Mosfellingur - 12.05.2022, Qupperneq 8
- Fréttir úr bæjarlífinu8
Fuglavernd skorar á
kattaeigendur
Félagið Fuglavernd skorar á
kattaeigendur að halda köttum inni
yfir varptíma fugla. Kettir eru öflug
og afkastamikil rándýr sem höggva
stór skörð í stofna fugla sem verpa
í nágrenni við mannabústaði ár
hvert. Á varptíma er því mikilvægt
að lausaganga katta sé takmörkuð
og sérstaklega yfir nóttina. Bjöllur
og kattakragar eru í sumum
tilfellum betri vörn en engin en
langbest er að halda þeim inni. Í
Mosfellsbæ verpa margir smáfuglar
sem myndu njóta góðs af því ef
kattaeigendur myndu halda köttum
sínum að mestu inni á þessum tíma.
Kattakragar hafa gefið góða raun
við að draga úr veiðum katta. Þeir
eru í skærum litum og gera það að
verkum að köttunum tekst síður að
læðast að bráðinni, þar sem fuglar
sjá skæra liti mjög vel.
Hilmar nýr formaður
karlakórs Kjalnesinga
Mosfellingurinn Hilmar Stefánsson
var kjörinn nýr formaður Karlakórs
Kjalnesinga á aðalfundi kórsins sem
haldinn var í Fólkvangi mánu-
daginn 9. maí. Hilmar tekur við af
Jóhannesi Baldurssyni sem lætur
af störfum eftir 5 ára starf. „Þetta
er auðvitað mikill heiður og ég er
þakklátur fyrir það traust sem mér
er sýnt. Það er margt spennandi
fram undan hjá kórnum, við stefn-
um meðal annars á kórferð saman
utan landsteina og svo er ýmislegt
annað á döfinni næstu misserin,“
segir Hilmar. Karlakór Kjalnesinga
var stofnaður árið 1991 af nokkrum
félögum af Kjalarnesi og Kjós.
Kórinn hefur á að skipa rúmlega 60
félögum og kemur reglulega fram á
hinum ýmsu viðburðum.
Mánudaginn 9. maí voru afhentir styrkir
úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að
stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla-
og frístundastarfi í Mosfellsbæ.
Í sjóðinn getur sótt starfsfólk skóla- og
frístundastarfs og verkefnin geta verið sam-
starfsverkefni bæði innan og utan skóla. Í
ár var áhersla lögð á umhverfisfræðslu og
fengu Krikaskóli og Helgafellsskóli úthlutað
til eftirfarandi verkefna.
Tími og rými til að kanna umhverfið
UM HVERFIÐ er verkefni sem ætlað er
gefa börnunum í Krikaskóla tíma og rými
til að kanna umhverfi sitt sérstaklega út frá
sínum veruleika, skóla og búsetu hér í Mos-
fellsbæ. Markmið verkefnisins er að gefa
börnunum færi á að að auka skilning sinn
á umhverfinu og samspili þess við búsetu.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna mun
hafa sérstakt vægi í fyrirhuguðu umhverfis-
verkefni. Verkefnið hefur öfluga tengingu
við skólastarfið í Krikaskóla eins og það er
sett fram í almennum hluta skólanámskrár
Krikaskóla frá 2021.
Skólanámskrá Krikaskóla er nánari út-
færsla skólans á Aðalnámskrám leik- og
grunnskóla ásamt þeim lögum og reglum
sem um íslenskt skólastarf gilda. Að sama
skapi er verkefnið með tengingu við ný-
útgefna menntastefnu Mosfellsbæjar en
vöxtur, fjölbreytni og samvinna eru þrjár
grunnstoðir nýrrar menntastefnu Mos-
fellsbæjar.
Gönguskíði fyrir leikskólabörn
FJÖLBREYTT HREYFING OG ÚTIVIST er
verkefni sem hugsað er fyrir leikskólabörn í
Helgafellsskóla. Markmiðið er að börnin fái
sem fjölbreyttasta hreyfingu og útivist, með
því erum við að efla lýðheilsu og umhverf-
isvitund barnanna.
Með styrknum er ætlunin að fjárfesta
í sex pörum af gönguskíðum til að auka
hreyfifærni barna og útivistaráhuga. Gott
svæði er til að stunda útiveru í nærum-
hverfi Helgafellsskóla og með hverri ferð
út fyrir skólalóðina á sér stað ákveðin um-
hverfisfræðsla.
Verkefnið er langtímaverkefni sem væri
í stöðugri þróun, það gefur augaleið að
það myndi eiga sér stað yfir vetrartímann
þegar aðstæður leyfa. Búnaðurinn væri
eign skólans en vissulega opnað fyrir þann
möguleika að lána hann til annarra skóla í
sveitarfélaginu.
Stuðlað að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi • Umhverfi og gönguskíði
Úthlutað Úr Klörusjóði
styrkþegar ásamt kolbrúnu
formanni fræðslunefndar
Á 98. ársþingi UMSK hlaut hestamannafélagið Hörður hvatningar-
verðlaun UMSK fyrir starf fræðslunefndar fatlaðra. Verðlaununum
fylgir peningastyrkur. „Við erum ákaflega stolt og þakklát fyrir
þessa viðurkenningu á frábæru starfi á reiðnámskeiðum fatlaðra
sem borið er uppi af fræðslunefndinni og sjálfboðaliðum og rekið
með styrkjum,“ segir Margrét Dögg formaður Harðar.
Á myndinni eru Jón Geir Sigurbjörnsson stjórnarmaður og Mar-
grét Dögg Halldórsdóttir formaður Harðar að taka við viðurkenn-
ingunni úr hendi Guðmundar Sigurbergssonar formanns UMSK.
hörður hlýtur hvatn-
ingarverðlaun uMsK
tekið við verðlaununum