Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1943, Page 119
117
sáman, en nauðsynlegt er þá að háfá vettlinga. Síðást ef
farið yfir steypuná með bursta og hún lituð með Medusa-
málningu eða kalk og sementsblöndu (kalk 2 hlutar, sem-
ent 7 hlutar).
Nauðsynlegt er að hafa vatnsþéttiefhi í stéypu grunii-
veggja og neðsta gólfs húsa. Biklímdan pappa má þó nota
í þess stað. Grunnveggi þá, sem í jörð eru, verður vel að
bika utan, eftir að þeir háfa verið hólufylltir og kústaðir.
Málning.
Málningin er ekki fyrst og fremst til skrauts, heldur tii
varnar og viðhalds. Sérstaklega er naúðsynlégt að málá
vel glugga og þök. Málningu á þökiun er nauðsynlegt að
endurnýja á 5 ára fresti. Ef það er ekki gert, ryðgar
járnið skjótt og eyðileggst. Vel viðhaldið járnþak getur
enzt ófyrirsjáanlega lengi. — Timburþiljur innanhúss
ætti ekki að mála. Nægir að þær séu olíubomar.
Skipulag bœjarhúsá.
Látið húsin standa skipulega. Látið þau hafa horn-
rétta afstöðu hvort til annars og dreifið þeiin ekki út um
tún og móa. Vel getur farið á því að láta hliðar svunrá
þeirra liggja á sömu línum. — íbúðarhúsið ætti ætíð að
standa framar og vera nær heimreið en aðrar byggingar,
og dyr haughúsa og tæmingar þurfa alltaf að vera i hléí
og sem fjærst umferð. Hafið hlöðurnar aldrei sambyggðar
íbúðárhúsi. Af því stafar eldhætta og éinnig fer það illa.
— Hafið hlið á görðum og girðingum traust og smekkleg
og me.ð sterkum grindum, lókum ög lömúm. Traust og
myndarleg hlið auka svip heimilisins, enda jafnan merki
um hirðusemi. . r
Uppdrœttir.
Útvegið yðm: ætíð uppdrætti áður en þér farið að
byggja. Kynnið yður uppdrættina vel. Gerið yður ljóst
um stærðir herbergja, sambönd þeirra o. fl. Útvegið ykkur
upplýsingar lun kostnaðarverð húsanná áður en þér ráðizt
í íramkvæmdir, svo tryggt sé að fyrirtækið verði viðráð-
anlegt. Teiknistofa landbúnaðarins, sem er í Búnaðar-