Mosfellingur - 12.05.2022, Page 20
- Hvað ætlar þú að kjósa?20
Sjö framboðslistar bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Mosfellsbæ þann 14. maí • Kjörstaður í Lágafellsskóla kl. 09-22 • Bæjarfulltrúm fjölgar í 11 • Nýr bæjarstjóri tekur við • Nýtum kosningarétt
Hvað ætlar þú að kjósa? Lokaorð frá oddvitum framboðanna
Kjósum XD í Mosó
á laugardag
Í sveitarstjórnarkosningunum býður
Sjálfstæðisflokkurinn fram sterkan lista
með öflugum frambjóðendum sem búa
yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu úr
samfélaginu. Hópurinn hefur brennandi
áhuga á velferð
Mosfellsbæjar
og hlakkar til
að gera bæinn
okkar allra að
enn betri stað til
þess að búa á.
Kosninga-
baráttan
hefur verið
skemmtileg
og lærdóms-
rík. Í framhaldi
af prófkjöri héldum við íbúafundi,
fjölskylduskemmtanir og fleiri viðburði.
Hápunkturinn var að ganga í öll hús í
bænum og afhenda stefnuskrána og eiga
skemmtileg og fræðandi samtöl við íbúa.
Við höfum þannig fengið ómetanlegar
upplýsingar frá hagaðilum og öðrum
íbúum sem við munum hafa að leiðarljósi
í okkar vinnu í bæjarstjórn.
Takk Mosfellingar fyrir að taka svo vel
á móti okkur. Við í XD í Mosó ætlum að
halda Mosfellsbæ áfram í fremstu röð þegar
kemur að ábyrgum rekstri, öflugri þjónustu
og ánægju íbúa. Til þess þurfum við þinn
stuðning. Ég hvet alla til að nýta kosninga-
rétt sinn, hvert atkvæði skiptir máli.
Sjálfstæðisflokkurinn (D)
Ásgeir Sveinsson
Merki Sjálfstæðisflokksins
Merki Sjálfstæðisflokksins, Íslandsfálki með útþanda
vængi, hefur tekið ýmsum breytingum í áranna rás, en
árið 2013 var á ný tekið í notkun það merki, sem lengst
af var í notkun og Halldór Pétursson teiknaði fyrir hann.
Við mælumst til þess að það sé notað í auglýsingum og
umfjöllun um flokkinn, en ekki önnur og eldri merki. Að
öllu jöfnu er fálkinn svartur á hvítum grunni, með eða
án nafns flokksins, en það má einnig notast við bláa
útgáfu, sömuleiðis á hvítum grunni. Með fylgir einnig
andhverf útgáfa, hvítur fálki, sem nota má á dökkum
grunni ef þarf. Við mælumst þó til að sparlega sé farið
með það.
Í kosningastarfi hefur einnig verið notast við annað
merki, D, sem einnig er að finna hér. Það er að öllu jöfnu
birt í bláum lit á hvítum grunni, en þó má notast við
aðra liti ef tilefni er til, þar á meðal í regnbogalitum. Við
mælumst til þess að þá sé notast við þá liti, sem hér eru
birtir, en það litróf tekur þó stundum breytingum. Þó
það sé oftast á hvítum grunni má bregða út af því.
Prentlitur
C100 M0 Y0 K0
EKKI NOTA GÖMUL MERKI
Prentlitur: C0 M0 Y0 K100 Prentlitur: C100 M0 Y0 K0
Skjálitur: R43 G171 B226
Skjálitur
R43 G171 B226
Prentlitur
C0 M0 Y0 K50
Ýmis önnur dæmi
Á dökkum grunni
Af hverju
Viðreisn?
Viðreisn vill breytt vinnubrögð í bæj-
arstjórn og nefndum Mosfellsbæjar. Í
lýðræðislegu samfélagi er nauðsynlegt að
pólitísk umræða eigi sér stað inni í nefnd-
um bæjarins. Að þar fari fram yfirveguð
umræða þar sem
sjónarmið allra
heyrast og unnið
er að sameigin-
legri lausn.
Á síðustu fjór-
um árum höfum
við hinsvegar
upplifað
að meiri-
hlutinn
vinni mál
utan nefnda og
kynni svo niðurstöðu sína í stað þess að
taka umræðuna. Nýjasta dæmið um þessi
vinnubrögð meirihlutans er samningur-
inn um Blikastaðalandið. Engin umræða
í bæjarstjórn um málið fyrr en fullbúinn
samningur lá fyrir. Engin samtöl við
samningsaðila. Engu hægt að breyta, bara
samþykkja eða synja. Svona hefur vinnan
verið, í stórum málum sem smáum.
Við í Viðreisn viljum heyra skoðanir
allra við borðið og vinna að sátt. Með
því að kjósa Viðreisn þá ertu að kjósa
raunverulega breytingu. Við munum
vinna fyrir alla, ekki bara suma.
Þú getur breytt, veldu Viðreisn.
X-C
Viðreisn (C)
Lovísa Jónsdóttir
Hlýr og mannlegur
Mosfellsbær
Kæri kjósandi, ef þú vilt hafa áhrif á
það hvernig bærinn okkar þróast þá er
mikilvægt að þú nýtir kosningaréttinn og
mætir á kjörstað.
Á síðustu
vikum höfum
við hitt marga
og kynnt okkur
málefni og stöðu
þeirra hér í
bæjarfélaginu.
Það er svo
gott að finna
hvað fólki
er umhugað
að leggja sitt
af mörkum fyrir
bæinn sinn og gera gott samfélag enn
betra.
Rödd þín er mikilvæg og þú skiptir máli
fyrir bæjarfélagið því þannig samfélagi
viljum við búa í.
Við þurfum þó öll að minna okkur á
að draga fram það jákvæða og fallega í
kringum okkur og að hafa bæinn okkar
mannlegan, heilsueflandi og framsýnan.
Þar sem allir skipta máli. Þar sem er
hlustað og borin virðing fyrir öðrum og
málin rædd.
Ef þú leggur áherslu á mannlegt
samfélag settu þá X við B á kjördag.
Framsóknarflokkurinn (B)
Halla Karen Kristjánsdóttir
Sjö framboð bjóða
fram til bæjarstjórnar
Sjö framboðslistar skiluðu inn gildu
framboði til sveitarstjórnarkosninga
í Mosfellsbæ 2022. Listarnir eru eft-
irfarandi: B-listi Framsóknarflokks,
C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæð-
isflokks, L-listi Vina Mosfellsbæjar,
M-listi Miðflokks, S-listi Samfylking-
ar og V-listi Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs. Kosningar fara
fram laugardaginn 14. maí og er
kjörstaður í Lágafellsskóla. Kjör-
fundur stendur frá kl. 09:00 til 22:00.
Bæjarfulltrúm fjölgar nú úr 9 í 11
vegna örrar fjölgunar íbúa í Mos-
fellsbæ en hér búa í dag rúmlega
13.000 manns. Í síðustu sveitar-
stjórnarkosningum, árið 2018, urðu
úrslitin þannig: B-listi 2,9%, C-listi
11,2%, D-listi 39,2%, Í-listi 7,9%,
L-listi 10,6%, M-listi 9,0%, S-listi
9,5% og V-listi 9,6%. Kjörsókn árið
2018 var 64,7% og voru 7.467 manns
á kjörskrá. D- og V-listi hafa starfað
saman í meirihluta með Harald
Sverrisson sem bæjarstjóra. Myndin
að ofan er frá framboðsfundi sem
Félag aldraðra stóð fyrir í Hlégarði.