Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 42
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Aðalbókari
Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir að ráða drífandi
og metnaðarfullan einstakling í öfluga liðsheild til að gegna
ábyrgðarmiklu starfi á rekstrar- og útgáfusviði.
Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði,
sjálfstæði, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum,
vilja til teymisvinnu, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og
skipulagshæfileika. Jafnræðis er gætt í hvívetna við ráðningu og
leitast er við að starfsmannahópurinn endurspegli fjölbreytileika
samfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Yfirumsjón með fjárhagsbókhaldi, viðskiptamannabókhaldi og
lánardrottnabókhaldi sambandsins og samstarfsstofnana
• Umsjón með færslu bókhalds, framkvæmd afstemmingar, gerð
vsk uppgjörs og launaútreiknings
• Ábyrgð á mánaðarlegu uppgjöri og gerð árshluta- og
ársreikninga
• Greining á fjárhagsupplýsingum, þátttaka í áætlunargerð og
eftirfylgni með áætlun
• Aðstoð við stjórnendur, önnur svið sambandsins og Lánasjóð
sveitarfélaga ohf.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfið
• Viðurkenndur bókari er kostur
• Þekking og reynsla á færslu bókhalds, afstemmingu og
uppgjörsvinnu er skilyrði
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
• Mjög góð þekking og reynsla af Dynamics 365 Business Central
(NAV)
• Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð
hugsun
• Rík þjónustulund, samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
Um er að ræða fullt starf. Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst.
Sótt er um starfið á alfred.is eða með því að senda tölvupóst með
ferilskrá og kynningarbréfi á netfangið samband@samband.is.
Nánari upplýsingar
Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs
sambandsins, netfang: valur@samband.is og
Þórdís Sveinsdóttir, lánastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga,
netfang: thordis@lanasjodur.is, og eða í síma 515-4900.
Vinnustaðurinn
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem
býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og
skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband
íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur ríka
áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er upp á
góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á.
Sótt er um laus störf á heimasíðu Vegagerðarinnar:
www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/laus-storf
Vegagerðin er eftirsóknarverður
vinnustaður sem hentar öllum
Verkefnastjóri
Sundabrautar
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum
einstaklingi til að sinna verkefnastjórn
við Sundabraut. Um er að ræða fullt
starf við undirbúning Sundabrautar.
Gert er ráð fyrir að Sundabraut verði fjár-
mögnuð með gjaldtöku af umferð í sam-
ræmi við lög um samvinnuverkefni um
samgönguframkvæmdir sem samþykkt
voru á Alþingi árið 2020. Sundabraut og
áform um undirbúning eru staðfest bæði
í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og í
samkomulagi ríkis og Reykjavíkurborgar
frá árinu 2021.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf verkefnastjóra felst í stjórnun undir-
búnings framkvæmda, þ.m.t. gerð tíma-,
kostnaðar- og viðskiptaáætlana, undir-
búningur útboða og starfar fyrir verkefnis-
stjórn með undirbúningi Sundabrautar sem
skipuð verður fulltrúum Vegagerðarinnar,
innviðaráðuneytis og Reykjavíkurborgar
og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Verkefnastjórinn þarf m.a. að vinna að
samskiptum við hagsmunaaðila í tengslum
við undirbúning Sundabrautar, gerð
samninga og sinna þeim verkefnum
sem nauðsynlegt er.
Á næstu misserum verður unnið að um-
hverfismati framkvæmdarinnar, samráði
við nærumhverfi og undir búningi nauð-
synlegra breytinga á skipulagsáætlunum
með það að markmiði að hægt sé að hefja
framkvæmdir við Sundabraut eigi síðar en
árið 2026 og að þeim verði lokið árið 2031.
Hæfniskröfur
→ Verkfræðingur, tæknifræðingur eða
önnur menntun sem nýtist í starfi.
Meistarapróf æskilegt.
→ Marktæk reynsla af verkefnastjórnun.
→ Reynsla af verkefnastjórnun stærri
verkefna æskileg.
→ Skipulagshæfni, frumkvæði og
faglegur metnaður.
→ Hæfni til að vinna sjálfstætt sem
og í teymisvinnu.
→ Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum.
→ Góð íslensku- og enskukunnátta
í rituðu og töluðu máli.
→ Hæfni til að fylgja málum eftir og til
að finna bestu lausnir hverju sinni.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu og
upplýsingar um árangur sem viðkomandi
hefur náð og telur að nýtist í starfi
verkefnastjóra. Starfshlutfall er 100%.
Laun eru greidd samkvæmt kjara samningi
ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur
Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri,
gudmundur.v.gudmundsson@vegagerdin.is
Umsóknarfrestur er til og með
5. september 2022
Atmonia leitar að verkfræðingi til starfa
Atmonia er frumkvöðlafyrirtæki sem þróar lausnir fyrir áburðarframleiðslu og lækkun
kolefnisfótspors í landbúnaði. Fyrirtækið er að vaxa og leitar að efnaverkfræðingi eða
vélaverkfræðingi með brennandi áhuga á þróun á nýjum og umhverfisvænum lausnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Hönnun á ræktunartönkum fyrir örverur til framleiðslu á umhverfisvænum áburði
- Útfærslur á tækjabúnaði og hugbúnaði í samvinnu við verktaka
- Þáttaka í bestun á framleiðslu áburðar með örverufræðingum fyrirtækisins
- Skipulag á aðfangakeðju og fjöldaframleiðslu á ræktunartönkum
Menntun og hæfniskröfur:
- B.Sc. eða M.Sc. í efnaverkfræði,
vélaverkfræði eða skildu fagi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af vöruþróun
- Skipulagsfærni
- Gott vald á ensku
Umsóknir skulu sendar inn á vefsíðu Atmonia,
atmonia.com/careers fyrir 5. september