Mosfellingur - 12.05.2022, Síða 42
- Aðsendar greinar42
Í síðasta tölublaði Mosfellings voru
kynntar fyrir bæjarbúum fyrirætl-
anir um byggingu þjónustuhúss
við íþróttahúsið að Varmá.
Þetta er löngu tímabær uppbygg-
ing sem við í Viðreisn vorum með á
stefnuskrá okkar fyrir síðustu sveit-
arstjórnarkosningar. En því miður
þá lítur allt út fyrir að þessi bygging
verði enn einn búturinn í bútasaumsteppið
Varmá.
Með byggingu þessa húss er verið að
skapa félagsaðstöðu sem lengi hefur verið
kallað eftir. Við bætast 4 búningsklefar og
aðkoman að húsinu verður eins og hún á
að vera í nútímalegri íþróttaaðstöðu. En
er þetta nóg? Hvar er heildarsýnin fyrir
svæðið? Mosfellsbær er í örum vexti og
mun halda því áfram á næstu árum.
Framtíðarsýnin
Þessi byggingaráform bera það helst
með sér að þau séu ætluð til þess að leysa
stöðuna eins og hún er í dag en ekki vanda
morgundagsins. Við í Viðreisn teljum að
það þurfi að horfa lengra fram í tímann og
vinna okkur í haginn. Við vitum að íbúum
mun fjölga hratt á næstu árum og það er
svekkjandi að vera ekki fyrr búin að vígja
nýja aðstöðu en að hún er orðin úrelt.
Síðast þegar búningsklefum var bætt við,
árið 1986, voru íbúar sveitarfélagsins færri
en 2.500. Við vorum ennþá Mosfellssveit.
Núna á að bæta við fjórum klefum sem eiga
að þjóna bæjarfélagi sem telur rúmlega
13.000. Tvöföldun á klefum fyrir meira en
fimmfalt stærra bæjarfélag.
Í mörg ár hefur ekki verið hægt að bjóða
öllum gestaliðum sem koma hingað til að
keppa að fara í sturtu eftir leik. Þó að fjórir
klefar séu vissulega til bóta þá þarf ekki
mikla stærðfræðikunnáttu til þess að átta
sig á því að þetta er ekki nóg.
Frístund á Varmá
Það sem við í Viðreisn söknum
þó einna mest er að þetta gullna
tækifæri sé ekki nýtt til að huga að
aðstöðu fyrir börnin okkar, fyrir og
eftir að þau stunda sínar íþróttir.
Við í Viðreisn viljum að á Var-
mársvæðinu verði frístund sem
börn geta nýtt þá daga sem þau
sækja æfingar í íþróttahúsinu. Þarna verði
aðstaða þar sem börnin geta geymt skóla-
töskur og annað sem fylgir þeim á æfingar,
geti borðað nestið sitt og séu í umsjón
fagaðila sem myndu sinna þessu starfi á
sömu faglegu forsendum og eru í frístund í
skólunum sjálfum.
Svona getum við tryggt að börnin séu í
öruggu umhverfi og geti farið í frístund eftir
æfingu, sem í dag er ekki hægt. Með þessari
lausn er bæði hægt að einfalda líf foreldra
og auðvelda Aftureldingu að bjóða börnun-
um að prófa fjölbreyttar íþróttir.
Við megum líka alls ekki gleyma því að
við fáum varla betra tækifæri til þess að
skapa aðstöðu til íþróttaiðkunar fyrir börn
með fatlanir. Það er auðvelt að taka þarfir
þessa hóps inn á þessu stigi en það getur
reynst erfitt að breyta húsnæði eftir að það
er risið.
Það mætti telja upp mörg atriði til við-
bótar; aðstöðu fyrir eldri borgara, aðstöðu
við þjálfara og starfsfólk. Við þurfum að
taka Varmársvæðið í heild, skipuleggja
það í samráði við alla hagaðila og horfa
til framtíðar. Þannig getum við eignast
íþróttasvæði sem sæmir Mosfellsbæ.
Þessu viljum við breyta.
Þú getur breytt - Veldu Viðreisn.
Lovísa Jónsdóttir,
oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ
Varmá til framtíðar
Nú styttist heldur betur í sveit-
arstjórnarkosningar og áherslur
og stefnuskrár framboða í bæn-
um hafa litið dagsins ljós.
Það er virkilega ánægjulegt
að sjá að flestir flokkar, ef
ekki allir, leggja áherslu á lýð-
heilsumál og áframhaldandi
uppbyggingu Heilsueflandi
samfélags hér í Mosfellsbæ með einum
eða öðrum hætti. Í því samhengi er vert
að rifja upp að nú eru liðin 10 ár frá því
að Mosfellsbær, fyrst allra sveitarfélaga,
hóf formlegt samstarf við Embætti
landlæknis og heilsuklasann Heilsuvin
í Mosfellsbæ um uppbyggingu Heilsu-
eflandi samfélags hér í bæ.
Samvinna er lykilatriði
Til að ná árangri við slíka uppbygg-
ingu er lykilatriði að allir hagaðilar
stefni að því sameiginlega markmiði að
auðvelda fólki að taka heilsusamlegar
ákvarðanir og lifa heilbrigðu lífi.
Rannsóknir hafa sýnt að áhrifaþættir
heilbrigðis felast m.a. í geðrækt og líð-
an, mataræði, hreyfingu og útivist sem
saman skapa lífsgæði okkar auk um-
hverfis- og efnahagslegra þátta. Stjórn-
völd þurfa að taka tillit til heilsu við allar
stefnumótandi ákvarðanir í samfélaginu
varðandi t.d. skóla-, umhverfis-, íþrótta,
tómstunda-, samgöngu-, skipulags-, at-
vinnu-, menningar- og öldrunarmál.
Íbúar þurfa jafnframt að vera virkir
þátttakendur og grípa eða benda á öll
þau tækifæri sem hægt er að nýta til að
byggja hér upp fyrirmyndarsamfélag
sem leggur áherslu á vellíðan og lífs-
gæði íbúa. Samvinna allra,
að ógleymdu frumkvæði, er
lykillinn að árangri.
Lýðheilsustefna
Nú hefur Lýðheilsustefna
Mosfellsbæjar litið dagsins ljós
og hafa þar verið hnýttir saman
þræðir þeirrar miklu vinnu við
uppbyggingu Heilsueflandi samfélags í
bænum okkar undanfarin ár.
Næsta mál á dagskrá er að bretta
upp ermar og sameinast um kraftmikla
innleiðingu þeirrar stefnu sem talar að
sjálfsögðu við allar aðrar meginstefnur
bæjarins. Það mun renna enn styrkari
stoðum undir þann heilsubæ sem bær-
inn okkar sannarlega er og tryggja nauð-
synlega framþróun á öllum sviðum.
Ávinningur allra
Uppbygging Heilsueflandi samfélags
er ávinningur fyrir alla og fjölmargar
rannsóknir hafa sýnt fram á að hver
króna sem varið er í heilsueflingu og
forvarnir skilar sér margfalt til baka til
samfélagsins svo ekki sé minnst á bætta
heilsu og aukin lífsgæði allra, þar liggja
raunverulegu verðmætin.
Leggjumst öll á árarnar til að tryggja
áframhaldandi uppbyggingu Heilsu-
eflandi samfélags í bænum okkar því
við hljótum öll að vilja búa í samfélagi
þar sem áhersla er lögð á vellíðan og
lífsgæði allra íbúa.
Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsu-
fræðingur og verkefnisstjóri
Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heils vin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálss n, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfa gið jo @ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu
fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í
Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér
almennt utanumhald um starf klasans, kynningar-
og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir
klasann, umsjón með umsóknum um styrki,
bókhald og fleira.
Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á
slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar
um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður
Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is.
Umsóknir skulu sendar á netfangið
heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars
næstkomandi.
Heilsuvin í Mosfellsbæ
óskar eftir að ráða fram-
kvæmdastjóra í allt að
50% starf
heilsuvin í mosfellsbæ
Sameinumst um
heilsueflandi samfélag
H
e
i
l
s
u
v
i
n
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
e
r
h
l
u
t
a
f
é
l
a
g
í
e
i
g
u
f
y
r
i
r
t
æ
k
j
a
o
g
e
i
n
s
t
a
k
l
i
n
g
a
í
h
e
i
l
s
u
þ
j
ó
n
u
s
t
u
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
.
S
t
a
r
f
f
r
a
m
k
v
æ
m
d
a
s
t
j
ó
r
a
f
e
l
u
r
í
s
é
r
a
l
m
e
n
n
t
u
t
a
n
u
m
h
a
l
d
u
m
s
t
a
r
f
k
l
a
s
a
n
s
,
k
y
n
n
i
n
g
a
r
-
o
g
m
a
r
k
a
ð
s
s
t
a
r
f
,
ö
f
l
u
n
n
ý
r
r
a
h
l
u
t
h
a
f
a
f
y
r
i
r
k
l
a
s
a
n
n
,
u
m
s
j
ó
n
m
e
ð
u
m
s
ó
k
n
u
m
u
m
s
t
y
r
k
i
,
b
ó
k
h
a
l
d
o
g
f
l
e
i
r
a
.
N
á
n
a
r
i
u
p
p
l
ý
s
i
n
g
a
r
u
m
H
e
i
l
s
u
v
i
n
e
r
a
ð
f
i
n
n
a
á
s
l
ó
ð
i
n
n
i
w
w
w
.
h
e
i
l
s
u
v
i
n
.
c
o
m
.
N
á
n
a
r
i
u
p
p
l
ý
s
i
n
g
a
r
u
m
s
t
a
r
f
i
ð
v
e
i
t
i
r
J
ó
n
P
á
l
s
s
o
n
,
s
t
j
ó
r
n
a
r
f
o
r
m
a
ð
u
r
H
e
i
l
s
u
v
i
n
j
a
r
g
e
g
n
u
m
n
e
t
f
a
n
g
i
ð
j
o
n
@
a
n
s
.
i
s
.
U
m
s
ó
k
n
i
r
s
k
u
l
u
s
e
n
d
a
r
á
n
e
t
f
a
n
g
i
ð
h
e
i
l
s
u
v
i
n
@
h
e
i
l
s
u
v
i
n
.
c
o
m
f
y
r
i
r
3
.
m
a
r
s
n
æ
s
t
k
o
m
a
n
d
i
.
H
e
i
l
s
u
v
i
n
í
M
o
s
f
e
l
l
s
b
æ
ó
s
k
a
r
e
f
t
i
r
a
ð
r
á
ð
a
f
r
a
m
-
k
v
æ
m
d
a
s
t
j
ó
r
a
í
a
l
l
t
a
ð
5
0
%
s
t
a
r
f
heilsu
hornið
Við Mosfellingar urðum vitni að
óvönduðum og vondum vinnu-
brögðum á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Mosfellsbæjar þann 4.
maí.
Þar var til umfjöllunar og af-
greiðslu leynisamningur við Arion
banka um uppbyggingu á Blika-
staðalandinu, samningur sem ekki
mátti sýna eða ræða úti í samfélag-
inu fram að setningu fundarins.
Við hjá Vinum Mosfellsbæjar,
þar með talinn bæjarfulltrúi Vina
Mosfellsbæjar, erum ekki efnislega
á móti því að Blikastaðalandið sé
byggt upp heldur á móti þeim
óvönduðu vinnubrögðunum sem
voru viðhöfð. Það er fáheyrt að
svo risastórt mál sé dregið upp úr hatti
núverandi meirihluta Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna í lok kjörtímabilsins og það
án allrar kynningar eða umræðu úti í sam-
félaginu og keyrt í gegnum bæjarstjórn með
valdi. Íbúar Mosfellsbæjar fengu enga að-
komu og voru ekki spurðir álits, þrátt fyrir
að lýðræðisstefna Mosfellsbæjar mæli fyrir
um að svo skuli vera í svo stórum málum
sem þessu.
Í fljótu bragði þá sýnist okkur að þessi
samningur getur ekki verið annað en bara
viljayfirlýsing þar sem innihald hans fram-
selur skipulagsvald til þriðja aðila og er
það að okkar mati í hæsta máta ósiðlegt og
ekki eftir laganna bókstaf. Samningurinn
bindur hendur kjörinna fulltrúa langt fram
í tímann.
Þéttleiki byggðar í Blikastaðal-
andi verður samkvæmt samningn-
um helmingi meiri en í Helgafells-
landinu og mætti líkja við að settar
yrðu 4 – 5 hæðir ofan á hverja blokk
í Helgafellshverfinu og þykir nú
mörgum nóg um þéttleika þess
hverfis. Svona mikill þéttleiki, er
það það sem við viljum?
Samningurinn gengur svo langt
að hann formar ítarlega skipulag
svæðisins að næsta bæjarstjórn
og næstu bæjarstjórnir verða eins
konar afgreiðslunefndir fyrir þá
sem kaupa samninginn af Arion
banka, afgreiðslunefndir sem
munu lítil eða engin áhrif hafa um
byggðaþróun landsins.
Kæru íbúar Mosfellsbæjar, við hjá Vinum
Mosfellsbæjar erum andstæðan við svona
vinnubrögð. Við viljum að allt sé uppi á
borðum. Þess vegna lagði bæjarfulltrúi Vina
Mosfellsbæjar til að málinu yrði frestað svo
hægt væri að skoða það og kynna, en meiri-
hluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna
felldi þá tillögu.
Bæjarfulltrúi Vina Mosfellsbæjar greiddi
atkvæði einn gegn samþykkt samningsins
vegna skorts á lýðræðislegum vinnubrögð-
um og skorts á að kynna svo stóra ákvörðun
meðal íbúa bæjarins.
Guðmundur Hreinsson skipar 2. sæti
á lista Vina Mosfellsbæjar
Stefán Ómar Jónsson er bæjarfulltrúi
Vina Mosfellsbæjar
Vond vinnubrögð
Það er gott að vera Mosfellingur.
Bærinn vex og dafnar og það er
ánægjulegt að fylgjast með fleira
og fleira fólki setjast hér að og gera
Mosfellsbæ að sínum heimabæ.
Fjölbreytt menningarlíf, öflugt
íþrótta- og tómstundastarf og
tækifæri til fjölbreyttrar útivistar í
náttúrunni allt um kring eru með-
al margra góðra þátta sem við Mosfelling-
ar erum svo lánsamir að búa við. Því skal
kannski engan undra að samkvæmt árlegri
könnun Gallup segjast nú 89% bæjarbúa
ánægðir með Mosó sem stað til að búa á.
Undirstaða þess sem tryggir gott bæjarfé-
lag hvar íbúar eru ánægðir er meðal annars
ábyrgur og traustur rekstur. Til viðbótar við
það þarf framsýna menn og konur í brúnni
sem hafa hugmyndaauðgi, hugrekki og þor
til að hugsa út fyrir hið hefðbundna, vera
skapandi við úrlausnir áskorana og taka
ákvarðanir byggðar á framtíðarsýn og í
góðu samráði við íbúa.
Á komandi kjörtímabili viljum við sjálf-
stæðismenn að Mosfellsbær verði áfram
fjölskylduvænn, heilsueflandi og framsæk-
inn bær sem hefur velferð og þarfir allra
íbúa að leiðarljósi og að hér verði áfram
eftirsóknarvert að búa, bæði fyrir nýja og
eldri Mosfellinga.
Við vitum að skapandi umgjörð um
menningarmál er öllum samfélögum holl
og því viljum við sjálfstæðismenn gera
okkar til að stuðla að fjölbreyttu og blóm-
legu menningarlífi í Mosfellsbæ. Við vilj-
um vinna að því að skapa frjóan og góðan
jarðveg til að efla og styðja við menningar-
starfsemi í bænum, efla menningartengda
ferðaþjónustu og auka við framboð menn-
ingarviðburða í bænum. Við viljum auk
þess stuðla að byggingu á fjölnota
menningarhúsi á sama tíma og við
hugum að því hvernig hægt er að
nýta enn betur húsakynni bæjarins
í þágu lista og menningar.
Öflugt íþrótta- og tómstunda-
starf er annað sem við Mosfelling-
ar höfum verið lánsamir að njóta
en þar hefur ómetanleg þátttaka
sjálfboðaliða spilað lykilhlutverk.
Við þekkjum mikilvægi þess að fólk
á öllum aldri, börn, fullorðnir og eldri
borgararar, hafi gott aðgengi að íþrótta-
og tómstundastarfi, meðal annars vegna
þess hversu mikið heilbrigð hreyfing getur
stuðlað að líkamlegu hreysti og skipt sköp-
um fyrir andlega vellíðan.
Við viljum því tryggja að það íþrótta- og
tómstundastarf sem er í boði í Mosfellsbæ
sé vel kynnt íbúum svo þeir geti með auð-
veldum hætti leitað sér upplýsinga og nýtt
sér til heilsueflingar.
Við viljum einnig stuðla að áframhald-
andi uppbyggingu íþróttasvæða og íþrótta-
mannvirkja, meðal annars með því að bæta
við íþróttamiðstöðvarnar í Lágafelli og að
Varmá og ljúka við endurnýjun á Tungu-
bökkum. Þá viljum við hækka enn frekar
frístundaávísanir, halda áfram uppbygg-
ingu til útivistar, tryggja áframhaldandi
stuðning við jaðaríþróttir og þannig stuðla
að heilbrigðri samveru fjölskyldna og ann-
arra í Mosfellsbæ.
Tryggjum áframhaldandi vöxt og mótum
framtíðina saman. Setjum X við D þann 14.
maí.
Hilmar Stefánsson
Höfundur skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðis-
flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Mosó – bær íþrótta,
menningar og lista
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum
á mosfellingur@mosfellingur.is