Fréttablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Á Íslandi axlar enginn ábyrgð á
neinu, hvorki á orðum né gjörðum.
Það er ekki landlægur persónu-
leikabrestur sem háir okkur, heldur
geigvænleg meðvirkni.
Á Íslandi á að vera gaman, eins og
í fjölskylduboði með alkóhólista,
ef einhver réttir upp hönd og segir:
„Mér finnst leiðinlegt þegar amma
deyr í forréttarskálina,“ er því mætt
með: „Heyrðu, litli skítur, amma
þín er að gera sitt besta. Veistu hvað
hún hefur mátt þola? Af hverju
þarftu alltaf að skemma allt með
neikvæðni?“ Þess vegna brjálast
fólk þegar gagnrýnendur listar og
menningar gagnrýna list og menn-
ingu, þess vegna situr Sigmundur
Davíð enn á Alþingi, þess vegna
þykir fjármálaráðherra í fullkomnu
lagi að veitast trekk í trekk að blaða-
mönnum. Umræddir blaðamenn
stóðu einu sinni upp og sögðu: „Mér
þykir ekki skemmtilegt að ein-
hver lúði að norðan stundi arðrán í
Namibíu.“ Viðbrögðin voru viðbúin.
Umræddur lúði fjármagnaði
ófrægingar- og áreitisherferð gegn
þessum blaðamönnum. Lögreglan
boðar þá í skýrslutöku fyrir það eitt
að skrifa fréttir og fer fram á að þeir
geri grein fyrir heimildarmönnum
sínum.
Þingmenn og ráðherrar valda-
mesta flokks landsins gera fyrst
lítið úr namibísku þjóðinni (segja
spillingu vera landlæga þar, annað
en í landi tækifæranna þar sem fjör
er landlægt) og svo úr blaðamönn-
unum: „Eru fjölmiðlamenn of góðir
til þess að mæta og svara spurning-
um lögreglu?“ Formaðurinn, þessi
sem spyr hvort fjölmiðlamenn séu
of góðir, er klár gaur. Hann gerir sér
grein fyrir því hvaða skilaboð hann
er að senda: Ef þú verður uppvís að
því að segja óþægilega frá þá verður
þér refsað.
Það er gaman, það er gaman, það
er gaman. Það er gaman, sama hvað
það kostar. n
Land tækifæranna
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
Allt
fyrir
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
www.partybudin.is
Plastlaus
september
Munum eftir
fjölnota pokunum
Forskráning
á nova.is
Framtíðin í fjórtánda veldi! Skráðu þig á lista til að
vera með þeim fyrstu til að frétta þegar iPhone 14
símarnir lenda!
Bestu fríðindin FyrirÞig
í Nova appinu!
Í Nova appinu finnur þú ótrúleg 2F1 tilboð FyrirÞig.
Gefðu þér tíma til að kjamsa, fara út að leika, spjalla
og hafa gaman í besta félagsskapnum!
Svo kostar ekkert að fá FríttStöff sem gefur og gleður.
Þú finnur alls konar frítt og frábært FyrirÞig í Nova appinu!
2F1
nova.is