Fréttablaðið - 20.08.2022, Qupperneq 64
Varla má birtast ljósmynd
af Sönnu Marin forsætis-
ráðherra Finnlands án þess
að íhaldsöflin þar í landi fái
kast. Fréttablaðið leit yfir feril
Marin í stjórnmálum og utan
þeirra.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Sanna Marin, forsætisráð-
herra Finnlands, sætir nú
gagnrýni hægri f lokka og
þjóðernispopúlista fyrir
það eitt að hafa dansað og
sungið með vinum sínum í partíi.
Myndband úr partíinu fór í dreif-
ingu á Instagram og slúðurfjöl-
miðilinn Iltalehti vakti athygli á því.
Hefur Marin verið sökuð um að
nota fíkniefni þó ekkert bendi til
þess að svo sé. Einnig hefur verið
sagt að forsætisráðherra landsins
ætti ekki að haga sér á þennan hátt,
það er að sletta svona úr klaufunum.
Marin hefur hins vegar svarað
gagnrýninni fullum hálsi og lofað
því að breyta ekki hegðun sinni.
Hún hafi fullan rétt til þess að
skemmta sér með vinum sínum eins
og aðrir.
„Ég hef ekki notað nein fíkniefni,
önnur en áfengi. Ekki heldur verið
í aðstöðu þar sem aðrir í kringum
mig eru að nota fíkniefni. Ég var að
dansa, syngja, skemmta mér, faðma
vini mína, allt sem er fullkomlega
löglegt,“ sagði hún.
Ólst upp við alkóhólisma
Marin vakti heimsathygli þegar
hún varð yngsti forsætisráðherra
heims árið 2019, þá aðeins 34 ára
gömul. Hún situr fyrir Sósíaldemó-
krata, SDP, sem sitja í ríkisstjórn
með f jórum öðrum miðju- og
vinstriflokkum. Marin tók ekki við
strax eftir kosningar heldur eftir að
þáverandi forsætisráðherra, Antti
Rinne, sagði af sér embætti vegna
óeiningar í stjórninni í kjaramálum.
Árið 2020 varð Marin svo formaður
Sósíaldemókrataflokksins.
Fædd í höfuðborginni Helsinki
en alin upp í Tampere í vesturhluta
landsins, ólst Marin upp við erfiðar
aðstæður. Fjölskyldan var efnalítil
og faðirinn alkóhólisti. Að lokum
skildu foreldrar hennar og móðirin
tók saman við aðra konu. Marin
hefur sagt að móðir sín hafi ávallt
haft trú á henni og stutt hana til að
ná árangri í lífinu. Það gekk eftir.
Hún varð sú fyrsta í sinni fjölskyldu
sem gekk í háskóla, þegar hún lærði
stjórnsýslufræði við Háskólann í
Tampere.
Marin fékk snemma áhuga á
stjórnmálum, gekk í unglinga-
hreyfingu SDP og komst í borgar-
stjórn Tampere. 28 ára var Sanna
Marin orðin formaður borgarráðs,
ári seinna varaformaður SDP og
árið þar á eftir kjörin á þing. Eftir
kosningarnar árið 2019 varð hún
samgönguráðherra í rúmlega hálft
ár áður en hún tók við forsætisráðu-
neytinu.
Grjóthörð gagnvart Rússum
Sanna Marin hefur nú verið for-
sætisráðherra í næstum þrjú ár,
mun lengur en þær tvær konur sem
áður höfðu gegnt embættinu. Hún
hefur einnig vakið heimsathygli,
ekki aðeins fyrir að vera ung, heldur
einnig fyrir einarða afstöðu sína í
ýmsum málum. Hún er gallharður
femínisti og umhverfissinni. En það
sem hefur vakið hvað mesta athygli
er hörð afstaða gagnvart Rússum
eftir innrásina í Úkraínu.
Undir stjórn Marin hefur Finn-
land sótt um aðild að Atlantshafs-
bandalginu, ásamt Svíþjóð. Þetta
brýtur blað í sögu landsins, sem á
afar langa og nána sögu með Rúss-
landi og Sovétríkjunum. Hefur
Marin látið hótanir Rússa um
„af leiðingar“ sem vind um eyru
þjóta. Hún lofaði í maí að umsókn-
arferlið myndi gerast hratt og þessa
dagana eru þjóðþing bandalagsins
að staðfesta umsókn landanna
tveggja.
Marin hefur einnig verið meðal
þeirra þjóðhöfðingja sem harðast
hafa gengið fram í kröfum um
þvinganir gegn Rússum, þrátt fyrir
að deila rúmlega 1.300 kílómetra
landamærum með þeim.
„Við verðum að vera tilbúin að
færa fórnir til að stöðva stríðið,“
sagði Marin strax í apríl þegar hún
ræddi um orkumál. En hún hefur
þrýst á að Evrópusambandsríkin
hætti að kaupa orku af Rússum
og þar með fjármagna stríðið í
Úkraínu. Hún hefur einnig veitt og
heitið miklum stuðningi við Úkra-
ínu, það er fjárhagslegan stuðning,
hernaðarlegan og aðstoð við f lótta-
menn.
Nýlega sagði Marin það óásætt-
anlegt að rússneskir ferðamenn
gætu frjálslega farið um Evrópu. En
þrátt fyrir f lug og hafnbann kemst
fjöldi Rússa inn á Schengen-svæðið
í gegnum Finnland og f leiri ríki.
Aðrir Evrópusambandsleiðtogar,
utan Eista, hafa ekki viljað ganga
svo langt.
imwithsanna
Sanna Marin hefur líka áður vakið
athygli fyrir atriði sem lúta að
hennar einkalífi. Haustið 2020 vakti
klæðaburður hennar í forsíðuvið-
tali tískuritsins Trendi athygli, og
hneykslan sumra. En þar var hún
í jakka án skyrtu eða bols innan
undir.
Líkt og nú, fannst sumum það
ekki sæmandi forsætisráðherra
að bera hold sitt á þennan hátt og
lýstu þeir hneykslan sinni. Margar
finnskar konur, og nokkrir karlar,
tóku hins vegar til varna fyrir hana
og birtu myndir af sér í sams konar
fatnaði á samfélagsmiðlum ásamt
myllumerkinu imwithsanna.
Í desember síðastliðnum kom
einnig upp mál sem rataði í heims-
fréttirnar. En þá hafði hún farið
á næturklúbb eftir að hafa verið
nálægt meðráðherra sínum sem
hafði verið greindur með Covid-19.
Var hún gagnrýnd fyrir að hafa ekki
farsímann á sér og þar af leiðandi
var ekki hægt að láta vita að hún
þyrfti að fara í sóttkví.
Í yfirlýsingu sagðist Marin hafa
talið sig ekki þurfa að fara í sóttkví
vegna bólusetningar. Hún játaði
hins vegar að hafa misskilið stöð-
una og baðst afsökunar á atvikinu.
Í júlí síðastliðnum var svo birt
önnur ljósmynd sem fór öfugt ofan
í suma. En það var mynd tekin bak-
sviðs á rokkhátíðinni Ruisrock, þar
sem hún var klædd leðurjakka og
stuttbuxum. Sumum fannst erfitt
að sjá forsætisráðherra sinn í slík-
um klæðnaði. Mun fleiri lýstu hins
vegar ánægju með ljósmyndina,
enda hefur Finnland lengi verið eitt
helsta gósenland rokkara. n
Biðst ekki afsökunar á neinu
Mynd tekin baksviðs á Ruisrock
hefur bæði heillað og hneykslað.
Sanna hefur leitt fimm flokka ríkisstjórn Finnlands síðan í desember árið 2019 eftir að þáverandi forsætisráðherra
missti traust annarra samstarfsflokka. Ungar konur eru mjög áberandi í stjórninni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
32 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGAR-FRÉTTABLAÐIÐ