því viðbúið að
þeir verði nánir. „Það eru rosalegar
tilfinningar sem fylgja því að eign-
ast ömmubarn,“ segir Áslaug alsæl.
Fjölskyldan kom til landsins frá
Kaliforníu í vikunni og hittust þeir
félagar þá í fyrsta sinn. „Þeir brostu
til hvors annars,“ segir hún með
hlýju. „Ætli þeir verði ekki bara eins
og bræður sem er æðislegt. Ég mun
því reyna að halda þeim öllum hér
á neðri hæðinni sem lengst,“ segir
Áslaug og hlær.
„Mamma og maðurinn hennar
eru ótrúlega hamingjusöm að fá tvo
svona í einu,“ segir Áslaug, aðspurð
um viðbrögð hennar fólks. „Gunn-
ar sonur minn var eina barnabarnið
hennar mömmu svo þetta er rosaleg
hamingja fyrir hana og við sjáum
fyrir okkur miklu meira líf um jólin
enda búið að vera frekar rólegt síð-
ustu tuttugu ár.“
Eldri mæður í Bandaríkjunum
Áslaug er ekki frá því að koma
Ocean hafi kveikt hugmyndina að
barneignum hjá einhverjum vin-
konum hennar sem eru komnar vel
yfir fertugt.
„Í stórborgum í Bandaríkjunum
er mikið um eldri mæður og rosa-
lega algengt að konur eignist börn
eftir 45 ára. Kerfið er allt öðruvísi
og margar konur sem taka ákvörð-
un um að eignast barn og hætta
að vinna um leið. Vinnudagar eru
langir og lítið um frí eða fæðingar-
orlof. Þá eru þær oft alveg vel yfir
fertugt og alveg algengt að þær séu
yfir fimmtugt. Fólk þar er því ekk-
ert hissa á að við komum með barn
núna. Við erum aðallega bara ótrú-
lega heppin að fá þennan dásamlega
kút til okkar.“ n
Áslaug segir meðgönguna hafa gengið mjög vel þó smá örðugleikar hafi
valdið því að hún hafi verið beðin að fljúga ekki um tíma. Mynd/aðsend
Þetta er auðvitað
partur af því sem við
hugsuðum um áður en
við tókum þessa
ákvörðun, hvort það
væri slæmt fyrir hann
að við værum orðin
þetta gömul.
24 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ