Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 20.08.2022, Blaðsíða 42
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Aðalbókari Samband íslenskra sveitarfélaga óskar eftir að ráða drífandi og metnaðarfullan einstakling í öfluga liðsheild til að gegna ábyrgðarmiklu starfi á rekstrar- og útgáfusviði. Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, vilja til teymisvinnu, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulagshæfileika. Jafnræðis er gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að starfsmannahópurinn endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Helstu verkefni og ábyrgð • Yfirumsjón með fjárhagsbókhaldi, viðskiptamannabókhaldi og lánardrottnabókhaldi sambandsins og samstarfsstofnana • Umsjón með færslu bókhalds, framkvæmd afstemmingar, gerð vsk uppgjörs og launaútreiknings • Ábyrgð á mánaðarlegu uppgjöri og gerð árshluta- og ársreikninga • Greining á fjárhagsupplýsingum, þátttaka í áætlunargerð og eftirfylgni með áætlun • Aðstoð við stjórnendur, önnur svið sambandsins og Lánasjóð sveitarfélaga ohf. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun sem nýtist í starfið • Viðurkenndur bókari er kostur • Þekking og reynsla á færslu bókhalds, afstemmingu og uppgjörsvinnu er skilyrði • Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel • Mjög góð þekking og reynsla af Dynamics 365 Business Central (NAV) • Nákvæm, skipulögð, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun • Rík þjónustulund, samskiptahæfni og jákvætt hugarfar Um er að ræða fullt starf. Umsóknarfrestur er til og með 28. ágúst. Sótt er um starfið á alfred.is eða með því að senda tölvupóst með ferilskrá og kynningarbréfi á netfangið samband@samband.is. Nánari upplýsingar Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs sambandsins, netfang: valur@samband.is og Þórdís Sveinsdóttir, lánastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga, netfang: thordis@lanasjodur.is, og eða í síma 515-4900. Vinnustaðurinn Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vinnustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Samband íslenskra sveitarfélaga er heilsueflandi vinnustaður og leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu eftir því sem við á. Sótt er um laus störf á heimasíðu Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/laus-storf Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar öllum Verkefnastjóri Sundabrautar Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna verkefnastjórn við Sundabraut. Um er að ræða fullt starf við undirbúning Sundabrautar. Gert er ráð fyrir að Sundabraut verði fjár- mögnuð með gjaldtöku af umferð í sam- ræmi við lög um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir sem samþykkt voru á Alþingi árið 2020. Sundabraut og áform um undirbúning eru staðfest bæði í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og í samkomulagi ríkis og Reykjavíkurborgar frá árinu 2021. Helstu verkefni og ábyrgð Starf verkefnastjóra felst í stjórnun undir- búnings framkvæmda, þ.m.t. gerð tíma-, kostnaðar- og viðskiptaáætlana, undir- búningur útboða og starfar fyrir verkefnis- stjórn með undirbúningi Sundabrautar sem skipuð verður fulltrúum Vegagerðarinnar, innviðaráðuneytis og Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Verkefnastjórinn þarf m.a. að vinna að samskiptum við hagsmunaaðila í tengslum við undirbúning Sundabrautar, gerð samninga og sinna þeim verkefnum sem nauðsynlegt er. Á næstu misserum verður unnið að um- hverfismati framkvæmdarinnar, samráði við nærumhverfi og undir búningi nauð- synlegra breytinga á skipulagsáætlunum með það að markmiði að hægt sé að hefja framkvæmdir við Sundabraut eigi síðar en árið 2026 og að þeim verði lokið árið 2031. Hæfniskröfur → Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Meistarapróf æskilegt. → Marktæk reynsla af verkefnastjórnun. → Reynsla af verkefnastjórnun stærri verkefna æskileg. → Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður. → Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu. → Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. → Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli. → Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. Frekari upplýsingar um starfið Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi verkefnastjóra. Starfshlutfall er 100%. Laun eru greidd samkvæmt kjara samningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri, gudmundur.v.gudmundsson@vegagerdin.is Umsóknarfrestur er til og með 5. september 2022 Atmonia leitar að verkfræðingi til starfa Atmonia er frumkvöðlafyrirtæki sem þróar lausnir fyrir áburðarframleiðslu og lækkun kolefnisfótspors í landbúnaði. Fyrirtækið er að vaxa og leitar að efnaverkfræðingi eða vélaverkfræðingi með brennandi áhuga á þróun á nýjum og umhverfisvænum lausnum. Helstu verkefni og ábyrgð: - Hönnun á ræktunartönkum fyrir örverur til framleiðslu á umhverfisvænum áburði - Útfærslur á tækjabúnaði og hugbúnaði í samvinnu við verktaka - Þáttaka í bestun á framleiðslu áburðar með örverufræðingum fyrirtækisins - Skipulag á aðfangakeðju og fjöldaframleiðslu á ræktunartönkum Menntun og hæfniskröfur: - B.Sc. eða M.Sc. í efnaverkfræði, vélaverkfræði eða skildu fagi - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum - Reynsla af vöruþróun - Skipulagsfærni - Gott vald á ensku Umsóknir skulu sendar inn á vefsíðu Atmonia, atmonia.com/careers fyrir 5. september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.