Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1943, Qupperneq 98
86
gæta hreinlætis til þess að alvarlegt tjón geti ekki aí
hlotizt.
Júgurbólga lýsir sér þannig, að júgrið þrútnar, verður
viðkvæmt og samtímis breytist mjólkin í veika kirtlinum,
oftast fær kýrin hitasótt, missir lyst og jórtur, gejdist og
líður sýnilega illa.
Til þess að eyða bólgunni, eru heitir sápuvatnsbakstrar
hentugasta og bezta ráðið. Takið hálfa fötu af heitu vatni
(það heitu, að þið þolið að vinda stykki upp úr því),
hreint léreftsstykki og stangasápu og baðið júgrið (veika
kirtilinn) upp úr vatninu, nuddið júgrið með hægð ofan frá
og niður að spenanum; eftir að hafa baðað júgrið i 15—
20 mínútur, er það mjólkað eins vel og hægt er. Endur-
takið böðin og mjaltir á klukkutíma fresti þar til bólgan
er horfin.
Venjulega er hægt að lækna júgurbólgu mjög fljótt, á
12—14 tímum, ef þessi aðferð er notuð og fljótlega hefir
verið tekið eftir að kýrin var að veikjast. Ef ekki tekst að
lækna júgurbólgu strax, verður að nota júgurbólguáburð
til þess að eyða henni. Varast skal að láta kulda koma að
júgrinu, þvi er gott að þekja það með hlýjum ullardúk.
Bezta ráðið til að koma í veg fyrir júgurbólgu, er að
gætá hreinlætis í hirðingu kúnna, júgrin eiga að vera
hrein og þurr, hendur mjaltarans hreinar.
Batni veikin til fulls, fer kýrin aftur að éta og jórtra,
eymslin í júgrinu hverfa, mjólkin fær aftur eðliiegt útlit
og kýrin kemst i þá nyt, sem hún var í áður en hún veikt-
ist. Eftir júgurbólgu myndast stundum hersli, þrimlar,
harðir eitlar og ber í júgrinu, en kýrin virðist að öðru
leyti heilbrigð. Hægt er að fá kýr með þrimla i júgri
jafngóðar, með því að mjólka þær vel og nudda júgrið
á geldstöðutímanum.
Kýr með júgurbólgu og skemmd júgur á ávallt að t
mjólka síðast og aldrei ofan í básinn, eða saman við
aðra mjólk. '
Stálmi. Bólga sú, sem alltaf kemur í júgur kúnna fyrir
og um burðinn, kallast stálmi, sérstaklega ber oft mikið á
stálmabóleu í fyrsta kálfs kvígum. Stálmabólga er sjaldn-
ast heit eða viðkvæm, en oft deigkennd, svo að fingraför
sem koma við þrýstingu á júgrið, haldast lengi á eftir.
Mjólkin er eðlileg broddmjólk.
Stálmabólga er enginn sjúkdómur, en orsakast aí þvi