Mosfellingur - 12.05.2022, Qupperneq 24
- Bæjarblaðið í Mosfellsbæ24
Þ verholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Miðsvæði 116-M – aðalskipulagsbreyting
Breytingin felur í sér fjölgun leyfilegra íbúða á miðbæjarsvæði 116-M, úr 386
í 750, gerð með uppfærslu á töflu um íbúðarbyggð í greinargerðar gildandi
aðalskipulags. Í stað hefðbundinna íbúða koma þjónustuíbúðir tengdar
dvalarheimili Eirar að Hlaðhömrum. Tillagan er framsett sem breyting á
töflu.
Miðsvæði 401-M – aðalskipulagsbreyting
Breytingin felur í sér uppfærslu á töflum á bls. 31 og 40 í aðalskipulagi
Mosfellsbæjar 2011-2030. Uppfærðar eru fjöldatölur eigna á bls. 31, bætt er
við línu fyrir 401-M og heildarfjöldi skilgreindur sem 33 innan svæðis. Einnig
eru lýsing og skipulagsákvæði svæðis á bls. 40 uppfærð. Upplýsingum um
íbúðir er bætt við skipulagsákvæði.
Bjarkarholt 1, 2 og 3 – deiliskipulagsbreyting
Breyting verður á lóðum og lóðamörkum, annarsvegar lóð fyrir
íbúðabyggingar og svo lóð fyrir miðbæjargarð og veitingarskála. Í stað 44
hefðbundinna íbúða koma 150 minni þjónustuíbúðir fyrir aldraða. Megin þorri
bílastæða verða í bílakjallara, en 32 stæði verða á lóð. Gerðar eru breytingar
á legu og stærð miðbæjargarðs.
Sunnukriki 3, 5 og 7 – deiliskipulagsbreyting
Verið er að gera breytingar á töflu í greinargerð gildandi skipulags. Þar sem
fjöldi eigna og hlutfall fjölbýlis í kafla 3.1 breytist úr 83 íbúðum á 5 lóðum í
116 íbúðir á 8 lóðum. Einnig eru breytingar á skilmálum lóða í kafla 4.2.
Athugasemdafrestur ofangreindra skipulagsmála er frá 12. maí til og með
27. júní 2022.
Gögn eru aðgengileg á vef Mosfellsbæjar og á upplýsingatorgi, 1. hæð.
Þverholti 2, svo þau sem vilja geti kynnt sér tillögur og gert við þær athuga-
semdir. Einnig eru aðalskipulagstillögur til sýnis hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Athugasemdir skulu vera skriflegar ásamt helstu
upplýsingum og kennitölu sendanda. Senda skal þær skipulagsnefnd
Mosfellsbæjar, Þverholt 2, 270 Mosfellsbæ eða í tölvupósti á
skipulag@mos.is
12. maí 2022
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
Kristinn Pálsson
Tillögur að aðal- og deiliskipulagsbreytingum
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt að auglýsa tvær breytingar á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, skv 1. mgr. 36.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og tvær breytingar á deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
RITSMIÐJA
fyrir 10-12 ára
í Bókasafni Mosfellsbæjar
13.-15. júní kl. 9:30-12:00
Í smiðjunni læra þátttakendur að:
• æfa ímyndunaraflið
• búa til skemmtilegar sögupersónur
• skrifa spennandi sögu
Smiðjustjóri er Eva Rún Þorgeirsdóttir rithöfundur.
Eva Rún skrifar bækur, hljóðbækur og
sjónvarpshandrit fyrir krakka. Hún hefur m.a.
skrifað bækurnar um Stúf, hljóðbókina
Sögur fyrir svefninn og sjónvarpshandrit
fyrir Stundina okkar.
Smiðjan er ókeypis og allt efni innifalið.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda
og skráning því nauðsynleg.
Skráningar sendist á netfangið
evadogg@mos.is
í Bókasafni Mosfellsbæjar
laugardaginn 21. maí kl. 12-15
Fögnum sumri með
Dr. BÆK
Við hvetjum alla hjólreiðamenn til að koma með
hjólhesta sína í fría ástandsskoðun hjá
doktornum í upphafi sumars.
Hann kemur með farandskoðunarstöðina sína,
pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Doktorinn
skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra.
í Bókasafni Mosfellsbæjar
laugardaginn 21. maí kl. 12-15
Fögnum sumri með
Dr. BÆK
Við hvetjum alla hjólreiðamenn til að koma með
hjólhesta sín í frí ástandsskoðun hjá
doktorn phafi sumars.
Hann kemur með farandskoðunarstöðina sína,
pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Doktorinn
skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra.