Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 32

Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 32
Það er alls engin skylda að dansa, en varla hjá því komist þegar stemningin er góð. Þetta er smitandi fjör. Bætiefnið Comfort-U frá Good Routine er öflug vörn fyrir þvagfærakerfið og byggir á fjórum virkum inni- haldsefnum sem hafa þekkta eiginleika til þess að koma í veg fyrir blöðrubólgu/þvag- færasýkingu. „Comfort-U er sérhannað fyrir fólk sem vill koma í veg fyrir blöðru- bólgu/þvagfærasýkingu, sem er ein algengasta bakteríusýkingin og algengari hjá konum en körlum. En ein af hverjum fimm konum upplifir að minnsta kosti eina þvag- færasýkingu á ævinni,“ segir Freydís Hjálmarsdóttir, næringarfræðingur að mennt, með BSc, og meistara- gráðu í næringarfræði. „Einstaklingur sem hefur fengið þvagfærasýkingu er í aukinni hættu á að fá sýkingu aftur og talið er að um fjórðungur fái endur- tekna sýkingu innan sex mánaða og þriðjungur innan árs. Þar af leita hundruð sýklalyfjameðferðar við þvagfærasýkingum á Íslandi á hverju ári. Yfir 80% þvagfæra- sýkinga eru taldar vera af völdum þarmabakteríunnar e.coli, en aðrar bakteríur, sveppir og sníkjudýr geta líka valdið þvagfærasýkingum.“ Fyrirbyggjandi er lykilatriði Þvagfærasýkingar geta verið afar óþægilegar en eru þó oftast skað- lausar að sögn Freydísar. „Einstaka sinnum nær sýkingin til efri þvag- færa eins og nýrna, en það er afar óalgengt. Til að mynda verða 30% þvagfærasýkinga einkennalausar á innan við viku án meðferðar. Hins vegar getur verið erfitt að eiga við síendurteknar sýkingar. Þótt þær séu meðhöndlaðar á áhrifaríkan hátt með sýklalyfjum, getur óhófleg notkun sýklalyfja leitt til skaðlegra, heilsufarslegra afleiðinga. Til að forðast of mikla útsetningu fyrir sýklalyfjum leita margir til fæðubótarefna og náttúrulyfja. Rannsóknir þar að lútandi eru af skornum skammti og sumar mis- vísandi, en nokkur fæðubótarefni gefa góða raun þegar kemur að því að koma í veg fyrir þvagfæra- sýkingu.“ Fjögur virk efni Comfort-U inniheldur fjögur efni sem rannsóknir hafa sýnt fram á að geti hjálpað til við að fyrir- byggja þvagfærasýkingar. Það eru einsykran D-mannóse, þarma- gerillinn Lactobacillus rueteri og svo virku efnin í trönuberjum og sortulyngslaufum (e. bearberry leaf). „Trönuberin eru frægust, en eitt virku efnanna í þeim er ein- mitt „D-mannóse“. Sortulyngslauf þekkja flestir undir nafninu uva ursi og „Lactobacillus rueteri“ er einn af góðgerlunum sem finna má til dæmis í AB -mjólk. Af þessum fjórum efnum hefur D-mannóse komið hvað best út úr þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar með tilliti til forvarnar á þvagfærasýkingum. Rannsóknir á D-mannóse sýna fram á marktæka minnkun á endurteknum þvag- færasýkingum hjá þeim sem fá þær reglulega. Til þess að sýking nái fótfestu í þvagfærum þarf e.coli eða önnur örvera að ná að festast við blöðruvegginn. Virkni D-mannóse er sú að bindast til dæmis e.coli bakteríum, skola þeim út með þvagi og koma þannig í veg fyrir sýkingu. Trönuber innihalda meðal annars D-mannóse, hippúrsýru og anthósýanín, sem eru talin torvelda e.coli að festast við þvagblöðru- vegginn. Ekki eru allir á eitt sáttir, en samantekt margra rannsókna sýnir fram á verndandi áhrif D- mannóse gegn þvagfærasýkingum hjá konum sem fá þær reglulega. Ekki skemmir fyrir að trönuber hafa líka marga aðra heilsubætandi kosti. Lauf sortulyngs, (önnur nöfn: uva ursi, bjarnaber, fjalla-trönuber) hafa í árþúsundir verið notuð til að meðhöndla þvagfærasýkingar. Nú benda rannsóknir til þess að það sé svo sannarlega eitthvað til í því og kallað hefur verið eftir fleiri rannsóknum. Sortulyngið inni- heldur örverueyðandi efnasam- bönd sem vinna gegn óvingjarn- legum bakteríum og hjálpa við upptöku á efnum úr trönuberjum. Efnasambönd í laufunum, svo sem Arbutinin, eru talin vinna gegn útbreiðslu e.coli meðal annars og trufla viðloðun bakteríunnar við blöðruvegginn,“ segir Freydís. Hjálplegar örverur Jafnvægi í þvagkerfisflórunni er svo viðhaldið með hjálp gagn- legu bakteríunnar Lactobacillus rueteri. „Hjálplegu örverurnar í líkamanum kallast góðgerlar og er fjöldinn allur af þeim í meltingar- kerfinu. Við getum bætt um betur með trefjaríku fæði, ab-mjólk og skyldum vörum, súrsuðum mat og bætiefnum. Sumir góðgerlar viðhalda jafnvægi í þvagi, leggöngum og meltingarvegi með því að fram- leiða efnasambönd sem leyfa ekki óvinveittum bakteríum að vaxa. Sá stofn sem er talinn hvað mikilvæg- astur fyrir þvagfærakerfið er Lac- tobacillus rueteri. Þessi bakteríu- stofn getur endurheimt náttúrulegt örverujafnvægi í þvagfærum og getur myndað efnasambönd sem leyfa ekki óvinveittum bakteríum að vaxa og dafna.“ Fjölþætt fyrirbyggjandi virkni Í Comfort-U koma saman þrjú virk innihaldsefni sem eru studd af rannsóknum, ásamt Lactobacillus rueteri stofni. Saman eru þessi efni talin geta stutt heilbrigði þvag- færa og veitt fjölþætta vörn gegn þvagfærasýkingum. „Til eru margir mismunandi stofnar góðgerla og fjöldi þeirra í hverjum skammti er merktur með einingunni CFU sem stendur fyrir „colony formin unit“, eða nýlendumyndandi stofn. Í Comfort-U er réttur stofn í nægilegu magni til að hafa tilskilin áhrif án þess að valda skaða, enda er þetta verðlaunuð formúla. Com- fort-U er náttúrulegt bætiefni sem kemur í pillu- og belgjaformi. Forvörn er alltaf best og Com- fort-U hefur það fram yfir sýklalyf að vera laust við aukaverkanir eins og ógleði og magaeinkenni. Comfort-U skaðar ekki vinveittu þarmaflóruna sem er einn helsti ókostur sýklalyfja. Hins vegar er sýklalyfja alltaf þörf ef sýking er staðfest í efri hluta þvagfæra eins og nýrum og ávallt skal fylgja læknis- ráði. Þegar stór hluti kvenna er með endurteknar þvagfærasýkingar, fögnum við því þegar vara á borð við Comfort-U kemur á markað.“ n Good Routine fæst í Lyf og heilsu, Apótekaranum, Hagkaup og Krónunni. Fjölþætt og fyrirbyggjandi vörn gegn þvagfærasýkingum Freydís fagnar því að vara eins og Comfort-U sé komin á markað fyrir íslenskar konur. MYNDIR/AÐSENDAR Comfort-U inni- heldur fjögur efni sem rann- sóknir hafa sýnt fram á að geti hjálpað til við að fyrirbyggja hinar hvimleiðu þvagfærasýk- ingar. Það verður óvenju kátt í Borgarbókasafninu Grófinni í kvöld þegar gestir geta dansað við þögult diskó innan um þögla lestrarhesta. thordisg@frettabladid.is „Ég get lofað því að Súperman með Ladda verður spilað í kvöld. Við leggjum mikið upp úr fjölskyldu- vænum tónum og singalong á viðburðum sem Menningarnótt, þegar allir eru saman að njóta og skemmta sér. Undir Súperman er óhjákvæmilegt að bresta í söng og tilheyrandi dans, en fólk tekur líka alltaf vel við sér í singalong-lögum úr Grease og með Abba,“ segir Bjarki Sigurjónsson, eigandi Silent Diskó, sem sér um að gestir Borgar- bókasafnsins í Grófinni dilli sér á þöglu diskóballi frá klukkan 18 til 20 í kvöld. „Silent diskó virkar þannig að gestir fá afhent þráðlaus heyrnar- tól við komuna í bókasafnið og geta þá valið á milli tveggja plötu- snúða sem spila sitthvora tón- listina sem gestir fá beint í eyrað og geta dillað sér við. Þrátt fyrir dúndrandi takt í heyrnartólunum ríkir samt gamla, góða bókasafns- þögnin í Grófinni, sem sumum finnst vandræðaleg, en einmitt þess vegna er skoplegt að skapa silent diskó-stemningu í slíku rými. Í þögla diskóinu dansa gestir því við sitthvort lagið og skiptir engu þótt ekki sé dansað í takt, því allir geta dansað óheftir og fíflast að vild,“ segir Bjarki í mikilli til- hlökkun fyrir kvöldið. Silent diskó nýtur mikilla vin- sælda enda glæný og öðruvísi upplifun. Það hefur náð miklum vinsældum á tónlistarhátíðum um allan heim og er vinsælt á hvers kyns viðburðum. „Við viljum að fólk gangi inn í skemmtilega stemningu og víst er að þetta er upplifun sem fellur vel í kram gestanna. Við viljum líka ná sem flestum á dansgólfið því þannig myndast dýnamík og stemning þar sem allar hömlur falla. Fólk getur dansað í eigin heimi eins og enginn sé morgun- dagurinn en líka tekið niður heyrnartólin til að tala við næsta mann eða heyra fólk taka undir í singalong-lögum þar sem allir syngja með sínu nefi. Það er kannski ekki alltaf fagur sam- söngur en ákaflega skemmtilegur,“ greinir Bjarki frá. Heyrnartólin skipta um lit eftir því á hvorn diskótekarann er hlustað, og segir Bjarki iðulega myndast samkeppni á milli plötu- snúða um að ná sem flestum til að dansa við sitt lag. „Ef lagið er leiðinlegt er einfaldlega skipt yfir á hinn. Við aðlögum okkur að gestahópnum hverju sinni og þegar við buðum síðast upp á silent diskó á Menningarnótt var aldursbilið breitt, allt frá krökkum upp í eldri borgara. Því var fugladansinn og Prumpulagið sett á fóninn, sem og Macarena og gömlu dansarnir; allt í bland. Silent diskó er líka fyrir allan aldur; það eina sem þarf er að yfirstíga þröskuldinn og leyfa sér að vera smá kjánalegur; þá dettur maður í sónið. Sumir vanda sig heil ósköp við dansinn en flestir dansa frjálst og óheft, enda skiptir danssporið ekki máli heldur að vera einn í góðum fíling með sitt heyrnartól en á sama tíma einn af öllum hinum.“ Smitandi kátína og gleði Bjarki lofar stuði og stemningu í Grófarsafni í kvöld. „Ég á ekki von á öðru en að bókasafnsgestir gangi sáttir frá borði eftir að hafa losað um orku og fyllst gleði í dansinum. Það er svo um að gera að gefa sér tíma til að mana sig upp í að setja upp heyrnartólin, en því fyrr, því betra, til að njóta gleðinnar sem lengst.“ Bókahillum verður ýtt til hliðar til að skapa rými fyrir dansinn. „Því verður eitthvað minna um að fólk verði eitt í djörfum dansi á bak við bókarekkana. Vita- skuld má vanga og taka upp hald, og bókasafn ekki verri staður en hver annar til að finna ástina á dansgólfinu, eins og við höfum stundum séð út undan okkur í brúðkaupum og á árshátíðum þar sem fólk hefur fellt hugi saman í silent diskói,“ segir Bjarki kátur. Hann kynntist silent diskói fyrst þegar hann fór með Snorra Páli Þórðarsyni, vini sínum og með- eiganda að Silent Diskó (silent- disko.is), á tónlistarhátíðina Future Festival í Ástralíu. „Við kolféllum fyrir þessu því þetta var ný, skemmtileg og öðru- vísi upplifun. Ég var svo atvinnu- laus árið 2016 og sótti um vinnu hjá viðburðafyrirtæki, mundi þá eftir silent diskó og kannaði möguleikann á að f lytja það inn. Ég fékk ekki vinnuna hjá við- burðafyrirtækinu en f lutti inn silent diskó og gleymi seint góðri tilfinningunni að fara með reikn- inginn til umrædds fyrirtækis þegar það pantaði silent diskó og það sló svona rækilega í gegn,“ segir Bjarki og hlær, enda nærist hann á því að útdeila gleði og segir kátínu klárlega uppsprettuna að silent diskó. „Það er auðvitað sprenghlægilegt þegar maður er að dansa í bullandi fíling, tekur niður heyrnartólin og heyrir þá næsta mann syngja hátt án undirleiks, eða kannski prumpa hressilega í trausti þess að enginn heyri. Það er líka spaugilegt að fylgjast með mesta töffaranum á árshátíðinni, sem sýnir diskóinu mikinn áhuga en þorir ekki fyrr en korter í þrjú að setja á sig tólin og er þá langsíðastur út af dans- gólfinu. Þetta snýst um að stíga inn í diskóheiminn en þangað kemst maður ekki nema að setja á sig tólin og vera með. Það er svo alls engin skylda að dansa, en varla hjá því komist þegar stemningin er góð. Þetta er smitandi fjör.“ n Prumpað í skjóli dúndrandi diskós á bókasafninu Bjarki Sigurjónsson er eigandi Silent Diskó sem lofar fjöri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 4 kynningarblað A L LT 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.