Mosfellingur - 12.05.2022, Side 21
Sjö framboðslistar bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga í Mosfellsbæ þann 14. maí • Kjörstaður í Lágafellsskóla kl. 09-22 • Bæjarfulltrúm fjölgar í 11 • Nýr bæjarstjóri tekur við • Nýtum kosningarétt
Hvað ætlar þú að kjósa? Lokaorð frá oddvitum framboðanna
Kveðja til
kjósenda
Laugardaginn 14. maí göngum við til
kosninga og kjósum þann framboðslista
sem við treystum best til að koma að
stjórn bæjarins næstu fjögur árin.
Það hefur verið afskaplega mikil og dýr-
mæt lífsreynsla
að stíga inn í
þennan heim og
kynna sér sveit-
arstjórnarmál og
hefur það kveikt
í mér enn frekari
áhuga að fá
að koma að
málum. Við
sem bjóðum
okkur fram til
setu í bæjar-
stjórn eigum það sameiginlegt að vilja
bænum okkar allt það besta.
Fyrir hönd Vina Mosfellsbæjar er ég
tilbúin til að verja mínum kröftum í þágu
sveitarfélagsins og geri það með heiðar-
leika, gagnsæi, traust og fagleg vinnu-
brögð að leiðarljósi. Ég tel að reynsla mín
og fagþekking sé mikill ávinningur fyrir
sveitarfélagið í þeirri vegferð til framtíðar
sem samfélagið er í.
Ef þú vilt sjá breytta stjórnarhætti,
óháðan faglega ráðinn bæjarstjóra og
lýðræðislegt samtal íbúa og þeirra sem
stjórna hvet ég þig til að setja X við L á
laugardaginn.
Vinir Mosfellsbæjar (L)
Dagný Kristinsdóttir
Einfalt val fyrir raun
verulegar breytingar
Kæri íbúi Mosfellsbæjar. Það eru
forréttindi að hafa fengið tækifæri til að
vinna fyrir þig á síðasta kjörtímabili og
afskaplega ánægjulegt að hitta fólkið í
bænum undanfarna daga, rætt við fjölda
kjósenda og hitt
svo marga frá-
bæra íbúa sem
greinilega kalla
eftir breytingum.
Á laugardaginn
greiðir þú at-
kvæði og tekur
beinan þátt
í því hverjir
munu gæta
að börnum
bæjarbúa í
skólunum, í íþróttum, hverjir munu sjá um
aðhaldið, ákvarða útsvarið og önnur gjöld.
Því verður ekki breytt næstu fjögur árin
hverjir fara með völdin í bænum þínum.
Við verðum að tryggja hágæða þjónustu
við börnin sem og aldraða. Í nærsamfélagi
okkar verðum við að hlúa að fötluðum
og öryrkjum, börnum með fjölþættan
vanda og fjölskyldum þeirra. Við verðum
að treysta tekjustofna með uppbyggingu
fjölbreytts atvinnulífs. Með nægt framboð
á góðu byggingarlandi ásamt því að sinna
viðhaldi innviða komumst við lengra.
Viljir þú raunverulegar breytingar með
raungóðum flokki er valið einfalt. X við M
á kjördag fyrir mig, þig og Mosfellsbæ.
Miðflokkurinn (M)
Sveinn Óskar Sigurðsson
Saman byggjum við
betri Mosfellsbæ
Kæru Mosfellingar. Á laugardaginn
göngum við til kosninga. Við höfum í
kosningabaráttunni lagt megináherslu
á að stórefla þarf sérfræðiþekkingu inni
í skólunum svo börnin okkar fái bestu
kennslu og atlæti
sem kostur er;
endurskoðun
miðbæjarskipu-
lags svo takist að
búa til raunveru-
legan miðbæ;
framtíðarsýn
varðandi um-
hverfisvæna
atvinnuupp-
byggingu;
fjölbreytta
búsetukosti fyrir fólk á öllum æviskeið-
um; stórefldan stuðning til sjálfstæðrar
búsetu aldraðra; frístundaávísun í 75.000
kr.; metnaðarfull mælanleg markmið í
loftslagsmálum og hugmyndasamkeppni
um nýtingu Hlégarðs. Allt miðar þetta að
því að búa til gott samfélag þar sem haldið
er utan um alla og enginn skilinn eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt hér öllu í
20 ár. Breytingar þar á eru samfélaginu holl-
ar og Samfylkingin leikur þar lykilhlutverk.
Við bjóðum fram fólk með mikla þekkingu
og reynslu af bæjarmálunum og nýtt fólk
með ferska sýn og áherslur. Við búum yfir
reynslunni, þekkingunni og framtíðarsýn-
inni sem þörf er fyrir í okkar góða bæ.
Samfylkingin (S)
Anna Sigríður Guðnadóttir
Vinstri græn setja
umhverfismál á oddinn
Kæru Mosfellingar. Framboðslisti vinstri
grænna er skipaður fólki sem vill skapa
fjölskylduvænt, umhverfisvænt og réttlátt
samfélag þar sem allir sitja við sama borð.
Við setjum umhverfismál á oddinn, enda
hafa þau aldrei
verið mikilvæg-
ari en á okkar
dögum. Ég hvet
bæjarbúa til að
kjósa V-listann
næstkomandi
laugardag og
læt hér fylgja
með vinstri
græna
sonnettu.
Nú kviknar vorið, ljúfan býður blæinn
og blómin anga eftir grimman vetur.
Það er líkt og baslið gangi betur,
börnin sér leika allan sólardaginn.
Og fuglar fljúga sunnan yfir sæinn
þeir syngja ljóð um næturþelið ljósa.
Hvað hyggst þú nú í kosningunum kjósa,
þeir kveða í runni út um allan bæinn.
Sveitunginn káti, á kjörstaðinn hann fer;
með krossinn að vopni velur fólkið væna.
Hvað skal nú velja? Það er vandi minn.
Kjóstu það eina sem af öllu ber
einvalalið og kennt við vinstri-græna.
Kjósandinn ljúfi, það er listinn þinn! BB
Vinstri hreyfingin - Grænt framboð (V)
Bjarki Bjarnason
I I I
HYGGE gefur
reiðhjólahjálma
f. krakka*
VÍSkynnir nýjahúsvagna-tryggingu
HYGGE gefur
rafmagnshjól
í sumarleik
Útilegumannsins
TILBOÐá völdum vörum Sumarhátíð
Lokaorð oddvita - 21