Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 33
FARSÆLD BARNA
VERKEFNASTJÓRI
gardabaer.is
Garðabær óskar eftir að ráða drífandi og öflugan verkefnastjóra til að stýra innleiðingu á lögum
um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Um er að ræða fjölbreytt og
krefjandi verkefni. Leitað er að áhugasömum og sjálfstæðum starfsmanni með reynslu af verkefna-
stjórnun sem býr yfir metnaði og sýnir frumkvæði í starfi. Um er að ræða 100% starfshlutfall í góðu
starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
• Leiðir vinnu innleiðingarteymis í samþættingu á þjónustu í þágu farsældar barna
• Vinnur að samþættingu á þjónustu fræðslu- og menningarsviðs og fjölskyldusviðs í
samræmi við lög um farsæld barna
• Eflir samvinnu, samþættingu og upplýsingaflæði á milli þjónustuveitenda í sveitarfélaginu
með áherslu á snemmtæka nálgun og vinnur að mótun á nýju verklagi
• Sér um kynningu og fræðslu á áherslum hugmyndafræði samþættingar
• Samstarf og samvinna við aðila sem vinna með börnum og koma að samþættingu þjónustunnar
• Vinnur árangursmat á verklagi og þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem uppeldismenntun, menntun á sviði
velferðarmála eða sambærilegt
• Haldbær reynsla af verkefnastjórnun
• Reynsla af vinnu í opinberri stjórnsýslu
• Þekking og reynsla af starfi í almennri velferðarþjónustu eða af skólastarfi
í grunn- og leikskóla
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Áhugi og reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
• Góð tölvukunnátta
• Góð tök á íslenskri tungu og hæfni í framsetningu texta
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2022.
Nánari upplýsingar um starfið veita:
Eiríkur Björn Björgvinsson, í síma 5258500 eða með því að senda tölvupóst á
eirikurbjorn@gardabaer.is
Svanhildur Þengilsdóttir, í síma 5258500 eða með því að senda tölvupóst á
svanhildurthe@gardabaer.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi
stéttarfélag.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Álftanesskóli
• Frístundaleiðbeinandi
• Stuðningsfulltrúi
Hofsstaðaskóli
• Frístundaleiðbeinandi
• Smíðakennari
• Stuðningsfulltrúi
Sjálandsskóli
• Frístundaleiðbeinandi
• Stuðningsfulltrúi
Urriðaholtsskóli
• Frístundaleiðbeinandi
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
• Stuðningsfulltrúi
• Þroskaþjálfi
Leikskólinn Holtakot
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Mánahvoll
• Háskólamenntaðir starfsmenn
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Hönnunarsafn Íslands
• Starfsmaður í móttöku
Íþróttamiðstöðvar
• Starfsmaður í Miðgarð
Miðskógar – heimili fyrir fatlað fólk
• Starfsmaður
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára