Fréttablaðið - 20.08.2022, Side 64

Fréttablaðið - 20.08.2022, Side 64
Varla má birtast ljósmynd af Sönnu Marin forsætis- ráðherra Finnlands án þess að íhaldsöflin þar í landi fái kast. Fréttablaðið leit yfir feril Marin í stjórnmálum og utan þeirra. kristinnhaukur@frettabladid.is Sanna Marin, forsætisráð- herra Finnlands, sætir nú gagnrýni hægri f lokka og þjóðernispopúlista fyrir það eitt að hafa dansað og sungið með vinum sínum í partíi. Myndband úr partíinu fór í dreif- ingu á Instagram og slúðurfjöl- miðilinn Iltalehti vakti athygli á því. Hefur Marin verið sökuð um að nota fíkniefni þó ekkert bendi til þess að svo sé. Einnig hefur verið sagt að forsætisráðherra landsins ætti ekki að haga sér á þennan hátt, það er að sletta svona úr klaufunum. Marin hefur hins vegar svarað gagnrýninni fullum hálsi og lofað því að breyta ekki hegðun sinni. Hún hafi fullan rétt til þess að skemmta sér með vinum sínum eins og aðrir. „Ég hef ekki notað nein fíkniefni, önnur en áfengi. Ekki heldur verið í aðstöðu þar sem aðrir í kringum mig eru að nota fíkniefni. Ég var að dansa, syngja, skemmta mér, faðma vini mína, allt sem er fullkomlega löglegt,“ sagði hún. Ólst upp við alkóhólisma Marin vakti heimsathygli þegar hún varð yngsti forsætisráðherra heims árið 2019, þá aðeins 34 ára gömul. Hún situr fyrir Sósíaldemó- krata, SDP, sem sitja í ríkisstjórn með f jórum öðrum miðju- og vinstriflokkum. Marin tók ekki við strax eftir kosningar heldur eftir að þáverandi forsætisráðherra, Antti Rinne, sagði af sér embætti vegna óeiningar í stjórninni í kjaramálum. Árið 2020 varð Marin svo formaður Sósíaldemókrataflokksins. Fædd í höfuðborginni Helsinki en alin upp í Tampere í vesturhluta landsins, ólst Marin upp við erfiðar aðstæður. Fjölskyldan var efnalítil og faðirinn alkóhólisti. Að lokum skildu foreldrar hennar og móðirin tók saman við aðra konu. Marin hefur sagt að móðir sín hafi ávallt haft trú á henni og stutt hana til að ná árangri í lífinu. Það gekk eftir. Hún varð sú fyrsta í sinni fjölskyldu sem gekk í háskóla, þegar hún lærði stjórnsýslufræði við Háskólann í Tampere. Marin fékk snemma áhuga á stjórnmálum, gekk í unglinga- hreyfingu SDP og komst í borgar- stjórn Tampere. 28 ára var Sanna Marin orðin formaður borgarráðs, ári seinna varaformaður SDP og árið þar á eftir kjörin á þing. Eftir kosningarnar árið 2019 varð hún samgönguráðherra í rúmlega hálft ár áður en hún tók við forsætisráðu- neytinu. Grjóthörð gagnvart Rússum Sanna Marin hefur nú verið for- sætisráðherra í næstum þrjú ár, mun lengur en þær tvær konur sem áður höfðu gegnt embættinu. Hún hefur einnig vakið heimsathygli, ekki aðeins fyrir að vera ung, heldur einnig fyrir einarða afstöðu sína í ýmsum málum. Hún er gallharður femínisti og umhverfissinni. En það sem hefur vakið hvað mesta athygli er hörð afstaða gagnvart Rússum eftir innrásina í Úkraínu. Undir stjórn Marin hefur Finn- land sótt um aðild að Atlantshafs- bandalginu, ásamt Svíþjóð. Þetta brýtur blað í sögu landsins, sem á afar langa og nána sögu með Rúss- landi og Sovétríkjunum. Hefur Marin látið hótanir Rússa um „af leiðingar“ sem vind um eyru þjóta. Hún lofaði í maí að umsókn- arferlið myndi gerast hratt og þessa dagana eru þjóðþing bandalagsins að staðfesta umsókn landanna tveggja. Marin hefur einnig verið meðal þeirra þjóðhöfðingja sem harðast hafa gengið fram í kröfum um þvinganir gegn Rússum, þrátt fyrir að deila rúmlega 1.300 kílómetra landamærum með þeim. „Við verðum að vera tilbúin að færa fórnir til að stöðva stríðið,“ sagði Marin strax í apríl þegar hún ræddi um orkumál. En hún hefur þrýst á að Evrópusambandsríkin hætti að kaupa orku af Rússum og þar með fjármagna stríðið í Úkraínu. Hún hefur einnig veitt og heitið miklum stuðningi við Úkra- ínu, það er fjárhagslegan stuðning, hernaðarlegan og aðstoð við f lótta- menn. Nýlega sagði Marin það óásætt- anlegt að rússneskir ferðamenn gætu frjálslega farið um Evrópu. En þrátt fyrir f lug og hafnbann kemst fjöldi Rússa inn á Schengen-svæðið í gegnum Finnland og f leiri ríki. Aðrir Evrópusambandsleiðtogar, utan Eista, hafa ekki viljað ganga svo langt. imwithsanna Sanna Marin hefur líka áður vakið athygli fyrir atriði sem lúta að hennar einkalífi. Haustið 2020 vakti klæðaburður hennar í forsíðuvið- tali tískuritsins Trendi athygli, og hneykslan sumra. En þar var hún í jakka án skyrtu eða bols innan undir. Líkt og nú, fannst sumum það ekki sæmandi forsætisráðherra að bera hold sitt á þennan hátt og lýstu þeir hneykslan sinni. Margar finnskar konur, og nokkrir karlar, tóku hins vegar til varna fyrir hana og birtu myndir af sér í sams konar fatnaði á samfélagsmiðlum ásamt myllumerkinu imwithsanna. Í desember síðastliðnum kom einnig upp mál sem rataði í heims- fréttirnar. En þá hafði hún farið á næturklúbb eftir að hafa verið nálægt meðráðherra sínum sem hafði verið greindur með Covid-19. Var hún gagnrýnd fyrir að hafa ekki farsímann á sér og þar af leiðandi var ekki hægt að láta vita að hún þyrfti að fara í sóttkví. Í yfirlýsingu sagðist Marin hafa talið sig ekki þurfa að fara í sóttkví vegna bólusetningar. Hún játaði hins vegar að hafa misskilið stöð- una og baðst afsökunar á atvikinu. Í júlí síðastliðnum var svo birt önnur ljósmynd sem fór öfugt ofan í suma. En það var mynd tekin bak- sviðs á rokkhátíðinni Ruisrock, þar sem hún var klædd leðurjakka og stuttbuxum. Sumum fannst erfitt að sjá forsætisráðherra sinn í slík- um klæðnaði. Mun fleiri lýstu hins vegar ánægju með ljósmyndina, enda hefur Finnland lengi verið eitt helsta gósenland rokkara. n Biðst ekki afsökunar á neinu Mynd tekin baksviðs á Ruisrock hefur bæði heillað og hneykslað. Sanna hefur leitt fimm flokka ríkisstjórn Finnlands síðan í desember árið 2019 eftir að þáverandi forsætisráðherra missti traust annarra samstarfsflokka. Ungar konur eru mjög áberandi í stjórninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 32 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGAR-FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.