Fréttablaðið - 28.09.2022, Side 38

Fréttablaðið - 28.09.2022, Side 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 CHARLIETOWN 3ja sæta sófi. Dökkgrátt Vic sléttflauel. 219 x 88 x 78 cm. 135.992 kr. 169.990 kr. KENNEDY 3ja sæta sófi. Ljóst áklæði. Einstaklega mjúkur og þægilegur. 195 x 98 x 99 cm. 223.992 kr. 279.990 kr. AMERÍSKIR DAGAR www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N CLARKSTON Einstaklega notalegur 3ja sæta sófi. Sveif á hlið leggur sæti aftur og lyftir um leið upp fótaskemli. 229 x 104 x 104 cm. 351.992 kr. 439.990 kr. LÝKUR Á FÖSTUDAG PINNACLE Fallegur hægindastóll sem fæst í mörgum litum og útfærslum. Sveif á hlið leggur stólinn aftur og lyftir um leið upp fótaskemli. 151.992 kr. 189.990 kr. LANETT 3ja sæta sófi. 225 x 94 x 93 cm. 175.992 kr. 219.990 kr. Leikstjórinn Hannes Þór Halldórsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á glæpa- sögunni Húsinu eftir Stefán Mána og stefnir á að koma þessum myrka trylli í bíó á næstu misserum. Gangi það vel útilokar hann ekki að fleiri sögur um rannsóknar- lögguna Hörð Grímsson verði kvikmyndaðar. toti@frettabladid.is Floodlights, framleiðslufyrirtæki Hannesar Þórs Halldórssonar, fyrr- verandi landsliðsmarkvarðar, hefur keypt kvikmyndaréttinn á spennu- sögunni Húsið eftir Stefán Mána. „Þetta er spennandi dæmi og ég er búinn að vera í sambandi við Stefán Mána frá því hann kom og sá Leynilögguna og við byrjuðum að ræða alls konar möguleika sem snúa að þessum bókum sem hann hefur skrifað,“ segir Hannes Þór sem í kjölfarið las nokkrar bækur höfundarins og komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að tryggja sér réttinn á Húsinu. Uppbrettar ermar „Það er allt búið að vera á fullu síðan ég flutti heim 2019 og eftir velgengni Leynilöggunnar eru spennandi tímar framundan. Ásamt Hús- inu er ég tengdur nokkrum mjög áhugaverðum verkefnum og hug- myndin er að bretta upp ermar og koma miklu í verk næstu árin.“ segir Hannes. Er ekki verið að pressa á þig að fylgja vinsældum Leynilöggu eftir með framhaldsmynd? „Ég er oft spurður og það er alls ekki útilokað. Við erum svona að fara yfir málin núna og það hafa verið alls konar hugmyndir um hvað við gerum við Leynilöggu 2,“ segir Hannes og nefnir framhaldsmynd, sjónvarpsþætti eða jafnvel einhvern bræðing af hvoru tveggja. „Við erum bara að sjá hvernig við getum tekið þetta áfram,“ segir Hannes. Fullir tilhlökkunar „Stefán Máni skrifar myndrænar og kyngimagnaðar bækur og ég var ekki búinn að lesa margar blaðsíður þegar ég fann að hér væri komið efni í góða kvikmynd,“ segir Hannes Þór. Húsið kom út 2012 og RVK Stud- ios tryggði sér kvikmyndaréttinn strax árið eftir en sá réttur var fall- inn á tíma. „Það var bara dottið upp fyrir eða ekkert varð úr því þannig að nú ætla ég að spreyta mig. Við erum reyndar byrjuð á hand- ritsvinnunni og erum komin aðeins áleiðis en það er samt langur vegur fram undan en þetta er allavegana komið af stað og er bara mjög spenn- andi og ég hlakka til að takast á við þetta. Stefán Máni er ekki síður ánægður með samkomulagið og mun fylgjast spenntur með frmavindunni. „Ég er hrikalega ánægður með þennan samning. Það er tími til kominn að Hörður Grímsson fái að njóta sín á hvíta tjaldinu og Hannes Þór er hárréttur maður í verkið. Aðdá- endur lögreglumannsins hljóta að gleðjast,,“ segir Stefán Máni. Rannsóknarlögreglumaðurinn Hörður Grímsson er lykilpersóna í höfundarverki Stefáns Mána og Hannes Þór segist aðspurður ekki útiloka að ef vel gangi með Húsið verði f leiri bækur um persónuna kvikmyndaðar. Hörður á leik „Stefán Máni er mjög kraftmikill höfundur og það hefur þegar sýnt sig að verk eftir hann virka vel á hvíta tjaldinu og Svartur á leik er með vinsælli bíómyndum sem gerðar hafa verið hér á landi. Og Hörður Grímsson er vinsæl persóna með traustan aðdáendahóp þannig að það er alls ekki útilokað að þetta haldi áfram ef vel gengur.“ Spennuþrungin áskorun Hannes Þór ætlar sér að sjálfsögðu að leikstýra Húsinu sjálfur og segir söguna fara í spíral sem fari sífellt dýpra ofan í dimman heim. „Hún er mjög myrk. Spennandi sálfræði- þriller sem fer fram og til baka í tíma þannig að það er áskorun að koma þessari bók á hvíta tjaldið en það eru spennandi frumþættir í henni sem ég held að séu efni í góða bíó- mynd. Þannig að þetta verður bara gaman.“ Flóðljós utan vallar Hannes Þór hefur undanfarið sett fullan kraft í framleiðslufyrirtækið Floodlights og opnað nýja heima- síðu www.f loodlights.is en fyrir- tækið hvílir á gömlum grunni. „Ég var alltaf með lítið fyrirtæki utan um starfsemi mína áður en ég fór út í atvinnumennsku og ef eitthvað datt inn á meðan ég var þar. Eftir að ég kom heim þá hefur þetta bara farið á f lug,“ segir Hannes Þór sem hefur ekki síst verið virkur í aug- lýsingagerð og stórum herferðum í þeim bransa. „Það er nóg að gera og þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og tryggingin á þessum kvikmynda- rétti er bara hluti af því að taka þetta lengra og þróast sem fram- leiðslufyrirtæki.“ n Stöngin inn hjá Stefáni Mána og Hannesi Þór Hannes Þór er á fullu með Floodlights og þeir Stefán Máni eru báðir spenntir fyrir möguleikum Hússins . MYND/AÐSEND Húsið Húsið er ellefta skáldsaga Stefáns Mána og kom út 2012 og hlaut Tindabikkjuna, verðlaun Glæpafélags Vestfjarða, sem besta glæpa- sagan það ár. Bókinni var lýst sem tæplega 600 blaðsíðna sálfræðitrylli með andstyggi- legasta illmenni sem hefði skotið upp koll- inum í íslenskum glæpasögum. Sögunni vindur fram á tveimur tímaplön- um. Annars vegar 1979 þegar sjö ára drengur kemst lífs af úr húsbruna í Kollafirði og hins vegar 2007 þegar rannsóknarlögreglumaður- inn Hörður Grímsson er kallaður að húsi í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík þar sem gamall maður liggur í blóði sínu í kjallaranum. FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut 26 Lífið 28. september 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.