Mosfellingur - 12.05.2022, Page 6
www.lagafellskirkja.is
kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ6
sunnudagur 15. maí
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju.
Sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson þjónar.
sunnudagur 22. maí
Guðsþjónusta kl. 11 í Lágafellskirkju.
Sr. Ragnheiður Jónsdóttir þjónar.
sunnudagur 29. maí
Hestamannaguðsþjónusta kl. 14 í
Mosfellskirkju í samstarfi við hesta-
mannafélagið Hörð.
sumarnámskeið lágafellssóknar
Ævintýraleg námskeið fyrir 6-9 ára
krakka í júní og ágúst. Lofum stuði
og ævintýrum í sumar!
Nánari upplýsingar og skráning
á heimasíðu.
Foreldramorgnar - fimmtudaga kl. 10-
12 í safnaðarheimilinu, Þverholti 3.
12. maí: Opið hús
19. maí: Síðasti foreldramorgunn fyrir
sumarfrí - opið hús.
Rafræn fermingarskráning
fyrir vorið 2023
Enn er hægt að skrá á fermingardaga
rafrænt á heimasíðu.
lagafellskirkja.is & endilega fylgdu
okkur á samfélagsmiðlunum facebook
& instagram.
Vinna við nýja körfu
boltavelli á áætlun
Framkvæmdir við nýja körfu-
boltavelli við Lágafellsskóla og
Varmárskóla sem kosnir voru í
lýðræðisverkefninu Okkar Mosó
hefjast nú á vormánuðum. Um er að
ræða fullbúna körfuboltavelli með
mottuundirlagi. Vinnu er lokið við
öflun á þeim búnað sem þarf til og
fá verktaka í verkið. Ekki var unnt
að hefja framkvæmdir á meðan
á skólahaldi stendur til að raska
ekki skólastarfi og tryggja öryggi á
skólalóðum. Því munu framkvæmd-
ir hefjast um leið og skólahaldi
lýkur í byrjun júní. Vellirnir verða
staðsettir þar sem aðgengi er gott
fyrir almenning, en jafnframt tekið
tillit til nærliggjandi íbúðarhúsa
við val á staðsetningu. Gert er ráð
fyrir að framkvæmdum verði lokið
í júlí 2022. Íslandsmet var slegið í
þátttöku í Okkar Mosó síðasta sumar
þar sem yfir 20% Mosfellinga kusu.
Meðal hugmynda sem voru settar í
framkvæmd í vetur var jólaskreyttur
garður á Hlégarðastúni. Flest verk-
efna úr kosningunni verða boðin
út og framkvæmd frá júní 2021 til
september 2022 eftir umfangi.
Fjölbreytt kynning á
lýðheilsuverkefnum
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá
lesendum Mosfellings að undanfar-
in misseri hefur verið mikill kraftur
í kynningu á lýðheilsuverkefnum
á vegum Mosfellsbæjar. Bæði sem
tengjast beint íþróttamannvirkjun-
um að Varmá og Lágafelli og eins
utan þeirra. Góðar kynningar hafa
verið á þeim fjölbreyttu möguleik-
um sem bæjarbúar á öllum aldri
hafa til eflingar sálar og líkama í
bæjarfélaginu. Nú þegar vorið er
komið fjölgar möguleikum bæjar-
búa á finna eitthvað skemmtilegt og
við hæfi til að efla heilsu utandyra.
Af nógu er að taka.
K y n n i n g
Um árabil hefur hópur fólks stundað vatns-
leikfimi í Lágafellslaug og nú er ásóknin
orðin slík að ákveðið hefur verið að bæta
við aukatímum á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá 19-20 bæði kvöldin.
Undanfarin tíu ár hefur Sigrún Másdóttir
leitt starfið en hún er menntaður íþrótta-
fræðingur með mastersgráðu í heilsuþjálf-
un og kennslu frá Háskólanum í Reykjavík.
Mosfellingur tók Sig-
rúnu tali um starfið.
„Ég tók við vatnsleik-
fimihópnum árið 2012
og þá hafði hópurinn
verið starfræktur í nokk-
ur ár. Hópurinn sam-
anstendur af konum á
besta aldri sem líður vel
í vatni í skemmtilegum
félagsskap og stór hluti
af hópnum hefur verið frá upphafi. Hóp-
urinn er í Lágafellslaug alla mánudaga og
miðvikudaga, eina klst. í senn. Lágafells-
laug hentar einstaklega vel fyrir kennsluna
þar sem færanlegur botn er til staðar”
Frábær kostur fyrir hjarta- og æðakerfi
Sigrún segir tengslin mikil á milli kvenn-
anna, bæði systur, mágkonur og vinkonur
stormi saman í laugina og hópurinn hafa
stækkað jafnt og þétt í gegnum árin.
„Námskeiðin hafa verið þéttsetin síðast-
liðin ár þar sem áherslan er ekki einungis
á fjölbreytta og áhrifaríka hreyfingu heldur
ekki síður til að upplifa ánægju og gleði í
góðum félagsskap.
Þjálfun í vatni er frábær kostur fyrir
hjarta- og æðakerfi og blóðþrýstingur rís
ekki hátt undir álagi, einnig eru litlar líkur
á meiðslum.
Vatnsleikfimi hentar því flestum þar
sem auðveldara er að framkvæma æfing-
ar í vatninu en á þurru landi, líkaminn
verður léttari og því minna álag á vöðva
og liðamót. Fyrir þá sem glíma t.d. við gigt
eða stoðkerfisvandamál er vatnsleikfimi
kjörin.“
Hver og einn framkvæmir
æfingar á sinni eigin getu
Sigrún þjálfaði mest handbolta á árum
áður en þegar hún tók að sér hópinn í
Lágafellslaug sótti hún sér innblástur og
hugmyndir víðsvegar á heilsustofnunum
og sundlaugum landsins þar sem vatns-
leikfimi er starfrækt.
„Ég held að einhvers konar vatnsleik-
fimi sé nú í boði í flestum sundlaugum
landsins.
Fyrir nokkrum árum kenndi ég eldri
borgurum hér í Mosfellsbæ og þekki því
nokkuð vel til. Ég reyni að byggja nám-
skeiðin upp á fjölbreyttri þolþjálfun og
styrktaræfingum með margs konar hjálpar-
tækjum, þar sem hver og einn framkvæmir
æfingarnar á sinni eigin getu og forsend-
um,“ sagði Sigrún að lokum.
Sigrún Másdóttir hefur leitt leikfimina í 10 ár • Hópur kvenna á besta aldri
Vatnsleikfimi nýtur
sívaxandi vinsælda
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG
Þjálfun í vatni er frábær
kostur fyrir hjarta- og
æðakerfi og blóðþrýstingur rís
ekki hátt undir álagi, einnig eru
litlar líkur á meiðslum.
Sigrún Másdóttir
bæta hefur þurft við auka-
tímum í lágafellslaug
samstilltar
K y n n i n g
Fjölskyldutímar Mosfellsbæjar hófu göngu
sína haustið 2015 og eru því á sjöunda
starfsári. Markmið Mosfellsbæjar með
tímunum er að sinna hlutverki sínu sem
lýðheilsusamfélag og eru tímarnir frábær
viðbót við mörg önnur lýðheilsuverkefni
bæjarins.
Hjónin Þorbjörg Sólbjartsdóttir íþrótta-
fræðingur og Árni Freyr Einarsson tóku að
sér að sjá um tímana fyrsta starfsárið en þar
sem tímarnir nutu mikilla vinsælda strax
fyrsta starfsárið var þörf á að bæta við fleiri
leiðbeinendum og bættust þá hjónin Íris
Dögg og Ólafur Snorri Rafnsson íþrótta-
kennari í hópinn. Mosfellingur tók Ólaf
Snorra tali um starfið.
„Markmið tímans er að búa til aðstæð-
ur þar sem fjölskyldan, mamma, pabbi,
afi, amma, börn og unglingar geta komið
saman og leikið sér í íþróttum af öllu tagi,
boltaíþróttum, spaðaíþróttum og fimleik-
um svo eitthvað sé nefnt.
Fjölskyldurnar eiga dýrmæta og
skemmtilega samverustund saman í
íþróttasalnum og allir njóta sín.“
Almenn ánægja og ásókn mikil
„Aðókn í tímann hefur verið vonum
framar og eru Mosfellingar greinilega
ánægðir með þennan möguleika að koma í
íþróttahúsið og eiga þar góðar stundir. Tím-
arnir hafa vakið athygli út fyrir okkar bæj-
armörk og hafa önnur sveitarfélög spurst
fyrir um verkefnið, einnig var var fjallað um
það í málgagni UMFÍ á dögunum.
Stemningin er alltaf góð í tímunum og
mikil gleði allsráðandi. Jólasveinar hafa
komið í heimsókn fyrir jólin og í kringum
hrekkjavöku hefur verið hrekkjavökuþema
og gestir komið í búningum. Þegar við för-
um í sumarfrí þá höfum við grillað pylsur
eftir tímann og einu sinni var hoppukastali
í lokatímanum.
Uppbrotsdagar falla í góðan jarðveg hjá
gestum fjölskyldutímans. Fyrsta veturinn
fengu gestir fjölskyldutímans skíðapassa
í Skálafelli einn sunnudag og voru margir
sem nýttu sér það og skíðuðu saman.
Eins er frítt í Varmárlaugina eftir tímann
og þar eru stundum heitir sunnudagar í
lauginni. Þá er hitastig sundlaugarinnar
hækkað örlítið og þá gefst gestum sá mögu-
leiki að slaka vel á í lauginni eftir tímann.
Oft fyrsta skref í ástundun
á skipulögðu íþróttastarfi
„Við erum virkilega ánægð með þessar
viðtökur og það er greinilega grundvöllur
fyrir tíma sem þessa. Fleiri heimsóknir í
Varmá eru líka góð auglýsing fyrir Aftur-
eldingu þar sem margir sjá auglýsingar hjá
deildum Aftureldingar og þar af leiðandi
getur þetta verið fyrsta skref í ástundun
á skipulögðu íþróttastarfi þegar áhugi
vaknar að prófa íþróttir hjá Aftureldingu í
framhaldinu.
Meðan ánægjan með fjölskyldutímann
meðal bæjarbúa er svona mikil og aðsókn-
Ókeypis fölskyldutímar alla sunnudaga kl. 10:30-12:00
Fjör að Varmá
HEILSUEFLANDI SAMFÉLAG
íris dögg, ólafur snorri, arni freyr
og Þorbjörg ásamt börnum sínum
Fjölskyldurnar eiga
dýrmæta og skemmtilega
samverustund saman í íþrótta-
salnum og allir njóta sín.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar og Willum Þór
Þórsson heilbrigðisráðherra hafa undirritað samning um stækkun
hjúkrunarheimilisins Hamra í Mosfellsbæ.
Reist verður nýbygging áföst heimilinu fyrir 44 íbúa. Þar með
ríflega tvöfaldast stærð heimilisins með aðstöðu fyrir samtals 74
íbúa. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist seinni hluta næsta árs
og að hægt verði að taka heimilið í notkun í ársbyrjun 2026.
Samtal um stækkun hefur staðið frá árinu 2018 þegar velferð-
arráðuneytið boðaði til fyrsta fundar um mögulega stækkun.
Samkvæmt samningi munu heilbrigðisráðuneytið og Mosfellsbær
standa saman að stækkun heimilisins.
Þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými er brýn
„Við Mosfellingar fögnum mjög ríflega tvöföldun hjúkrunar-
heimilisins Hamra. Þannig verður hægt að mæta betur þörfum íbúa
Hamra og efla starfsemina frá því sem nú er enda verður einingin
hagkvæmari í rekstri sem mun skila sér til íbúanna.
Þá notum við tækifærið til að efla félagsstarf Mosfellsbæjar í
húsinu til hagsbóta fyrir alla eldri íbúa og fjölskyldur þeirra. Hér
er um stóra og mikilvæga framkvæmd að ræða sem skiptir miklu
máli fyrir samfélagið hér. Þörfin fyrir fleiri hjúkrunarrými er brýn,“
segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
85% greiðast úr ríkissjóði á móti 15% framlagi Mosfellsbæjar
„Þetta er mikið gleðiefni,“ bætir heilbrigðisráðherrann Willum
Þór Þórsson við. „Með þessu er framfylgt stefnu stjórnvalda um
að mæta aukinni þörf fyrir hjúkrunarrými, jafnframt því að bæta
aðbúnað fyrir íbúa og starfsfólk og efla og bæta þjónustu við aldr-
aða,“ segir Willum.
Hjúkrunarheimilið Hamrar stendur við Langatanga í Mosfells-
bæ. Húsnæðið er um 2.200 fermetrar með aðstöðu í dag fyrir 33
íbúa. Þjónustumiðstöð og dagvistun eru samtengdar heimilinu.
Nýbyggingin mun rísa norðan við núverandi heimili, samtals 2.860
fermetrar á tveimur hæðum og verður samtengd eldri byggingu.
Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er tæpir 2,5 millj-
arðar króna og skiptist kostnaðurinn þannig að 85% greiðast úr
ríkissjóði á móti 15% framlagi bæjarfélagsins sem jafnframt leggur
til lóðina undir húsnæðið.
Nýja byggingin verður staðsett norðan við núverandi húsnæði og
verður áfast því. Verður byggingin á tveimur hæðum með tveimur
11 eininga deildum á hvorri hæð.
Hjúkrunarheimilið ríflega tvöfaldast • Byggt á tveimur hæðum í norður • 2,5 milljarðar
samið um stækkun Hamra
haraldur sverrisson bæjarstjóri
og willum þór heilbrigðisráðherra
Á dögunum veitti íþrótta- og tómstunda-
nefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og
efnilegra ungmenna. Styrkirnir eru í formi
launa yfir sumartímann og eru greiddir í
samræmi við önnur sumarstörf hjá Mos-
fellsbæ.
Markmiðið er að gefa einstaklingum
sem skara fram úr færi á að stunda sína
list, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann.
Við valið er stuðst við reglur sem byggjast
á vilja Mosfellsbæjar til að koma til móts
við ungmenni sem vegna listar, íþróttar eða
tómstundar sinnar eiga erfitt með að vinna
launuð störf að hluta til eða að öllu leyti yfir
sumartímann.
vel að styrknum komin
Í ár bárust nefndinni 17 umsóknir, allir
umsóknaraðilar voru sannarlega vel að
styrknum komnir og langt frá því að vera
auðvelt að bera saman og velja á milli
umsókna.
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar
öllum aðilum fyrir þeirra umsókn og óskar
þeim öllum velfarnaðar í leik og starfi.
Styrkhafar árið 2022 eru: Aron Ingi Há-
konarson (golf ), Brynjar Vignir Sigurjóns-
son (handbolti), Hafrún Rakel Halldórs-
dóttir (knattspyrna), Sigríður Ragnarsdóttir
(listdans), Skarphéðinn Hjaltason (júdó) og
Þorsteinn Leó Gunnarsson (handbolti).
Á myndina vantar Brynjar og Þorstein.
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrkir sex ungmenni • Laun yfir sumarið
styrkur veittur til ungmenna
styrkþegar ásamt hafsteini
formanni nefndarinnar
sÓkn Í sÓkn
– liFandi saMFÉlag