Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 70

Fréttablaðið - 20.08.2022, Síða 70
Elskulegur faðir minn, sonur, stjúpfaðir, bróðir, mágur og frændi, Eiríkur Ómar Guðmundsson rithöfundur og útvarpsmaður, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 26. ágúst kl. 13.00. Kolbeinn Orfeus Eiríksson Guðfinna E. Benjamínsdóttir Kristján Guðmundsson Helga Þórðardóttir Sigmundur Guðmundsson Arna Rún Óskarsdóttir Vaka Blöndal og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Þórður Höjgaard Jónsson Sóltúni 7, 105 Reykjavík, lést á Hrafnistu Sléttuvegi, þriðjudaginn 9. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Sléttuvegi fyrir góða umönnun. Ingibjörg Ólafsdóttir Hjaltalín Kristín Vilborg Þórðardóttir Ingi Björn Ágústsson og barnabörn. Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, Arnar Geir Arnarson Lést á heimili sínu fimmtudaginn 11. ágúst. Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 13. Birta Sjöfn Arnarsdóttir Óskar Ölver Arnarsson Sjöfn Svansdóttir Örn V. Óskarsson Fríða Björk Arnardóttir Gunnar Geir Gunnarsson Svandís Dögg Sólberg Arnardóttir Agnar Freyr Þorkelsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, Sigurður Geirsson Akraseli 21, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þriðjudaginn 9. ágúst. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 23. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir Geir Sigurðsson Aðalsteinn Sigurðsson Birgir Jarl Aðalsteinsson Amanda Brák Aðalsteinsdóttir Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir okkar, Elías Jón Sveinsson geðhjúkrunarfræðingur, lést í sjósundi við Langasand á Akranesi þriðjudaginn 9. ágúst. Útförin fer fram í Háteigskirkju miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13.00. Sveinn Elías Elíasson Ósk Norðfjörð Ingibjörg Soffía Sveinsdóttir Baldur Jóhann Baldursson Lára Helga Sveinsdóttir Karl Baldvinsson Baldur Sveinn Baldursson barnabörn. Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðnýjar Hannesdóttur Efstalandi 10, Reykjavík. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Rósa S. Jónsdóttir Guðmundur I. Guðmundsson Oddfríður R. Jónsdóttir Hannes A. Jónsson Yukie Moriyama barnabörn og barnabarnabörn. Eftir að hafa rekið dansskóla í tíu ár segist Brynja Péturs ennþá ást- fangin af street dans menningu. Tímamótunum verður fagnað með sýningum á Ingólfstorgi í dag. arnartomas@frettabladid.is Dans Brynju Péturs, eini sérhæfði Street dansskóli landsins, fagnar tíu ára afmæli í dag. Í tilefni þess verður boðið upp á sérstakar hátíðarsýningar á Ingólfstorgi í dag kl. 15.30 og kl. 16.30. „Þetta er auðvitað frekar klikkað,“ segir Brynja um árin tíu. „Ég er búin að vera að kenna á Íslandi frá 2004 og stofn- aði skólann 2012 svo þetta er búinn að vera ansi langur tími.“ Aðspurð um hvernig senan á Íslandi hafi breyst á þeim tíma segir Brynja að hún hafi varla verið til þegar hún hóf að kenna. „Það var bara ekkert street dans sam- félag hér áður fyrr, en nú er öll f lóran mætt. Hip hop, dancehall, waacking, popping og f leiri stílar eru orðnir að tungumáli sem dansarar hér á landi tala,“ segir hún. „Áður fyrr var ekkert hægt að fá grunn í þessum stílum en nú eru komnar kynslóðir af dönsurum sem eru ofboðslega færar.“ Þá eru margir af gömlum nemendum Brynju orðnir kennarar sjálfir svo að hæfileikaflóran fer enn vaxandi. „Fólkið sem hefur komið inn í líf mitt á þessum tíma eru einhverjar mögnuð- ustu manneskjur sem ég hef kynnst. Þau eru einstaklega hæfileikarík, algjörir svampar á menningu og dansstíla, þau eru listafólk sem hanna sín eigin dans- verk sem þau skreyta með kraftmiklu nemendunum okkar,“ segir hún. „Þau eru að búa til yndislegt umhverfi fyrir næstu kynslóðir dansara á Íslandi. Ég sem krakki hefði elskað að læra hjá fólkinu mínu – sem ég er heppin að kalla nemendur mína og samstarfsfólk.“ Alheimurinn sigraður með dansi Dans Brynju Péturs er í dag einn stærsti dansskóli landsins og starfræktur á níu staðsetningum fyrir nemendur frá fimm ára aldri. Eftir afmælisdagskránna í dag segir Brynja að allt púður fari í að undir- búa haustönn skólans. „Prógrammið sem byrjar hjá okkur 12. september er miðað við fólk frá 5-25 ára aldurs, en ég er reglulega með 25 ára plús byrjendatíma fyrir eldri kynslóðir,“ svarar Brynja, spurð um hvort eldra fólk eigi eitthvert tækifæri á síðbúinni innkomu í street dans heiminn. „Fram- haldstímarnir mínir innihalda fólk frá 13-30 ára en þeir keyra líka kennara- teymið, eldri nemendur og nýja áhuga- sama. Barna- og unglingastarfið er mjög sterkt í öllum 8 hverfunum og bæjar- félögunum okkar. Allir hópar vinna að nemendasýningu sem lokar önninni í desember, það er stærsta partý ársins!“ Til næstu tíu ára segir Brynja draum- inn vera þann sama og áður – að við- halda og stækka street dans senuna á Íslandi. „Ég er ástfangin upp fyrir haus af þessari menningu, elska að læra meira, dansa og kenna. Aðalpunkturinn í þessu fyrir mig er hvað það er gaman að vinna með fólkinu mínu, ég er mikill aðdáandi þeirra. Þú munt verða það líka ef þú kíkir á okkur dansa á Ingólfstorgi í dag,“ segir hún. „Við viljum búa til vettvang og styðja við næstu kynslóðir, hvort sem þau vilja sölsa undir sig alheiminn með dansfærni eða bara mæta í tíma og hafa gaman í danssalnum. Öll eru velkomin og öll skipta máli.“ Sýningarnar á Ingólfstorgi í dag verða klukkan 15.30 og 16.10. n Street dans í tíu ár Nemendur og kennarar í Dansi Brynju Péturs í æfingasalnum í gær. Brynja er í bleikum bol fyrir miðju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Dansinn dunar sem aldrei fyrr hjá Dansi Brynju Péturs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 38 Tímamót 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ Hannes Finnsson Skálholtsbiskup andaðist á þessum degi árið 1796. Hannes fæddist í Reykholti í Borgar- firði 8. maí árið 1739, sonur prests- hjónanna þar, séra Finns Jónssonar, sem síðar varð biskup í Skálholti, og Guðríðar Gísladóttur. Hannes útskrifaðist sextán ára úr Skálholtsskóla 1755 og hélt um sumarið til guðfræðináms við Hafnar- háskóla. Embættispróf í guðfræði tók hann 1763. Á þeim tólf árum, sem Hannes dvaldist samfleytt í Kaupmannahöfn, kynntist hann mörgum helstu fræði- mönnum Danmerkur. Hannes sneri heim í Skálholt til að aðstoða föður sinn við ýmis fræðistörf árið 1767. Hann hélt aftur til Kaupmannahafnar 1770 og dvaldi þar næstu árin við störf í íslenskum fræðum. Hannes var vígður aðstoðarbiskup til Skálholts 1777. Séra Finnur lét af embætti árið 1785 og var Hannes þá einn biskup. Árið áður höfðu Suðurlandsskjálftar lagt Skálholtsstað meira og minna í rúst og átti að flytja biskupsstólinn til Reykjavíkur. Hannes keypti þá Skálholtsstað og fékk að sitja þar áfram sem hann og gerði til æviloka. Hannes dó hinn 4. ágúst 1796 í Skálholti eftir skyndileg veikindi. Á síðustu æviárunum skrifaði hann tvö merkustu rit sín: Um mannfækkun af hallærum á Íslandi og Kvöldvökur. n Þetta gerðist: 4. ágúst 1796 Hannes biskup ber beinin Hannes var vígður aðstoðarbiskup til Skálholts 1777. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.