Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 08.10.2022, Blaðsíða 20
Veiðigjöld- in eru leiga fyrir rétt til nýtingar á verðmæt- um en ekki skattur. Í raun var söngvasafn- ið svo vinsælt að upp úr því var sungið nánast á hverju heimili áratugum saman. Eyjólfur Tríóið Gadus Morhea, með þau Eyjólf Eyjólfsson, Stein­ unni Arnbjörgu Stefánsdóttur og Björk Níelsdóttur innan­ borðs, blæs til tónleikaveislu um helgina þar sem það mun flytja Fjárlögin, söngvasafn Sigfúsar Einarssonar og Hall­ dórs Jónassonar, og lofa þau að rífa upp baðstofustemn­ inguna. bjork@frettabladid.is Þetta byrjaði allt þegar við Steina settum saman tónlistardagsk rá f y rir þjó ð bú n i ng a h át íði n a Skotthúfuna í Stykkis­ hólmi sumarið 2016,“ segir Eyj­ ólfur aðspurður um upphafið. „Þá var þemað Jörundur hundadaga­ konungur og skipuleggjendum hátíðarinnar þótti því viðeigandi að bjóða upp á tónlistardagskrá þar sem gerð yrði tilraun til að sameina kvöldvökur baðstofanna og tónlistarf lutning evrópskrar hirðmenningar. Samhljómur lang­ spilsins og barokksellósins gaf strax ímyndunaraflinu lausan tauminn. Til Íslands rötuðu á öldum áður aðalsmenn í ævintýraleit og ekki ólíklegt að með í farteskinu hafi verið tískuhljóðfæri af meginland­ inu. Rétt eins og Þórarinn Eldjárn lýsir á eftirminnilegan hátt í heim­ ildarskáldsögunni Baróninum, er franski aðalsmaðurinn á Hvítár­ völlum leikur á knéfiðlu fyrir íbúa Reykjavíkur undir lok 19. aldar. Við fórum því að ímynda okkur barón­ inn djammandi á sellóið með lang­ spilsleikara á næsta bæ og hvernig slíkur samruni forneskjulegrar bað­ stofumenningar og þokkafullrar heimsmenningar hafi hljómað.“ Samruni barokks og baðstofu Björk bættist f ljótlega í hópinn og hefur tríóið komið fram við hin ýmsu tækifæri jafnt innan lands sem utan. Þegar talið berst að nafni tríósins, Gadus Morhea, verður Steinunn fyrst til svars. „Þegar við fórum að huga að nafni á tríóið varð mér hugsað til Frakk­ landsáranna. Þá keypti ég íslenskan þorsk í matinn þegar hann var í boði. Hann var merktur Gadus mor­ hua sem er latína og þýðir Atlants­ hafsþorskur. Þetta latneska heiti kom í hugann því það rímaði vel við þvermenningarlegar áherslur í tón­ listarnálguninni okkar. Enda fátt jafn þjóðlegt og alþjóðlegt í senn og þorskurinn góði,“ segir hún. „Enda hryggjarstykkið í efnisskrá Gadus Morhua íslensk og erlend þjóðlög, einsöngslög í eigin útsetn­ ingum og frumsamið efni þar sem f léttast saman hljómheimar bar­ okksins og baðstofunnar á nýstár­ legan hátt,“ segir Eyjólfur og bætir við í léttum tón: „Við stöndum í þeirri meiningu að okkur sé jafnvel að takast að búa til nýja tónlistar­ stefnu sem við köllum baðstofu­ barokk.“ Nú um helgina mun tríóið blása til tónleikaveislu og flytja Fjárlögin, söngvasafn Sigfúsar Einarssonar og Halldórs Jónassonar frá árunum 1915 til 1916. Fyrri tónleikarnir verða í kvöld í Stokkseyrarkirkju og þeir síðari á morgun, sunnudag, í Mengi. „Þetta eru einfaldlega skemmtileg og falleg lög, en falla líka vel að þess­ um þvermenningarlegu áherslum okkar,“ segir Eyjólfur. „Þetta eru mikið til erlendar lagasmíðar við íslensk átthaga­ og ættjarðarljóð og nutu mikilla vinsælda um nokkurt skeið. Í raun var söngvasafnið svo vinsælt að upp úr því var sungið nánast á hverju heimili áratugum saman.“ Þjóðlaga-usla-sveit Steinunn segir Mengi frábæran vettvang fyrir tónlistarflutning af þessu tagi enda skapi rýmið mikla nánd. „Við ák váðum að vera með æfingabúðir í Roðgúl á Stokkseyri þar sem Eyjólfur er nýorðinn hús­ ráðandi. Því þótti okkur gráupplagt að f lytja Fjárlögin einnig í Stokks­ eyrarkirkju og erum svo heppin að fá til liðs við okkur ungan organista úr sveitinni, Pál Nóa Stefánsson.“ Björk segir tónleikana fyrir alla tónlistarunnendur. „Kannski sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman af því þegar djöflast er aðeins í forminu. Við köllum okkur stundum þjóðlaga­usla­sveit þar sem tónlistarf lutningurinn ein­ kennist gjarnan af óvæntum ból­ félögum; frumsömdu efni í bland við ævafornt, dökkleitt langspil úr innstu kynstrum baðstofunnar og f lautuleik úr furðuskógi eins og Arnar Eggert Thoroddsen lýsti okkur eitt sinn.“ n Tríó sem djöflast í forminu Ólafur Arnarson n Í vikulokin BJORK@FRETTABLADID.IS Gadus Morhea er latneskt heiti yfir þorsk og þótti þeim það ríma vel við þær þvermenningar- legu áherslur sem þau aðhyll- ast í tónlistar- nálgun sinni. MYND/FRANCISCO JAVIER JÁUREGUI NARVÁEZ Svandís Svavarsdóttir hefur „samið við“ Samkeppniseftirlitið um að gera úttekt á eignatengslum í íslenskum sjávarútvegi. Niðurstöð­ ur skulu liggja fyrir í lok næsta árs. Tekur virkilega 15 mánuði að taka saman þessar einföldu upplýsingar? Þegar Sjálfstæðisflokkur og Fram­ sókn hleyptu Svandísi í sjávarút­ vegsráðuneytið var það hluti af samkomulaginu að hún mætti í engu hróf la við neinu sem máli skiptir varðandi fiskveiðistjórnun. Hvað gæti komið út úr þessari skýrslu sem ekki er vitað fyrir? Allt eru þetta opinberar upplýsingar og orðhengilsháttur að tala um 15 mánaða úttekt. Þetta er sýndarmennska til að þykjast hafa gert eitthvað þótt áfram sé haldið í gjafakvótakerfið og smánarleiga greidd fyrir afnot af sjávarútvegsauðlindinni sem er í eigu þjóðarinnar. Veiðigjöldin eru leiga fyrir rétt til nýtingar á verðmætum en ekki skattur. Enginn munur er á veiði­ gjöldum og húsaleigu. Hvort tveggja er greiðsla fyrir afnot af verðmætum sem aðrir eiga. Varla getur verið nema nokk­ urra daga verk að taka saman þessi eignartengsl. Allt liggur þetta fyrir: n Ísfélag Vestmannaeyja á Hraðfrystihús Þórshafnar. n Brim á Vopnafjörð og Út- gerðarfélag Reykjavíkur á 40 prósent í Brimi. n Samherji á 37 prósent í Síldar- vinnslunni sem á Vísi og einn- ig á Samherji ÚA. n Kaupfélag Skagafjarðar á FISK, Skagaströnd, Hólmavík, Grundarfjörð og 32 prósent í Vinnslustöðinni. Sýndarmennska í blekkingarskyni Ekki tók nema nokkrar mínútur að tína saman þessi meginatriði í eignatengslum í íslenskum sjávar­ útvegi. Annað er lítilvægt. Hins vegar mætti mögulega taka nokkra mánuði – varla þyrftu þeir að vera 15, kannski 4 til 5 – í að gera úttekt á eignatengslum íslensks sjávar útvegs inn í aðrar greinar íslensks atvinnulífs. Mjög athyglis­ vert er að skoða hvernig hagnaður­ inn vegna gjafakvótans er nýttur í uppkaup á stórum og ráðandi fyrir­ tækjum í öðrum greinum. n Barnum Uppi Fyrir ofan Fiskmarkaðinn leynist notalegasti bar bæjarins, Uppi. Full­ kominn staður fyrir rómantík eða stund með góðum vinum þar sem velja má úr einstöku vínsafni, girni­ legum kokteilum eða bjór. Happy hour er alla daga á milli 16 og 18 og boðið er upp á mat frá neðri hæð­ inni frá klukkan 17.30. Fyrir þá sem vilja er hægt að bóka prívat herbergi og fá þannig sérhannaða upplifun. Berlínum í Berlín Berlínur bjóða upp á leiðsögn á íslensku um menningarborgina Berlín. Sælkerar geta skellt sér í sælkeraferð og sögunördarnir geta fengið leiðsögn sem tengist myrkri sögu nasismans. Þá er hægt að bóka pláss í hjólreiðaferðir eða bregða sér í túr um brot af því besta. Fyrir þá sem vilja kynnast borginni betur, eða þá sem eru að heimsækja hana í fyrsta sinn, er hér æðislegur mögu­ leiki á að gera góða ferð betri. n Við mælum með Jóna Björg Jónsdóttir segir í einlægu viðtali frá veikindum eiginmanns síns, Yngva Þórs Lofts­ sonar, sem greindist með Alzheimer­sjúkdóminn aðeins rétt rúmlega sextugur. „Í dag veit Yngvi ekki hvaða dagur er, ekki hvað hann er gamall, hefur ekkert fjármálalæsi og þekkir hvorki mig né börnin. Ástandið er mjög sársaukafullt fyrir okkur öll, fjölskyldu, ættingja og vini,“ segir Jóna. Alzheimer er grimmur sjúkdómur sem rænir fólk sjálfinu og hefur hann ágerst hratt í tilfelli Yngva. Jóna hætti að vinna fyrir nokkrum árum til að annast eigin­ mann sinn en í upphafi árs var þeim sá eini kostur fær að hann flytti á hjúkrunarheimili. En þótt Yngvi muni ekki eftir fjölskyldu sinni þá man Lánasjóður íslenskra námsmanna eftir honum. Yngvi tók árið 1983 námslán til að læra landslagsarkitektúr í Kanada. Lánið hljóðaði upp á 5.114.182 krónur og eftir að greitt hefur verið af því í 33 ár eru eftirstöðvar þess 9.362.145 krónur. Jóna segist hafa farið fram á það við LÍN að lánið yrði fellt niður í ljósi aðstæðna en alltaf fengið sama svarið: Ekki sé til lagaheimild sem heimilar niðurfellingu á námsláni. Þingmenn Pírata lögðu undir lok síðasta mánaðar fram þingsályktunartillögu um heimild til niðurfellingar námslána. Það væri skref í átt til meiri mannúðar að sú tillaga yrði samþykkt. n LÍN gleymir þér aldrei En þótt Yngvi muni ekki eftir fjöl- skyldu sinni þá man Lána- sjóður íslenskra náms- manna eftir honum. 20 Helgin 8. október 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 8. október 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.