Fréttablaðið - 25.08.2022, Side 8
það er allt gert fyrir
alþjóðlegu risana. Þeir
þurfa ekki að gangast
undir neinar skyldur
og mega vera með
hvaða auglýsingar sem
þeir vilja.
Mér finnst allt er snýr
að stafrænni umbreyt-
ingu og nýtingu gagna
áhugavert.
Ósk Heiða Sveinsdóttir er forstöðu-
maður þjónustu og markaðar hjá
Íslandspósti. Hún segir krefjandi
að ná utan um öll tækifærin hjá
Íslandspósti og er sífellt á höttunum
eftir fleiri áhugamálum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég er alltaf á höttunum eftir fleiri
áhugamálum, það er svo nauðsyn-
legt að prófa eitthvað nýtt reglulega.
Er með skotvopna- og veiðileyfi sem
ekki hefur verið mikið nýtt en að
vera úti að leika í náttúrunni, uppi
á fjalli eða við sjó hentar mér afar
vel. Ég tek líka alltaf annað kastið að
mér að halda fyrirlestra fyrir hópa
um stjórnun, stefnumótun og tæki-
færin í tengslanetinu, það er mjög
skemmtilegt. Best er að sameina
þetta tvennt, eyða deginum uppi á
sviði og virkja ástríðuna með hópi
fólks og eyða svo seinni hluta sólar-
hringsins í náttúrunni með fjöl-
skyldunni.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Ef ég nefni þær sem ég er með á
borðinu mínu núna, þá eru þær
Dare to Lead og The Culture Code:
The Secrets of Highly Successful
Groups. Ég er alltaf með nokkrar
bækur í gangi en ég skrifa mikið á
LinkedIn þar sem gott er að tengja
fræðin við aðstæður í atvinnulífinu
í gegnum raundæmi og reynslu.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Það getur verið krefjandi að ná
utan um tækifærin sem koma fram
hjá Póstinum á hverjum einasta
degi, enda tímarnir sjaldan verið
eins spennandi og núna þegar
styttist í okkar vertíð með netversl-
unardögum og jólatíð. Að vinna
með sterkum hópi fólks á markaði
þar sem óskir viðskiptavina taka
miklum og hröðum breytingum í
takti við tækniframfarir og sjálf-
virkni, eru forréttindi. Mér finnst
allt er snýr að stafrænni umbreyt-
ingu og nýtingu gagna áhugavert
enda hver dagur ólíkur þeim fyrri.
Sameiginlegt er þó alltaf áherslan
á markaðshneigð þar sem sjónum
er beint að djúpum skilningi á
þörfum og kröfum viðskiptavinar-
ins. Áherslan alltaf á samband við
viðskiptavini og framtíðartækifæri
sem felast m.a. í betri nýtingu gagna
og færunum í því að blanda saman
þjónustu, reynslu og þekkingu við
nýjungar og tækniþróun.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
Uppáhalds er að blanda saman
borg og bæ, það er til dæmis alltaf
gaman að kíkja til Köben og rifja
upp tímann þegar ég bjó þar á
meðan ég var í námi. En það bætti
við nýjum kaliber við klassískar
borgarferðir að þvælast um landið
á eigin vegum og leigja lítið kot í
sveit. Það eru bestu ferðalögin, ys og
þys stórborga í bland við náttúru og
rólegheit. Fór einmitt þannig ferð í
sumar, nokkrir dagar í hjarta Lond-
on og svo sveitasæla í Cornwall. n
Er sífellt á höttunum eftir fleiri áhugamálum
Nám: MS í alþjóðaviðskiptum og
markaðsfræði frá Háskóla Íslands
og BS í alþjóðamarkaðsfræði frá
Tækniháskóla Íslands.
Störf: Forstöðumaður þjónustu
og markaða hjá Póstinum, á
sviðinu eru sala, markaðsmál,
vefmál, þjónustuver og upplifun
viðskiptavina.
Aukastörf: Sit í sjórn Stjórnvísi og
er stjórnarmaður í faghópnum
Stafræn viðskipti á Íslandi hjá SVÞ.
Fjölskylduhagir: Gift Magnúsi
Frey Smárasyni, Product Structure
Sérfræðingur hjá Marel, tvö börn
og tveir kettir.
n Svipmynd
Ósk Heiða Sveinsdóttir
Ósk skrifar
mikið á sam-
félagsmiðilinn
LinkedIn til að
tengja fræðin
við aðstæður í
atvinnulífinu.
MYND/AÐSEND
Fráfarandi forstjóri Sýnar
segir breytingar á eigenda-
hópi fyrirtækisins til marks
um trú fjárfesta á fyrirtækinu.
Hann segir stöðu innlendra
fjölmiða erfiða því stjórnvöld
hygli erlendum stórfyrir-
tækjum á kostnað innlendra.
ggunnars@frettabladid.is
Það vakti athygli í síðasta mánuði
þegar Heiðar Guðjónsson fráfarandi
forstjóri fjölmiðla- og fjarskipta-
fyrirtækisins Sýnar seldi öll hluta-
bréf sín í fyrirtækinu og lét af störf-
um sem forstjóri.
Félagið Gavia Invest keypti 12,72
prósenta hlut forstjórans á tæplega
2,2 milljarða króna. Gavia Invest er
í dag stærsti hluthafi Sýnar.
Heiðar á ekki von á því að þessi
viðskipti þýði að fjarskiptahluti
fyrirtækisins verði skilinn frá fjöl-
miðlasamsteypunni.
„Raunar tel ég að það væri glap-
ræði. Það gekk ekki sem skyldi
að sameina fjarskiptahlutann og
fjölmiðlana í fyrstu, það verður að
segjast, en okkur hefur tekist það
núna. Fyrirtækið virkar mjög vel
í dag sem heild og ég held að nýir
hluthafar hafi einfaldlega tröllatrú
á því sem hefur verið gert í fyrir-
tækinu undanfarin ár.“
Heiðar segist deila þeirri trú með
fjárfestum enda hefði hann glaður
viljað stýra fyrirtækinu áfram ef
heilsan hefði ekki gripið í taumana.
„Það er það sem liggur að baki
ákvörðuninni hvað mig varðar. Ég
þurfti að taka upp hægari takt og
þegar þetta tilboð kom þá leit ég á
það sem ákveðin skilaboð sem rím-
uðu við tilmæli sem ég hef fengið frá
mínum læknum.“
Heiðar segist ekki bara vera að tala
um fjarskiptahlutann þegar hann
segir að fyrirtækið eigi mikið inni.
„Það á ekki síður við um fjöl-
miðlana. Við höfum séð það síðustu
ár að vefmiðlarnir eru gjörsamlega
að sigra fréttaleikinn. Auglýsinga-
tekjur vefmiðla hafa margfaldast á
síðustu tíu árum á meðan auglýs-
ingatekjur dagblaða hafa minnkað
um helming.“
En þótt tækifærin séu mörg segir
Heiðar bæði flókið og erfitt að reka
fjölmiðil á Íslandi.
„Vegna þess að það er allt gert
fyrir alþjóðlegu risana. Þeir þurfa
ekki að gangast undir neinar skyld-
ur og mega vera með hvaða aug-
lýsingar sem þeir vilja.“
Heiðar tekur talsetningar á
erlendu efni sem dæmi. Þar krist-
allist ólík staða eftir því hvort fjöl-
miðillinn er íslenskur eða erlendur.
„Menntamálaráðherra sendi bréf
á Disney og bað þá náðarsamlegast
um að nota íslenskar talsetningar
sem voru þegar til staðar. Disney
hirti auðvitað ekkert um að setja
þær inn á sínar efnisveitur.“
„Ef við hefðum gerst sek um eitt-
hvað slíkt hefðum við átt yfir höfði
okkar himinháar sektir.
Þannig að þarna, eins og á öðrum
sviðum, er einfaldlega verið að
hygla alþjóðlegri starfsemi á kostn-
að innlendrar,“ segir Heiðar Guð-
jónsson. n
Segir stjórnvöld hygla alþjóðlegum
fjölmiðlarisum á kostnað innlendra
magdalena@frettabladid.is
„Það eru ekki aðeins greinendur
hérlendis sem hafa verið að van-
spá verðbólgunni heldur hefur það
verið staðan víðs vegar í heiminum.“
Þetta sagði Bergþóra Baldursdótt-
ir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka,
en hún var gestur Markaðarins sem
sýndur var á sjónvarpsstöðinni
Hringbraut klukkan 19.00 í gær-
kvöldi.
„Það er verið að vanspá um allan
heim og ekki bara hérlendis. Það
er rosalega erfitt að spá fyrir um
ástand sem hefur ekki gerst áður,“
segir Bergþóra og bætir við að helsta
ástæðan fyrir verðbólgu um allan
heim hafi verið afleiðingar farald-
ursins og stríðið í Úkraínu.
„Það hefur því reynst greiningar-
aðilum mjög erfitt að spá fyrir um
næstu skref, eins og hvenær aflétt-
ingarnar verða, hvað sé að gerast
varðandi framleiðslukeðjur erlendis
og hvernig fasteignamarkaðurinn
muni þróast.“
Bergþóra bætir við að margir
þættir verði að ganga upp og þeir
hafi verið öðruvísi heldur en grein-
ingaraðilar gerðu ráð fyrir.
„Við segjum það manna hæst að
við höfum verið að vanspá verð-
bólgunni og greiningaraðilar hér-
lendis og erlendis hafa gert það
líka.“
Í þættinum var rætt um ákvörðun
Peningastefnunefndar að hækka
stýrivexti um 0,75 prósentustig,
verðbólguna, fasteignamarkaðinn
og horfur í efnahagslífinu. n
Greinendur um
allan heim hafi
verið að vanspá
Heiðar Guðjónsson, fráfarandi forstjóri Sýnar, hefði glaður viljað stýra fyrirtækinu áfram ef heilsan hefði ekki gripið í
taumana. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræð-
ingur hjá Íslandsbanka.
8 Fréttir 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ