Fréttablaðið - 25.08.2022, Síða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@
frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar
Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK
OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
ragnarjon@frettabladid.is
„Það er mikil þörf á að f leiri en
einn valkostur sé í boði þegar selja
á aðgöngumiða,“ segir Ómar Már
Jónsson, framkvæmdastjóri MiðiX,
sem sækir nú á íslenskan miðasölu-
markað með nýju sölukerfi.
Ómar, sem var sjálfur viðburða-
haldari í sjö ár, segir hugmyndina að
fyrirtækinu hafa sprottið upp rétt
fyrir heimsfaraldurinn en honum
hafi þótt leitt að sjá einungis eitt
miðasölufyrirtæki á markaði.
„Það gera sér allir grein fyrir því
að það er ekki hollt fyrir nokkurn
mann að vera einn á markaði,“
segir Ómar sem hélt á sínum tíma,
ásamt félaga sínum, ráðstefnur,
vöru- og þjónustusýningar og flutti
inn hljómsveitir og þekkir því miða-
söluumhverfið vel.
Hann tekur fram að MiðiX muni
bjóða sanngjarnt verð og stuðla
þannig að aukinni samkeppni og
fjölbreytni í miðasölu.
„Í svona litlu umhverfi eins og við
erum í þá vitum við hvað fákeppni
gerir við fyrirtæki. Þess vegna erum
við búin að vera að vinna tvö síð-
ustu árin í greiningu á því hvernig
svona kerfi þarf að vera svo hægt sé
að bjóða upp á af burðagóða þjón-
ustu í miðasölu.
Þetta er annars vegar miðasölu-
kerfi eins og við þekkjum í dag þar
sem seldir eru miðar á staka við-
burði,“ segir hann og víkur síðan að
nýrri viðbót sem henti betur þeim
sem selja miða reglulega, eins og til
dæmis leikhús. „En þá er í rauninni
þessi hugbúnaður sem hægt er að
taka á leigu og viðkomandi getur
síðan selt úr kerfinu sjálfur.“ n
MiðiX boðar meiri samkeppni
Ómar Már
Jónsson,
framkvæmda-
stjóri MiðiX.
frettabladid.is
Þú finnur allar nýjustu fréttir
dagsins á frettabladid.is.
Innlendar og erlendar fréttir,
léttar fréttir, íþróttafréttir,
viðskiptafréttir, skoðanapistla,
spottið og auðvitað blað
dagsins ásamt eldri blöðum.
Hvað er
að frétta? Stefán Ingvar Vigfússon ætlar
að gera nokkrar tilraunir á
sviði Tjarnarbíós í dag og láta
meðal annars reyna á kenn-
ingar Brynjars Níelssonar,
aðstoðarmanns dómsmála-
ráðaherra, um ákjósanlegt
ástand uppistandsgrínara.
toti@frettabladid.is
Uppistandarinn Stefán Ingvar
Vigfússon frumsýndi sýninguna
Fullkomið ójafnvægi á Act Alone á
Suðureyri fyrr í þessum mánuði og
ætlar að endurtaka leikinn á sviði
Tjarnarbíós í dag klukkan 17.30 og
gera í leiðinni nokkrar tilraunir sem
geta mögulega skilað honum gagn-
legum niðurstöðum.
„Upphaflega stóð ekki til að halda
sýninguna oftar, en hún gekk svo
vel að mig langaði til þess að halda
hana í Reykjavík líka,“ segir Stefán
Ingvar og bendir á að um einhvers
konar tilraunasýningu sé að ræða
þar sem hann er að láta reyna á
ýmislegt í fyrsta skipti.
„Það eru nokkrir hlutir. Í fyrsta
lagi er ég að prófa að standa svona
einn og óstuddur á sviðinu eftir að
hafa starfað við uppistand í þrjú
ár með uppistandshópnum VHS.
Það er persónulega tilraunin,“ segir
Stefán Ingvar, sem hefur á þessum
þremur árum haldið fjórar sýningar
með VHS. Þar á meðal eina vinsæl-
ustu sýningu síðasta leikárs, VHS
krefst virðingar.
Brynjars þáttur Níelssonar
„Sýningin er tilraun til þess að
komast að því hvort það sé rétt hjá
honum,“ segir Stefán Ingvar, um
yfirskriftina Fullkomið ójafnvægi,
sem vísar til viðbragða Brynjars
Níelssonar, aðstoðarmanns
dómsmálaráðherra, við Bak-
þönkum grínarans sem birtust
í Fréttablaðinu í sumar.
„Ég skrifaði þessa Bakþanka,
sem Brynjar Níelsson tók eitt-
hvað illa, í sumar og í
kjölfarið sagði hann
að það færi illa fyrir
mönnum ef þeir
væru með uppi-
stand í fullkomnu
ójafnvægi,“ segir
Stefán Ing var,
sem sendi Brynj-
ari, Jordan Peter-
son og Sigmundi
D av í ð G u n n -
laugssyni tóninn
undir fyrirsögninni
Umræða.
Og ertu í fullkomnu ójafnvægi?
„Nei, nei. Ekki núna. Ég er alveg í
þokkalegu jafnvægi og ef ég er í full-
komnu ójafnvægi þá hefur það bara
gengið þokkalega fram að þessu.
Ég var að semja þetta efni um það
leyti sem Bakþankarnir birtust
og frumsýndi eftir það.
Engin gremja
Ég nefndi þetta út af þess-
um belgingi í Binna. Mér
fannst það við hæfi. Þetta
hét fyrst Í fullkomnu
ójafnvægi þegar ég
sýndi á Act Alone
en síðan finnst
mér bara Full-
komið ója f n-
vægi betra.“
S i t u r þe t t a
eitthvað í þér?
Ertu gramur út í
Brynjar og finnst
þér hann leiðin-
legur?
„ Nei, ég er
ekkert gramur
út í hann en
ég fíla hann hins vegar ekki neitt,“
segir Stefán Ingvar og bætir við að
Brynjar sé alveg á listanum yfir þá
sem hann vilji síst hitta.
Þér finnst hann ekkert fyndinn?
„Nei, mér finnst hann bara vera
búllí sem Sjálfstæðisf lokkurinn
hefur nýtt sér,“ segir grínarinn og
lýkur Brynjars þætti Níelssonar
með því að snúa sér aftur að sýn-
ingu dagsins.
Tilraunarinnar virði
„Það er líka ákveðin tilraun að sýna
svona snemma dags og vera þarna
á „happy hour“ en ekki að vera að
mæta á svið klukkan 9 eða 10 á
kvöldin. Ef það gengur, þá er svo
stór draumur að rætast hjá mér að
geta giggað og vera kominn heim í
kvöldmat.“ Eitthvað sem hann telur
vel þess virði að láta reyna á, en sýn-
ingin fer fram á nýju sviði á barnum
í Tjarnarbíói og hefst sem fyrr segir
klukkan hálf sex.
„Ég er að vonast til þess að þetta
verði á tveggja vikna fresti í vetur,
fram að jólum. Svo fáum við nýja
VHS sýningu eftir áramót.“ n
Jafnvægiskenning Brynjars
Níelssonar rannsökuð
Stefán Ingvar er ekki með neina bakþanka þegar hann lætur í dag reyna á
kenningu Brynjars Níelssonar um afdrif grínara í ójafnvægi. MYND/AÐSEND
Stefáni finnst
Brynjar ekkert
fyndinn.
26 Lífið 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ