Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1943, Qupperneq 78
76
Iands (1000 ferm.) til garðræktar. Helming þess mætti
ætla fyrir kartöflur, % fyrir gulrófur, en afganginn ýmsum
öðrum nauðsynlegum matjurtum, berjarunnum og trjám.
Meðaluppskera úr slíkum garði má ætla að verði um 10 tn.
af kartöflum, 5—6 tn. af rófum og nægilegt til heimilis-
notkunar af öðrum matjurtum.
Frumskilyrði garðræktar eru að landið sé vel ræst fram,
njóti skjóls, viti sem bezt við sól og sé vel girt. Jarðveg-
urinn þarf að vera vel unninn og hæfilega rakur og auk
þess verður að uppfylla þær kröfur sem jurtirnar gera til
næringar.
Vermireit eða gróðrarstíu þarf og að hafa, með því móti
má lengja vaxtartíma tegundanna.
Garðinn þarf að hirða sem bezt, illgresi má ekki eiga
þar friðland og því síður fella þar fræ. Nauðsynlegt er að
eiga arfasköfu, því hún auðveldar hirðinguna stórum. Þá
ber og að setja vel og skipulega niður, hafa raðimar
beinar og jafnlangt á milli plantna í röðum og beita svo
arfasköfunni í sólskini, meðan arfinn er sem smæstur.
Hér á eftir verða taldar nokkrar matjurtir, sem þrífast
vel í flestum sveitum landsins.
Kartaflan er þýðingarmest þeirra jurta, sem hér eru
ræktaðar í görðum. Til neyzlu þarf að ætla um 2 tn. á
mann, ef vel á að vera. Þær þrífast bezt í lausum, sendnum
jarðvegi. Góður áburður fyrir þær er sauðatað eða hrossa,
sé það undan vel fóðruðum gripum og kúamykja, sé um
sendna eða þurlenda garða að ræða. Hæfilegt áburðar-
magn má telja frá 6—8 þús. kg. á málið, eða um 120
kg. af tilbúnum garðáburði.
Af kartöflum er til fjöldi afbrigða og hafa mörg þeirra
reynzt hér vel. Af hinum fljótvöxnu má nefna Rósin,
Ás-kartafla, Duke of York. Nokkru seinvaxnari eru Stóri
Skoti, Gullauga, Rogalands rauð, Erdgold, Kerr’s Pink
(Eyvindur) og Up to date, Ben Lommond og Centifolia.
Gott, seinvaxið afbrigði er Alpha, sem þarf langan spír-
unartíma. Um allmörg fleiri afbrigði má velja. Hin gömlu
„íslenzku" afbrigði geta gefið góða uppskeru þegar vel
árar, en eru varasöm að því leyti að þau eru afar næm
fyrir myglu, og seinvaxin og smávaxin og geta því mjög
brugðizt í kuldatíð.
Útsæði þarf helzt að vera sem jafnast, 30—60 gr. að