Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 80

Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 80
Ég er búinn að vera í yfir 27 ár á Íslandi og þetta er það sem ég er búinn að læra af ykkur, að standa saman og alltaf hjálpa hvor öðrum. Kristófer Gajowski Kristófer Gajowski er einn skipuleggjenda samtakanna Support for Ukraine, Iceland sem eru sérstakir gestir Menningarnætur. Kristófer og fjölskylda eyddu sparifénu sínu í að styrkja Úkraínu- menn á flótta til Íslands. tsh@frettabladid.is Sérstakir gestir Menningarnætur í ár eru samtökin Support for Ukra- ine, Iceland, sem hafa skipulagt fjöl- breytta dagskrá í Ráðhúsi Reykja- víkur í dag. Kristófer Gajowski, einn skipuleggjenda, hefur staðið í ströngu frá upphafi innrásar Rússa og aðstoðað fjölda Úkraínumanna við að flýja stríðið í heimalandinu, ásamt Maríu Shramko. Kristófer er lagnatæknifræðingur og jarðfræðingur að mennt og hefur verið búsettur á Íslandi í tæpa þrjá áratugi. Hann er pólskur að upp- runa en faðir hans fæddist í Úkraínu og móðir hans er ítölsk. Þegar Rúss- ar réðust inn í Úkraínu 24. febrúar byrjaði Kristófer strax að leita eftir því hvernig hann gæti hjálpað. „Ég og fjölskyldan mín, eins og f lestir, elskum að ferðast og við vorum búin að safna í tvö ár til að kaupa jeppa. Það er alltaf verð- bólga og alltaf eitthvað erfitt en við vorum komin með um 4,8 milljónir, það var ekki nóg til að kaupa nýjan bíl heldur einhvern gamlan,“ segir hann. Í stað þess að kaupa jeppa ákváðu Kristófer og fjölskylda að nota spari- féð til að styrkja úkraínska flótta- menn við að komast frá Póllandi til Íslands. Kristófer komst í samband við ýmsa aðila úti í Póllandi sem voru tilbúnir að gefa honum góðan díl á gistingu fyrir úkraínska flótta- menn, auk þess sem hann aðstoðaði fólk við að komast í f lug. „Þetta er ekki eitthvað sem ég vil gera fyrir mig sem auglýsingu. Ég er búinn að vera í yfir 27 ár á Íslandi og þetta er það sem ég er búinn að læra af ykkur, að standa saman og alltaf hjálpa hver öðrum. Það skiptir miklu máli,“ segir Kristófer. Hátt í tvö hundruð manns Að sögn Kristófers hefur ýmis- legt komið upp á hjá f lóttamönn- unum við ferðalagið frá Úkraínu til Íslands. Til að mynda gerðist það nokkrum sinnum að starfsmenn f lugfélagsins Wizz Air vildu ekki hleypa fólki í f lug vegna þess að það var ekki með rétt ferðaskilríki eða vegabréf. Hvað ertu búinn að hjálpa mörg- um Úkraínumönnum að komast til Íslands? „Það voru 58 nýlega, en þeir sem ég er búinn að hjálpa persónulega eru alveg rúmlega 160, sem ég er búinn að fjármagna og svona. Við erum núna með um 1.500 Úkraínu- menn sem hafa komið hingað.“ Support for Ukraine, Iceland, hafa staðið að ýmsum öðrum viðburð- um hér á landi, á borð við mótmæli fyrir utan rússneska sendiráðið og friðartónleika í Hallgrímskirkju þar sem ýmsir þekktir listamenn komu fram. Samtökin hafa nú skipulagt veglega hátíðardagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur í tilefni Menn- ingarnætur, þar sem úkraínskri og íslenskri menningu verður gert hátt undir höfði. „Þetta var mjög gaman að heyra. Við erum að standa saman og Úkra- ína er ekki eitthvað úti í horni. Við viljum búa á landi eins og Íslandi í friði. Það þarf ekki að hafa óvini eða ofbeldi. Við erum land sem er með eitthvað um 380.000 íbúa og fólk frá yfir 200 löndum. Á þeim tíma sem ég hef búið á Íslandi hef ég aldrei lent í neinu of beldi eða rasisma. Oft þegar ég heyri um slíkt þá finnst mér það bara hlægilegt, því Íslend- ingar eru með rosalega gott hjarta,“ segir Kristófer. Skemmtiatriði og fræðsla Dagskráin í ráðhúsinu stendur frá 13 til 18 í dag og samanstendur af skemmtiatriðum frá íslenskum og úkraínskum listamönnum, auk þess sem boðið verður upp á veitingar og fræðslu. María Shramko úr Kokka- landsliðinu mun bjóða gestum upp á margra metra langa úkraínska köku og þá verður sérstakur bekkur þar sem gestir geta rætt við Úkra- ínumenn í gegnum túlk og fengið að heyra sögu þeirra. „Húsið verður opnað kl. 13 og byrjað með úkraínskri tónlist, eftir það koma Systur úr Eurovision, Beta og Sigga. Eftir klukkan tvö þá verður hátíðleg opnun með stað- gengli borgarstjóra, Einari Þor- steinssyni. Á þessum tíma erum við komin með rúmlega 170 daga af stríði í Úkraínu. Í mínum huga vil ég ekki bara mjólka og biðja um hjálp frá Íslendingum heldur þarf líka að gefa til baka,“ segir Kristófer. Hann bætir því við að á meðan okkur Íslendingum þyki sjálfsagt að gera okkur glaðan dag og vera áhyggjulaus á Menningarnótt þá sé það sama ekki endilega uppi á teningnum hjá þeim Úkraínu- mönnum sem f lúið hafa stríðið í heimalandinu. „Fólkið sem undirbýr með mér þessa menningarhátíð fyrir Úkra- ínu á að baki rosalega stór sár, í huga og hjarta. Þetta er líka svolítið stressandi fyrir þau því þetta stríð skilur eftir sig mjög djúp sár í hjarta þeirra,“ segir Kristófer. n Stríðið skilur eftir sig djúp sár Kristófer hefur aðstoðað hátt í tvö hundruð Úkraínumenn við að flýja stríðið í heimalandinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kristófer og María Shramko eru tveir skipu- leggjenda samtakanna Support for Ukraine, Iceland. MYND/AÐSEND MENNING 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR Barónsstígur 8-24 Akureyri 24/7 Reykjanesbær 24/7 OPIÐ MENNINGARNÓTT *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni Gló skál og gos 500ml* Gló pasta og gos 500ml* 1.599 kr. 999 kr. Gló to go!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.