Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1943, Side 95
93
5) Sjöundl og áttundi dálkur töflunnar eru prentaðir
með breyttu letri. Kýr, sem mjólka þá nyt er þar stendur,
með tilsvarandi fitu, eru kýr, sem vafamál er hvort .þurfi
að gefa fóðurbæti til viðbótar töðunni eða ekki. Öllum
þeim kúm, sem mjólka þá nyt, sem framar er í töflunni,
þarf ekki að gefa fóðurbæti. en þeim, er mjólka þá nyt, er
aftar er; þarf að gefa fóðurbæti eigi þær að halda eðli-
lega á sér nytinni og sýna eigendum sínum fullt gagn
og arð.
6) Sé kúnni ekki gefið yfir 3—4 kg. af fóðurbæti á dag,
þá er bezt að gefa henni blöndu af síldarmjöli (%) og
maís (%), en þurfi að gefa henni meira, þá þurfa að vera
fleiri fóðurbætistegundir í blöndunni.
7) Úthey er venjulega verra til fóðurs en taða, enda
siðar slegið. Þarf oftast 1,2—1,5 kg. af kýrgæfu útheyi, til
að jafngilda einu kg. af góðri töðu.
8) Öllum þeim kúm, sem vanar eru að komast fyrst
eftir burðinn í nyt, sem svarar til þess, sem er aftan við
sjöunda dálk, ætti að gefa fóðursalt 5—6 vikna tíma fyrir
burðinn, og 2—3 mánuði eftir hann. Hæfileg gjöf af fóður-
salti er 1—2 matskeiðar á dag, og er bezt að gefa það f
fóðurbætinum, sé hann gefinn, en ella hnoðað inn i deig-
bita á stærð við kartöflu.
9) Ætið þarf að fara í fjósið á sama tíma dag hvem
og mjólka kýmar í sömu röð. Öll óregla í því efni kostar
meira viðhaldsfóður eða minni mjólk eða hvort tveggja.
10) Mjaltir ber að framkvæma hreinlega, þurrka vel
af júgrunum áður en byrjað er að mjólka, og þvo þau, sé
þess þörf. Betra er að kreistmjólka en toga, og frá þvf
byrjað er að mjólka kúna, ber að mjólka stanzlaust þar
til mjaltir eru búnar. Allur stanz á mjöltum orsakar minni
mjólk. Vel ber að vanda hreitlurnar.
11) Gæta ber þess, að kýmar haldist sem bezt hreinar
i fjósinu, og þarf að kemba þær og bursta daglega.
12) Sé gefið fóður með megnri lykt, svo sem rófur, vot-
hey eða annað, ber að gefa það eftir mjaltir, svo mjólkin
dragi ekki bragð eftir lyktinni. Moka ætti flórinn nokkru
áður en mjólkað er, því ella getur mjólkin dregið í sig
mykjubragð.
13) Sérstaka natni þarf að sýna síð- og sumarbærum
að haustinu, bæði með þvi að gefa þelm með beitinni
eftir að grös eru farin að sölna, og eins með þvi að taka