Fréttablaðið - 28.09.2022, Side 24
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
BAÐ- &
SALERNISHJÁLPARTÆKI NÆRINGARVÖRUR SNÚNINGSLÖKGÖNGUGRINDUR
VIÐ LÉTTUM ÞÉR LÍFIÐ
Heilbrigðissvið Fastus býður upp á heildarlausnir í endurhæfingar-, hjúkrunar- og hjálpartækjum.
Hjá okkur er sérhæft fagfólk sem leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða þig við val á vörum.
8 kynningarblað 28. september 2022 MIÐVIKUDAGUREFRI ÁRIN
Doktor Janus Guðlaugsson
hefur um árabil sinnt mál-
efnum eldri borgara þar sem
markmiðið hefur verið að
stuðla að bættri heilsu og
betri lífsgæðum.
gummih@frettabladid.is
Janus heilsuefling er ráðgjafar- og
þjónustufyrirtæki sem stofnað var
árið 2016 til að nýta niðurstöður
doktorsrannsóknar Janusar Guð-
laugssonar: Fjölþætt heilsuefling
– Leið að farsælli öldrun.
Hvað getur fólk á efri árum gert til
að njóta lífsins, búa lengur heima,
sinna athöfnum daglegs lífs lengur,
vera lengur úti á vinnumarkaði og
bæta lífsgæði sín?
„Helstu grundvallarþættir til
að verða við þessum óskum eldri
einstaklinga er dagleg hreyfing, góð
næring, fullnægjandi svefn, félags-
skapur og jákvæð hugsun,“ segir
doktor Janus.
„Mikilvægt er, varðandi daglega
hreyfingu, að fylgja leiðbeiningum
alþjóðlegra heilbrigðisyfirvalda og
ná 30 mínútna daglegri hreyfingu
og stunda styrktarþjálfun tvisvar
til þrisvar sinnum í viku. Við erum
að sjá einstaklega jákvæðar niður-
stöður okkar þátttakenda fylgi þeir
þessum fyrirmælum,“ segir Janus.
Hann bætir við: „Styrktarþjálf-
unin er sérstaklega mikilvæg vegna
hægfara vöðvarýrnunar sem á
sér stað með hækkandi aldri, sér
í lagi eftir 60 ára aldurinn. Því er
styrktarþjálfun lykilatriði og eitt
af okkar aðalsmerkjum til að ná
þessum markmiðum. Þá erum við
með sérhæfðar heilsufarsmæl-
ingar til að fylgjast með hverjum og
einum,“ segir Janus.
Um næringarþáttinn segir hann:
„Næringin er einnig lykilatriði og
fer fræðslan meðal annars fram
með fræðsluerindum næringar-
fræðinga á okkar vegum. Sérstak-
lega þarf að huga að próteinríkri
næringu þar sem hún kemur til
með að svara þörfum líkamans um
uppbyggingu á vöðvamassa.“
Kenna sjálfstætt vinnulag
Fjölþætt heilsuefling fyrir 65 ára og
eldri er verkefni sem Janus og hans
fólk hefur hrundið í framkvæmd í
samvinnu við nokkur sveitarfélög.
Spurður hvert sé megininntak verk-
efnisins segir Janus: „Að koma á fót
markvissri heilsueflingu fyrir eldri
aldurshópa með lýðheilsutengdu
inngripi sem byggt er á akademísk-
um og raunprófanlegum aðferðum.
Lífsstílsbreyting er langtíma
verkefni og því mikilvægt að kenna
eldri borgurum sjálfstætt vinnulag
við eigin heilsueflingu. Því fyrr sem
við grípum sjálf inn í heilsuna með
heilsutengdum forvörnum má gera
ráð fyrir því að við þurfum síður
eða seinna á hjúkrunarleiðinni eða
heilbrigðiskerfinu að halda,“ segir
Janus.
Hver eru skammtímamarkmið
verkefnisins?
„Þau er til tveggja ára og fela í sér
að bæta heilsutengdar forvarnir,
efla hreyfifærni, bæta styrk og þol,
auka líkamlega afkastagetu, bæta
heilsu og lífsgæði og gera hina eldri
sjálfstæða í eigin heilsueflingu með
bættu heilsulæsi og sjálfbærni,“
segir Janus.
Um langtímamarkmiðið segir
Janus: „Að geta tekist lengur á við
athafnir daglegs lífs þrátt fyrir
hækkandi aldur, að geta búið
lengur í sjálfstæðri búsetu, hafa
möguleika á að starfa lengur á
vinnumarkaði, geta komið í veg
fyrir eða seinkað heimaþjónustu
eða innlögn á dvalar- og hjúkr-
unarheimili og að aðstoða ríki og
sveitarfélög við að efla heilsu og
lífsgæði eldri aldurshópa.“
Hvaða sveitarfélög hafa innleitt
verkefnið?
„Í dag höfum við innleitt
verkefni í sjö sveitarfélögum sem
og á opnum markaði á höfuð-
borgarsvæðinu. Á öllum stöðum
höfum við fengið góða svörun auk
þess sem við fylgjumst vel með
okkar þátttakendum í gegnum
markvissar heilsufarsmælingar.
Sveitarfélögin sem um ræðir eru
Reykjanesbær, Hafnarfjörður,
Vestmannaeyjar, Grindavík, Sel-
tjarnarnes, Garðabær, Fjarðabyggð
og opinn markaður á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir Janus.
Hvað með að innleiða verkefnið á
landsvísu?
„Við höfum innleitt verkefnið til
að mynda í Vestmannaeyjum og
hefur það gengið mjög vel í sam-
vinnu við fagfólk og sveitarfélagið
í Eyjum. Nýlega var verkefnið
innleitt í Fjarðabyggð og gekk sú
innleiðing einstaklega vel þar sem
þátttaka fór fram úr björtustu
vonum. Hér sýndum við í fyrsta
Styrktarþjálfunin sérstaklega mikilvæg
Janus segir að
styrktarþjálf-
unin sé sérstak-
lega mikilvæg
vegna hægfara
vöðvarýrnunar
sem á sér stað
með hækkandi
aldri.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
skipti að innleiða má verkefnið í
dreifðar byggðir landsins án þess
að það komi niður á gæðum þess,“
bætir Janus við.
Hvað með áhuga stjórnvalda á
verkefninu?
„Verkefnið er, svo best ég viti,
eina raunprófanlega verkefnið á
sviði heilsutengdra forvarna fyrir
þennan aldurshóp sem hefur stað-
ist akademíska skoðun. Verkefnið
hefur fengið alþjóðlega viðurkenn-
ingu, bæði hjá Evrópusambandinu
í samvinnu við Embætti landlæknis
sem og viðurkenningu í nýrri
skýrslu OECD þar sem fjallað er um
heilsufarslegan sem fjárhagslegan
ávinning þess. Það er því spurning
hvort lausnin við vanda heilbrigðis-
kerfisins felist í þessu verkefni,“
segir Janus að lokum. n