Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 26
Pólitík
Bjarna
Benedikts-
sonar er
allsráðandi
í ríkis-
stjórninni.
Já, fólk
hefur borið
okkur
Ingibjörgu
Sólrúnu
saman og
ég er upp
með mér
yfir því. Í
grunninn
er ég þó
bara ég
sjálf.
Margir sjá Ingibjörgu Sólrúnu
fyrir sér þegar Kristrún Frosta-
dóttir stígur í pontu. Hún
segist þó fyrst og fremst hún
sjálf. Í helgarviðtali við Frétta-
blaðið segir hún frá örlagaríku
símtali sem markaði upphafið
á pólitískum ferli hennar,
hættulegri einstaklingshyggju
og allt of miklum áhrifum
Bjarna Benediktssonar í ríkis-
stjórninni.
Ég upplifði mikla ábyrgð á
daglegu lífi sem krakki.
Sá snemma sjálf um að
vakna á morgnana, var
mjög samviskusöm og
og hlýðin, alltaf alvarlegt barn. Ég
ætlaði að verða verkfræðingur,“
segir Kristrún Frostadóttir, rísandi
stjarna stjórnmálanna og brosir, í
eldhúsinu heima hjá sér.
Ísland er allt undir hjá hinni 34
ára gömlu þingkonu sem vænta
má að verði næsti formaður Sam-
fylkingarinnar. Kristrún segist hafa
metnað til að leiða næstu ríkisstjórn
ef spilin stokkast þannig. Megin-
áherslur hennar hverfist um efna-
hagsmál, velferðarmál, heimili og
atvinnu.
Kristrún er yngst þriggja systkina,
dóttir læknis og þjóðfræðings. Eftir
MR lá leið hennar vestur til Banda-
ríkjanna þar sem hún stundaði
nám í hagfræði við Boston háskóla
og Yale.
„Það voru í raun tilviljanir sem
leiddu mig á stað stjórnmálanna
þrátt fyrir fyrri áætlanir um annað,
en þekking mín úr bankageiranum
hefur komið sér vel.“
Covid kveikti í mér
Eftir námsárin úti kom Kristrún
heim til Íslands og sinnti ýmsum
störfum. Vorið 2020 var hún orðin
aðalhagfræðingur Kviku og fór að
skrifa fréttabréf sem fangaði athygli
fjölmiðla.
„Það var Covid sem kveikti í mér.“
Með því á Kristrún við að hún
hafði sérhæft sig í rannsóknum á
krísum og hagstjórnarmistökum
stjórnvalda í þeim. Hún hafði
gaumgæft og skrifað um viðbrögð
íslenskra stjórnvalda eftir efna-
hagshrunið og óttaðist þegar Covid
kom upp að stjórnvöld myndu ekki
grípa til réttra aðgerða. Meðal ann-
ars gætu orðið alvarleg áhrif á hús-
næðismarkað.
„Eftir Covid var ráðist í heilmiklar
örvunaraðgerðir í gegnum banka-
kerfið, mikið fjármagn flæddi inn á
húsnæðismarkað, en fénu var ekki
stýrt beint af stjórnvöldum," segir
Kristrún.
„Ég upplifði að mér væri skylt
að miðla þekkingu minni, því það
var hægt að sjá fyrir að fjármagnið
myndi leiða til mikilla eignaverðs-
hækkana, fyrst og fremst á húsnæð-
ismarkaði en einnig á fjármagns-
mörkuðum. Þetta var ekki það sem
hagkerfið þurfti. Það þurfti aftur á
móti að styðja við atvinnulaust fólk
og tekjulaus fyrirtæki vegna Covid.“
Passaði ekki alveg inn
Kristrún fékk að heyra að það gæti
verið hættuspil að vera hagfræðing-
ur í banka og tala á opnum pólitísk-
um nótum um hlutverk ríkisins.
„Sumum fannst líka erfitt að skilja
að það væri bæði hægt að vinna við
banka og vera jafnaðarmaður. En ef
maður horfir til Norðurlandanna
þá er viðskiptafólk þar ekkert endi-
lega til hægri. Jafnaðarmenn trúa
á sambland ríkis og markaðar, vel-
ferðarkerfi er ekki mótsögn í við-
skiptalífi.“
„Margir sögðu: Er þetta ekki
aðeins of pólitískt sem þú ert að
segja? Ég reyndi að svara á móti að
það væri ekki bara mikilvægt heldur
mjög frelsandi að ræða pólitísk mál.
Lífið er mjög pólitískt.“
Örlagaríkt símtal
Sú tilviljun sem kannski á stærstan
þátt í straumhvörfum á ferli Krist-
rúnar er að einn dag árið 2020
hringdi fyrrverandi blaðamaður
Ég var alltaf alvarlegt barn
„Sumum fannst
líka erfitt að
skilja að það
væri bæði
hægt að vinna
við banka og
vera jafnaðar-
maður. En ef
maður horfir
til Norður-
landanna þá er
viðskiptafólk
þar ekkert endi-
lega til hægri,”
segir pólitísk
stjarna sam-
tímans, Kristrún
Frostadóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
„Ég naut góðs
af mennta- og
heilbrigðiskerf-
inu og finn fyrir
vikið til mikillar
ábyrgðar gagn-
vart samfélag-
inu. Ég er partur
af hópi og þess
vegna verður
að tala um hve
hættuleg ein-
staklingshyggj-
an getur verið
samfélögum.”
á Stundinni í hana, Jóhann Páll
Jóhannsson. Hann hafði mikinn
áhuga á efnahagsmálum og vegna
hvatningar hans og fleira ungs fólks
síðar, ákvað hún að fara í framboð í
f lokkskjöri í Reykjavík og flaug inn
á þing. Kristrún segir að Alþingi sé
mjög sérstakur vinnustaður. Þing-
menn séu margir hverjir drifnir
áfram af hugsjón en enginn skortur
sé þó á stórum egóum.
„Það sem kom mér sennilega
mest á óvart á þinginu er hve margt
er óvandað og hraðsoðið, sennilega
vegna þess að það er sífelld pólitísk
stöðutaka í gangi. Fjárlögum upp á
1.000-1.200 milljarða er rubbað af á
þremur til fjórum vikum. Samráðs-
ferli sem ætti að standa mánuðum
saman haft að engu.“
Kristrún verður alvarleg á svip
þegar hún nefnir sérstaklega hvað
ráðuneyti Bjarna Benediktssonar
hafi mikil áhrif á vinnu fjárlaga-
nefndar.
„Fjármálaráðuney tið leg gur
algjörlega línurnar. Það er valda-
mesta ráðuneytið.“
Er hún að segja að Bjarni Ben hafi
í raun meiri völd en Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra?
„Pólitík Bjarna Benediktssonar er
allsráðandi í ríkisstjórninni,“ svarar
Kristrún að bragði. „Ríkisstjórnin
stundar að stilla upp einhverju, að
fjármál séu ekki pólitík heldur nátt-
úrulögmál. En það er rosaleg pólitík
í ríkisfjármálastefnunni og sú póli-
tík yfirgnæfir allt annað.“
Skaðleg einstaklingshyggja
Stefna ríkisfjármálanna bitnar, að
sögn Kristrúnar, á sumum hópum
umfram aðra. Hún komi verst við
þá sem njóti greiðslu úr almanna-
sjóðum, margt ungt fólk, öryrkja
og aldraða.
„Einstaklingshyggjan í pólitík-
inni síðasta áratug er mér alls ekki
að skapi.“
Það má sjá glóð í augum forystu-
konunnar þegar hún heldur áfram:
„Ég er í hópi þeirra sem hafa notið
velgengni en það er ekki mér einni
að þakka. Mér hefur gengið vel
vegna þess að ég ólst upp í íslensku
samfélagi og á jafnaðarhugsjón
Íslendinga fyrr á tímum margt að
þakka.“
„Ég naut góðs af mennta- og heil-
brigðiskerfinu og finn fyrir vikið til
mikillar ábyrgðar gagnvart sam-
félaginu. Ég er hluti af hópi og þess
vegna verður að tala um hve hættu-
leg einstaklingshyggjan getur verið
samfélögum. Þótt alvarlegir brestir
hafi orðið hér á landi er enn mjög
gott að búa á Íslandi vegna þess að
hér er samkennd og hér eru sam-
eiginlegir sjóðir til að létta undir.
Fólk sem nýtur velgengni þarf að
átta sig á að það komst ekki á þann
stað einsamalt.“
Stundum líkt við Ingibjörgu
Kristrún segir að í þessu samhengi
séu efnahagsmálin hennar stóra
ástríða. Ráðstöfun fjár hafi áhrif á
allt annað.
„Ég hef fundið í samræðum
mínum við fólkið að landsmenn eru
agndofa yfir úrræðaleysi í ákveðn-
um verkefnum. Verkefnið nú er að
leiða jafnaðarmenn inn í jákvæða
pólitík. Þetta er í okkar höndum.“
Sumir telja sig sjá samsvörun
með ákveðni Kristrúnar og öðrum
leiðtoga Samfylkingarinnar fyrr á
tímum.
„Í stjórnmálum hér innanlands
er Ingibjörg Sólrún mér fyrirmynd
að vissu leyti. Hún er ein af þeim
manneskjum sem maður lítur upp
til, afreka hennar, sannfæringar-
máttar og nærveru. Ég held að allir
muni eftir Ingibjörgu. Það var eitt-
hvað mikið við hana,“ segir Krist-
rún, spurð hvort fyrrum formaður
Samfylkingarinnar sé henni fyrir-
mynd.
„Já, fólk hefur borið okkur Ingi-
björgu Sólrúnu saman og ég er upp
með mér yfir því. Í grunninn er ég
þó bara ég sjálf.“
Telur Kristrún að ungur aldur
hennar í samanburði við f lesta ráð-
andi leiðtoga landsins nú um stundir
sé kostur eða hindrun, er kemur að
vandasömum áskorunum fram-
tíðarinnar?
„Pólitík varðar hag komandi kyn-
slóða og ekki síst barnanna okkar,
ég á þriggja ára dóttur,“ svarar hún
að bragði áður en hún heldur áfram:
„Ég held það sé sérstaklega mikil-
vægt að koma þeim skilaboðum
áfram til ungs fólks að við látum
samfélagið okkur varða. Pólitíska
landslagið hefur verið mjög laskað
eftir hrun, það þótti hreinlega
geislavirkt að taka þátt í pólitískri
umræðu um tíma. Ég fékk iðulega
þær athugasemdir þegar ég steig
fram að kannski væri ráðlegast að
taka enga afstöðu. Við verðum að
átta okkur á að það er pláss fyrir alls
konar fólk í stjórnmálum og póli-
tískri umræðu. Við þurfum að virkja
fólk með alls konar bakgrunn.“
Við Anton Brink ljósmyndari
pökkum saman og kveðjum. En í
huganum sitja eftir orð sem Krist-
rún lét falla, aðspurð um helstu
eiginleika:
„Ég hef fast land undir fótum og
læt ekki þvæla mér út í aukaatriði.
Maður þarf að setja alla orkuna
í störfin, finna kjarnann og fara
þaðan áfram.“ n
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
26 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ